Amharic: New Testament

Icelandic

Psalms

129

1Þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, _ skal Ísrael segja _
2þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, en þó eigi borið af mér.
3Plógmennirnir hafa plægt um hrygg mér, gjört plógför sín löng,
4en Drottinn hinn réttláti hefir skorið í sundur reipi óguðlegra.
5Sneypast skulu þeir og undan hörfa, allir þeir sem hata Síon.
6Þeir skulu verða sem gras á þekju, er visnar áður en það frævist.
7Sláttumaðurinn skal eigi fylla hönd sína né sá fang sitt sem bindur,og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja: ,,Blessun Drottins sé með yður.`` Vér blessum yður í nafni Drottins!
8og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja: ,,Blessun Drottins sé með yður.`` Vér blessum yður í nafni Drottins!