1وكلم الرب موسى قائلا.
1Drottinn talaði við Móse og sagði:
2اوص بني اسرائيل وقل لهم. قرباني طعامي مع وقائدي رائحة سروري تحرصون ان تقربوه لي في وقته.
2,,Bjóð þú Ísraelsmönnum og seg við þá: Þér skuluð gæta þess að færa mér á tilteknum tíma fórnargjöf mína, mat minn af eldfórnunum til þægilegs ilms, er mér ber.
3وقل لهم. هذا هو الوقود الذي تقرّبون للرب خروفان حوليان صحيحان لكل يوم محرقة دائمة.
3Og þú skalt segja við þá: Þetta er eldfórnin, sem þér skuluð færa Drottni: Tvær sauðkindur veturgamlar, gallalausar, á dag í stöðuga brennifórn.
4الخروف الواحد تعمله صباحا والخروف الثاني تعمله بين العشاءين.
4Annarri sauðkindinni skalt þú fórna að morgni, hinni skalt þú fórna að kveldi um sólsetur,
5وعشر الايفة من دقيق ملتوت بربع الهين من زيت الرض تقدمة.
5og tíunda parti úr efu af fínu mjöli, blönduðu við fjórðung úr hín af olíu úr steyttum olíuberjum, í matfórn.
6محرقة دائمة. هي المعمولة في جبل سيناء. لرائحة سرور وقودا للرب.
6Er það hin stöðuga brennifórn, sem færð var undir Sínaífjalli til þægilegs ilms, sem eldfórn Drottni til handa.
7وسكيبها ربع الهين للخروف الواحد. في القدس اسكب سكيب مسكر للرب.
7Í dreypifórn skal fylgja hverri sauðkind fjórðungur úr hín. Í helgidóminum skalt þú dreypa Drottni dreypifórn af áfengum drykk.
8والخروف الثاني تعمله بين العشاءين كتقدمة الصباح وكسكيبه تعمله وقود رائحة سرور للرب
8Hinni sauðkindinni skalt þú fórna um sólsetur, með sömu matfórn sem um morguninn og þeirri dreypifórn, er henni fylgir, sem eldfórn þægilegs ilms Drottni til handa.
9وفي يوم السبت خروفان حوليّان صحيحان وعشران من دقيق ملتوت بزيت تقدمة مع سكيبه
9Á hvíldardegi skal fórna tveim sauðkindum veturgömlum gallalausum, og tveim tíundu pörtum úr efu af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn, og dreypifórninni, er henni fylgir.
10محرقة كل سبت فضلا عن المحرقة الدائمة وسكيبها
10Þetta er brennifórnin, sem færa skal á hverjum hvíldardegi, auk hinnar stöðugu brennifórnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgir.
11وفي رؤوس شهوركم تقرّبون محرقة للرب ثورين ابني بقر وكبشا واحدا وسبعة خراف حوليّة صحيحة
11Á fyrsta degi hvers mánaðar skuluð þér færa Drottni í brennifórn tvö ungneyti, einn hrút og sjö sauðkindur veturgamlar gallalausar,
12وثلاثة اعشار من دقيق ملتوت بزيت تقدمة لكل ثور. وعشرين من دقيق ملتوت بزيت تقدمة للكبش الواحد.
12og þrjá tíundu parta úr efu af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn með hverju nauti, tvo tíundu parta af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn með hrútnum,
13وعشرا واحدا من دقيق ملتوت بزيت تقدمة لكل خروف. محرقة رائحة سرور وقودا للرب.
13og einn tíunda part af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn með hverri sauðkind, sem brennifórn þægilegs ilms, sem eldfórn Drottni til handa.
14وسكائبهنّ تكون نصف الهين للثور وثلث الهين للكبش وربع الهين للخروف من خمر. هذه محرقة كل شهر من اشهر السنة.
14Dreypifórnirnar, er þeim fylgja, skulu vera hálf hín af víni með hverju nauti, þriðjungur úr hín með hrútnum og fjórðungur úr hín með hverri sauðkind. Þetta er brennifórnin, sem fórna skal á hverjum mánuði árið um kring.
15وتيسا واحدا من المعز ذبيحة خطية للرب. فضلا عن المحرقة الدائمة يقرّب مع سكيبه
15Auk þess einn geithafur í syndafórn Drottni til handa. Skal fórna honum auk hinnar stöðugu brennifórnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgir.
16وفي الشهر الاول في اليوم الرابع عشر من الشهر فصح للرب.
16Í fyrsta mánuðinum, á fjórtánda degi mánaðarins, eru páskar Drottins.
17وفي اليوم الخامس عشر من هذا الشهر عيد سبعة ايام يؤكل فطير.
17Og á fimmtánda degi hins sama mánaðar er hátíð. Í sjö daga skal eta ósýrt brauð.
18في اليوم الاول محفل مقدس. عملا ما من الشغل لا تعملوا.
18Fyrsta daginn er haldin helg samkoma. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu.
19وتقرّبون وقودا محرقة للرب ثورين ابني بقر وكبشا واحدا وسبعة خراف حولية. صحيحة تكون لكم.
19Og þér skuluð færa Drottni í eldfórn, í brennifórn tvö ungneyti, einn hrút og sjö sauðkindur veturgamlar. Skuluð þér hafa þær gallalausar.
20وتقدمتهنّ من دقيق ملتوت بزيت ثلاثة اعشار تعملون للثور وعشرين للكبش
20Og í matfórn með þeim fínt mjöl, blandað við olíu. Skuluð þér fórna þremur tíundu pörtum með hverju nauti og tveimur tíundu pörtum með hrútnum.
21وعشرا واحدا تعمل لكل خروف من السبعة الخراف
21Einum tíunda parti skalt þú fórna með hverri þeirra sjö sauðkinda.
22وتيسا واحدا ذبيحة خطية للتكفير عنكم.
22Enn fremur einn hafur í syndafórn til þess að friðþægja fyrir yður.
23فضلا عن محرقة الصباح التي لمحرقة دائمة تعملون هذه.
23Þessu skuluð þér fórna, auk morgunbrennifórnarinnar, sem fram er borin í hina stöðugu brennifórn.
24هكذا تعملون كل يوم سبعة ايام طعام وقود رائحة سرور للرب. فضلا عن المحرقة الدائمة يعمل مع سكيبه.
24Þessu skuluð þér fórna á degi hverjum í sjö daga sem eldfórnarmat þægilegs ilms Drottni til handa. Skal fórna því auk hinnar stöðugu brennifórnar og dreypifórnarinnar, er honum fylgir.
25وفي اليوم السابع يكون لكم محفل مقدس. عملا ما من الشغل لا تعملوا
25Sjöunda daginn skuluð þér halda helga samkomu. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu.
26وفي يوم الباكورة حين تقربون تقدمة جديدة للرب في اسابيعكم يكون لكم محفل مقدس. عملا ما من الشغل لا تعملوا.
26Frumgróðadaginn, þegar þér færið Drottni nýja matfórn, á viknahátíð yðar, skuluð þér halda helga samkomu. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu.
27وتقربون محرقة لرائحة سرور للرب ثورين ابني بقر وكبشا واحدا وسبعة خراف حولية.
27Og í brennifórn þægilegs ilms Drottni til handa skuluð þér færa tvö ungneyti, einn hrút og sjö sauðkindur veturgamlar.
28وتقدمتهنّ من دقيق ملتوت بزيت ثلاثة اعشار لكل ثور وعشرين للكبش الواحد
28Og í matfórn með þeim fínt mjöl, blandað við olíu, þrjá tíundu parta með hverju nauti, tvo tíundu parta með hrútnum,
29وعشرا واحدا لكل خروف من السبعة الخراف
29einn tíunda part með hverri þeirra sjö sauðkinda;
30وتيسا واحدا من المعز للتكفير عنكم.
30einn geithafur til þess að friðþægja fyrir yður.Auk hinnar stöðugu brennifórnar og matfórnarinnar, er henni fylgir, skuluð þér fórna þessu, ásamt dreypifórnunum, er því fylgja. Skuluð þér hafa það gallalaust.
31فضلا عن المحرقة الدائمة وتقدمتها تعملون. مع سكائبهنّ صحيحات تكون لكم
31Auk hinnar stöðugu brennifórnar og matfórnarinnar, er henni fylgir, skuluð þér fórna þessu, ásamt dreypifórnunum, er því fylgja. Skuluð þér hafa það gallalaust.