Bulgarian

Icelandic

2 Chronicles

34

1Иосия бе осем години на възраст когато се възцари, и царува в Ерусалим тридесет и една година.
1Jósía var átta vetra gamall, þá er hann varð konungur, og þrjátíu og eitt ár ríkti hann í Jerúsalem.
2Той върши това, което бе право пред Господа, като ходи в пътищата на баща си Давида, без да се отклони на дясно или на ляво.
2Hann gjörði það, sem rétt var í augum Drottins, og fetaði í fótspor Davíðs forföður síns og veik hvorki af til hægri né vinstri.
3В осмата година на царуването си, като бе още млад, почна да търси Бога на баща си Давида; а в дванадесетата година почна да чисти Юда и Ерусалим от високите места, от ашерите, от ваяните идоли, и от леяните.
3Á áttunda ríkisári sínu, er hann sjálfur var enn ungur að aldri, tók hann að leita Guðs Davíðs, forföður síns, og á tólfta ári tók hann að rýma burt úr Júda og Jerúsalem fórnarhæðum og asérum, skurðgoðum og líkneskjum.
4В неговото присъствие събориха жертвениците на ваалимите; и изсече кумирите на слънцето, които бяха върху тях, и сломи ашерите и ваяните и леяните идоли, и като ги стри на прах, разпръсна го върху гробовете на ония, които бяха им жертвували.
4Ölturu Baalanna voru rifin niður að honum ásjáandi, og sólsúlurnar, er á þeim voru, hjó hann sundur, og asérurnar og skurðgoðin og líkneskin braut hann sundur og muldi þau, og stráði duftinu á grafir þeirra, er höfðu fært þeim fórnir.
5Изгори и костите на жреците на жертвениците им, и [така] очисти Юда и Ерусалим.
5Og bein prestanna brenndi hann á ölturum þeirra, og hreinsaði svo Júda og Jerúsalem.
6[Същото направи] и в градовете на Манасия, Ефрема и Симеона, и дори до Нефталима, всред околните им развалини;
6Og í borgum Manasse og Efraíms og Símeons og allt til Naftalí, allt um kring í eyðiborgum þeirra,
7събори жертвениците, стри на прах ашерите и ваяните идоли, и изсече всичките кумири на слънцето по цялата Израилева земя. Тогава се върна в Ерусалим.
7reif hann niður ölturun, mölvaði og muldi asérurnar og skurðgoðin, og hjó sundur sólsúlurnar í öllu Ísraelslandi. Síðan sneri hann heim aftur til Jerúsalem.
8А в осемнадесетата година на царуването си, когато беше очистил земята и [Божия] дом, прати Сафана, Азалиевия син, и градския началник Маасия, и летописеца Иоах, син на Иоахаза, за да поправят дома на Господа неговия Бог.
8Á átjánda ríkisári hans, meðan hann var að hreinsa landið og musterið, sendi hann Safan Asaljason og Maaseja borgarstjóra og Jóak Jóahasson ríkisritara til þess að láta gjöra við musteri Drottins, Guðs síns.
9И те отидоха при първосвещеника Хелкия, та предадоха парите внесени в Божия дом, които вратарите левити бяха събрали от Манасия и Ефрема, и от всички останали от Израил, и от целия Юда и Вениамина, и от жителите на Ерусалим.
9Og er þeir komu til Hilkía æðsta prests, afhentu þeir fé það, er fært hafði verið musteri Guðs, það er levítarnir, þröskuldsverðirnir, höfðu safnað af Manasse, Efraím og öllum öðrum Ísraelsmönnum, og öllum Júda og Benjamín og Jerúsalembúum.
10Предадоха ги в ръката на работниците, които надзираваха Господния дом; а те ги дадоха на работниците, които работеха в Господния дом, за да поправят и обновят дома, -
10Fengu þeir það í hendur verkstjórunum, þeim er umsjón höfðu með musteri Drottins, en þeir fengu það í hendur verkamönnunum, er unnu að því í musteri Drottins að bæta skemmdir og gjöra við musterið.
11дадоха ги на дърводелците и на зидарите, за да купят дялани камъни и дървета за греди, и да поправят зданията, които Юдовите царе бяха съборили.
11Fengu þeir það í hendur trésmiðunum og byggingamönnunum til þess að kaupa fyrir höggna steina og viðu í tengibjálka, svo og til að fá viðu í hús þau, er Júdakonungar höfðu látið falla.
12И мъжете вършеха работата честно; а надзирателите над тях бяха левитите Яат и Авдия от Мерариевите потомци, Захария и Месулам от Каатовите потомци, за да настояват, а от [другите] левити всички изкусни свирачи на музикални инструменти.
12Unnu mennirnir að verkinu upp á æru og trú, en yfir þá voru settir til umsjónar þeir Jahat og Óbadía, levítar af Meraríniðjum, og Sakaría og Mesúllam af Kahatítaniðjum. Og levítarnir _ hver sá, er kunni á hljóðfæri _
13Имаше още и настойници над бременосците и над всички, които работеха в каква да било работа; а някои от левитите бяха писари, надзиратели и вратари.
13voru settir yfir burðarmennina, og umsjónarmenn voru yfir öllum þeim, er nokkurt starf höfðu á hendi. Nokkrir af levítunum voru og ritarar og tilsjónarmenn og hliðverðir.
14А като изнасяха внесените в Господния дом пари, свещеник Хелкия намери книгата на Господния закон [даден] чрез Моисея.
14En er þeir reiddu fram féð, er borið var í musteri Drottins, fann Hilkía prestur lögmálsbók Drottins, er gefin var fyrir Móse.
15И Хелкия проговаряйки рече на секретаря Сафан: Намерих книгата на закона в Господния дом. И Хелкия даде книгата на Сафана.
15Þá tók Hilkía til máls og mælti við Safan kanslara: ,,Ég hefi fundið lögmálsbókina í musteri Drottins.`` Og Hilkía fékk Safan bókina.
16А Сафан донесе книгата на царя, занесе и дума на царя, казвайки: Слугите ти вършат всичко, що им е определено;
16Fór þá Safan með bókina til konungs og skýrði honum jafnframt frá erindislokum og mælti: ,,Þjónar þínir hafa gjört allt það, er þeim var falið á hendur.
17и събраха намерените в Господния дом пари, и ги предадоха в ръката на настоятелите и в ръката на работниците.
17Þeir hafa og afhent fé það, er var í musteri Drottins, og fengið í hendur umsjónarmönnunum og verkstjórunum.``
18Тоже секретарят Сафан извести на царя, казвайки: Свещеник Хелкия ми даде една книга. И Сафан я прочете пред царя.
18Og Safan kanslari sagði konungi frá og mælti: ,,Hilkía prestur fékk mér bók.`` Og Safan las í henni fyrir konungi.
19А царят, като чу думите на закона, раздра дрехите си.
19En er konungur heyrði lögmálsorðin, reif hann klæði sín.
20И царят заповяда на Хелкия, на Ахикама Сафановия син, на Авдона {В 4 Цар. 22:12, Аховор.}, Михеевия син, на секретаря Сафан и на царевия слуга Асаия, казвайки:
20Og konungur bauð þeim Hilkía, Ahíkam Safanssyni, Abdón Míkajasyni, Safan kanslara og Asaja konungsþjóni á þessa leið:
21Идете, допитайте се до Господа за мене и за останалите в Израиля и в Юда, относно думите на намерената книга; защото голям е Господният гняв, който се изля на нас, понеже бащите ни не опазиха Господното слово да постъпват напълно според както е писано в тая книга.
21,,Farið og gangið til frétta við Drottin fyrir mig og fyrir leifarnar af Ísrael og Júda um bókina, sem fundin er, því að mikil er heift Drottins, er hann hefir úthellt yfir oss, af því að feður vorir hafa eigi gefið gætur að boði Drottins með því að gjöra að öllu svo sem skrifað er í bók þessari.``
22И така, Хелкия и ония, които царят [беше определил], отидоха при пророчицата Олда, жена на одеждопазителя Селум, син на Текуя, Арасовия син. А тя живееше в Ерусалим, във втория участък; и те й говориха според поръчаното.
22Fór þá Hilkía með þeim, er konungur hafði til þess kvatt, til Huldu spákonu, konu Sallúms Tókhatssonar, Hasrasonar, klæðageymis. Bjó hún í Jerúsalem í öðru borgarhverfi, og töluðu þeir við hana um þetta.
23И тя им рече: Така казва Господ Израилевият Бог: Кажете на човека, който ви е пратил до мене:
23Hún mælti við þá: ,,Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Segið manninum, er sendi yður til mín:
24Така казва Господ: Ето, Аз ще докарам зло на това място и на жителите му, всичките проклетии написани в книгата, която прочетоха пред Юдовия цар.
24Svo segir Drottinn: Sjá, ég leiði ógæfu yfir þennan stað og íbúa hans, allar þær formælingar, er ritaðar eru í bókinni, er lesin var fyrir Júdakonungi,
25Понеже Ме оставиха и кадяха на други богове, та Ме разгневиха с всичките си дела на ръцете си, затова гневът Ми ще се излее на това място, и няма да угасне.
25fyrir því að þeir hafa yfirgefið mig og fært öðrum guðum reykelsisfórnir og egnt mig til reiði með öllum handaverkum sínum, þess vegna úthellti ég reiði minni yfir þennan stað, og hún skal eigi slokkna.
26Но на Юдовия цар, който ви прати да се допитате до Господа, така да му кажете: Така казва Господ Израилевият Бог: Относно думите, които ти си чул,
26En segið svo Júdakonungi, þeim er sendi yður til þess að ganga til frétta við Drottin: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels:
27понеже сърцето ти е омекнало, и ти си се смирил пред Бога, когато си чул Неговите думи против това място и против жителите му, и ти си се смирил пред Мене, раздрал си дрехите си, и си плакал пред Мене, затова и Аз те послушах, казва Господ.
27Af því að hjarta þitt hefir komist við og þú hefir auðmýkt þig fyrir Guði, er þú heyrðir orð hans gegn þessum stað og íbúum hans, og af því að þú auðmýktir þig fyrir mér og reifst klæði þín og grést frammi fyrir mér, þá hefi ég bænheyrt þig, _ segir Drottinn.
28Ето, Аз ще те прибера при бащите ти, и ще се прибереш в гроба си с мир; и твоите очи няма да видят нищо от цялото зло, което ще докарам на това място и на жителите му. И те доложиха на царя.
28Sjá, ég vil láta þig safnast til feðra þinna, að þú megir komast með friði í gröf þína, og augu þín þurfi ekki að horfa upp á alla þá ógæfu, er ég leiði yfir þennan stað.`` Fluttu þeir konungi svarið.
29Тогава царят прати та събра всичките Юдови и ерусалимски старейшини.
29Þá sendi konungur og safnaði saman öllum öldungum í Júda og Jerúsalem.
30И царят възлезе в Господния дом, заедно с всичките Юдови мъже и ерусалимските жители, - свещениците, левитите и всичките люде от голям до малък; и прочете на всеослушание пред тях всичките думи от книгата на завета, която се намери в Господния дом.
30Og konungur gekk upp í musteri Drottins og með honum allir Júdamenn og Jerúsalembúar, svo og prestarnir og levítarnir og allur lýðurinn, bæði gamlir og ungir, og hann las í áheyrn þeirra öll orð sáttmálsbókarinnar, er fundist hafði í musteri Drottins.
31И царят застана на мястото си, та направи завет пред Господа да следва Господа, да пази заповедите Му, заявленията Му и повеленията Му с цялото си сърце и с цялата си душа, та да изпълнява думите на завета, които са написани в тая книга.
31Og konungur gekk á sinn stað og gjörði þann sáttmála frammi fyrir Drottni, að fylgja Drottni og varðveita skipanir hans, fyrirmæli og lög af öllu hjarta sínu og allri sálu sinni, til þess að breyta þannig eftir orðum sáttmálans, þeim er rituð voru í þessari bók.
32И накара всички, които се намериха в Ерусалим и във Вениамин, да потвърдят [завета]. И ерусалимските жители постъпиха според завета на Бога, Бога на бащите си.
32Og hann lét alla þá, er voru í Jerúsalem og Benjamín, gangast undir sáttmálann, og Jerúsalembúar breyttu samkvæmt sáttmála Guðs, Guðs feðra þeirra.En Jósía afnam allar svívirðingar úr öllum héruðum Ísraelsmanna, og þröngvaði öllum þeim, er voru í Ísrael, til þess að þjóna Drottni Guði sínum. Meðan hann var á lífi, viku þeir eigi frá því að fylgja Drottni, Guði feðra sinna.
33И Иосия отмахна всичките мерзости от всичките места принадлежащи на израилтяните, и накара всички, които се намериха в Израил, да служат, да служат на Господа своя Бог; през всичките му дни те не се отклониха от следване Господа Бога на бащите си.
33En Jósía afnam allar svívirðingar úr öllum héruðum Ísraelsmanna, og þröngvaði öllum þeim, er voru í Ísrael, til þess að þjóna Drottni Guði sínum. Meðan hann var á lífi, viku þeir eigi frá því að fylgja Drottni, Guði feðra sinna.