1 Agor dy byrth, O Lebanon, er mwyn i d�n ysu dy gedrwydd.
1Upp lúk dyrum þínum, Líbanon, til þess að eldur geti eytt sedrustrjám þínum.
2 Galarwch, ffynidwydd; oherwydd syrthiodd y cedrwydd, dinistriwyd y coed cryfion. Galarwch, dderw Basan, oherwydd syrthiodd y goedwig drwchus.
2Kveina þú, kýprestré, yfir því að sedrustréð er fallið. Kveinið þér, Basans eikur, yfir því að hinn þykki skógurinn liggur við velli.
3 Clywch alarnadu'r bugeiliaid, am i'w gogoniant gael ei ddinistrio; clywch ru'r llewod, am i goedwig yr Iorddonen gael ei difetha.
3Heyr, hversu hirðarnir kveina, af því að prýði þeirra er eyðilögð. Heyr, hversu ungljónin öskra, af því að vegsemd Jórdanar er eydd.
4 Fel hyn y dywed yr ARGLWYDD fy Nuw: "Portha'r praidd sydd i'w lladd.
4Svo sagði Drottinn, Guð minn: Hald til haga skurðarsauðunum,
5 Bydd y sawl sy'n eu prynu yn eu lladd heb deimlo'n euog; bydd y sawl sy'n eu gwerthu yn dweud, 'Bendigedig fo'r ARGLWYDD, cefais gyfoeth'; ac ni fydd eu bugeiliaid yn tosturio wrthynt.
5er kaupendur þeirra slátra að ósekju, og seljendur þeirra segja: ,,Lofaður sé Drottinn, nú er ég orðinn ríkur!`` og hirðar þeirra vægja þeim ekki.
6 Yn wir, ni thosturiaf mwy wrth drigolion y wlad," medd yr ARGLWYDD. "Wele fi'n gwneud i bawb syrthio i ddwylo'i gilydd ac i ddwylo'u brenin; ac fel y dinistrir y wlad, ni waredaf neb o'u gafael."
6Því að nú vil ég ekki framar vægja íbúum landsins _ segir Drottinn _ heldur framsel ég nú sjálfur mennina, hvern í hendur konungi sínum. Þeir munu eyða landið, og ég mun engan frelsa undan valdi þeirra.
7 Porthais y praidd a oedd i'w lladd ar gyfer y marchnatwyr. Cymerais ddwy ffon, a galw'r naill, Trugaredd, a'r llall, Undeb; a phorthais y praidd.
7Þá hélt ég til haga skurðarsauðunum fyrir fjárkaupmennina, og tók ég mér tvo stafi. Kallaði ég annan þeirra Hylli og hinn Sameining. Gætti ég nú fjárins
8 Mewn un mis diswyddais dri o'r bugeiliaid am imi flino arnynt, ac yr oeddent hwythau'n fy nghas�u innau.
8og afmáði þrjá hirða á einum mánuði. Varð ég leiður á þeim, og þeir höfðu einnig óbeit á mér.
9 Yna dywedais, "Ni fugeiliaf chwi; y rhai sydd i farw, bydded iddynt farw, a'r rhai sydd i'w dinistrio, bydded iddynt fynd i ddinistr; a bydded i'r rhai sy'n weddill fwyta cnawd ei gilydd."
9Þá sagði ég: ,,Ég vil ekki gæta yðar. Deyi það sem deyja vill, farist það sem farast vill, og það sem þá verður eftir, eti hvað annað upp.``
10 A chymerais fy ffon Trugaredd a'i thorri, gan ddiddymu'r cyfamod a wneuthum �'r holl bobloedd.
10Síðan tók ég staf minn Hylli og braut í sundur til þess að bregða þeim sáttmála, sem ég hafði gjört við allar þjóðir.
11 Fe'i diddymwyd y dydd hwnnw, a gwyddai'r marchnatwyr a edrychai arnaf mai gair yr ARGLWYDD oedd hyn.
11En er honum var brugðið á þeim degi, þá könnuðust fjárkaupmennirnir við, þeir er gáfu mér gaum, að þetta var orð Drottins.
12 A dywedais wrthynt, "Os yw'n dderbyniol gennych, rhowch imi fy nghyflog; os nad yw, peidiwch." A bu iddynt hwythau bwyso fy nghyflog, deg darn ar hugain o arian.
12Þá sagði ég við þá: ,,Ef yður þóknast, þá greiðið mér kaup mitt, en að öðrum kosti látið það vera!`` Þá vógu þeir mér þrjátíu sikla silfurs í kaup mitt.
13 Yna dywedodd yr ARGLWYDD wrthyf, "Bwrw ef i'r drysorfa � y pris teg a osodwyd arnaf, i'm troi ymaith!" A chymerais y deg darn ar hugain a'u bwrw i'r drysorfa yn nhu375?'r ARGLWYDD.
13En Drottinn sagði við mig: ,,Kasta þú því til leirkerasmiðsins, hinu dýra verðinu, er þú varst metinn af þeim!`` Og ég tók þá þrjátíu sikla silfurs og kastaði þeim til leirkerasmiðsins í musteri Drottins.
14 Yna torrais yr ail ffon, Undeb, gan ddiddymu'r frawdoliaeth rhwng Jwda ac Israel.
14Síðan braut ég sundur hinn stafinn, Sameining, til þess að bregða upp bræðralaginu milli Júda og Ísrael.
15 Yna dywedodd yr ARGLWYDD wrthyf, "Cymer eto offer bugail diwerth,
15Því næst sagði Drottinn við mig: Tak þér enn verkfæri heimsks hirðis,
16 oherwydd yr wyf yn codi yn y wlad fugail na fydd yn gofalu am y ddafad golledig, nac yn ceisio'r grwydredig, nac yn gwella'r friwedig, nac yn porthi'r iach, ond a fydd yn bwyta cnawd y rhai bras ac yn rhwygo'u traed i ffwrdd.
16því að sjá, ég ætla sjálfur að láta hirði rísa upp í landinu, sem vitjar ekki þess, sem er að farast, leitar ekki þess, sem villst hefir, græðir ekki hið limlesta, annast ekki hið heilbrigða, heldur etur kjötið af feitu skepnunum og rífur klaufirnar af þeim.Vei hinum ónýta hirði, sem yfirgefur sauðina. Glötun komi yfir armlegg hans og yfir hægra auga hans! Armleggur hans visni gjörsamlega, og hægra auga hans verði steinblint.
17 Gwae'r bugail diwerth, sy'n gadael y praidd. Trawed y cleddyf ei fraich a'i lygad de; bydded ei fraich yn gwbl ddiffrwyth, a'i lygad de yn hollol ddall."
17Vei hinum ónýta hirði, sem yfirgefur sauðina. Glötun komi yfir armlegg hans og yfir hægra auga hans! Armleggur hans visni gjörsamlega, og hægra auga hans verði steinblint.