Danish

Icelandic

1 Kings

21

1Derefter hændte følgende. Jizrae'eliten Nabot havde en Vingård i Jizre'el lige ved Kong Akab af Samarias Palads.
1Eftir þetta bar það til, er nú skal greina: Nabót Jesreelíti átti víngarð í Jesreel, rétt hjá höll Akabs konungs í Samaríu.
2Akab sagde til Nabot: "Overlad mig din Vingård, for at jeg kan få den til Køkkenhave; den ligger jo lige ved mit Palads; jeg vil give dig en bedre Vingård i Bytte eller betale dig, hvad den er værd, i rede Penge, om du foretrækker det."
2Og Akab kom að máli við Nabót og sagði: ,,Lát mig fá víngarð þinn, að ég megi hafa hann að matjurtagarði, því að hann er í nánd við hús mitt, og ég skal láta þig fá fyrir hann betri víngarð, eða, ef þú vilt það heldur, þá skal ég greiða þér andvirði hans í peningum.``
3Men Nabot svarede Akab: "HERREN bevare mig fra at overlade dig mine Fædres Arvelod!"
3En Nabót sagði við Akab: ,,Drottinn forði mér frá að farga til þín arfleifð feðra minna.``
4Så gik Akab hjem, misfornøjet og ilde til Mode over det Svar, Jizre'eliten Nabot havde givet ham: "Jeg vil ikke overlade dig mine Fædres Arvelod!" Og han lagde sig til Sengs, vendte sit Ansigt bort og spiste ikke.
4Þá kom Akab heim í höll sína, hryggur og reiður út af því, sem Nabót Jesreelíti hafði sagt við hann, er hann mælti: ,Ég farga ekki til þín arfleifð feðra minna.` Og hann lagðist í rekkju og sneri sér til veggjar og neytti eigi matar.
5Da kom hans Hustru Jesabel ind og sagde til ham: "Hvorfor er du så misfornøjet, og hvorfor spiser du ikke?"
5Þá kom Jesebel kona hans til hans og sagði við hann: ,,Hví ert þú svo hryggur í skapi, að þú vilt ekki matar neyta?``
6Han svarede hende: "Jo, jeg sagde til Jizreeliten Nabot: Overlad mig din Vingård for rede Penge, eller mod at jeg giver dig en anden Vingård i Bytte, om du hellere vil det! Men han svarede: Jeg vil ikke overlade dig min Vingård!"
6Hann svaraði henni: ,,Komi ég að máli við Nabót Jesreelíta og segi við hann: ,Lát mig fá víngarð þinn fyrir peninga, eða, ef þú vilt það heldur, þá skal ég láta þig fá fyrir hann annan víngarð,` þá segir hann: ,Ég farga ekki víngarði mínum til þín.```
7Da sagde hans Hustru Jesabel til ham: "Er det dig, der for Tiden er Konge i Israel? Stå op, spis og vær ved godt Mod, jeg skal skaffe dig Jizre'eliten Nabots Vingård!"
7Þá mælti Jesebel kona hans við hann: ,,Ert þú sá, sem nú hefir konungsvald í Ísrael? Rís þú upp, neyt matar og lát liggja vel á þér. Ég skal útvega þér víngarð Nabóts Jesreelíta.``
8Derpå skrev hun et Brev i Akabs Navn, satte hans Segl under og sendte det til de Ældste og de fornemme i Nabots By, dem, han boede imellem.
8Síðan skrifaði hún bréf undir nafni Akabs og innsiglaði það með innsigli hans og sendi bréfið til öldunga og tignarmanna borgar Nabóts, samborgarmanna hans.
9I Brevet havde hun skrevet: "Udråb en Fastedag og sæt Nabot øverst blandt Folket
9En í bréfinu skrifaði hún á þessa leið: ,,Látið boða föstu og látið Nabót sitja efstan meðal fólksins,
10og lige over for ham to Niddinger, som kan vidne imod ham og sige: Du har forbandet Gud og Kongen! Og før ham så ud og sten ham til Døde!"
10og látið tvö varmenni sitja gegnt honum, er vitni gegn honum, og segi: ,Þú hefir lastmælt Guði og konunginum!` Leiðið hann síðan út og grýtið hann til bana.``
11Hans Bysbørn, de Ældste og de fornemme, som boede i hans By, gjorde nu, som Jesabel havde sendt Bud til dem om, således som der stod i Brevet, hun havde sendt dem;
11Og samborgarmenn hans, öldungarnir og tignarmennirnir, sem bjuggu í borg hans, gjörðu eins og Jesebel hafði gjört þeim boð um, eins og skrifað var í bréfinu, sem hún hafði sent þeim.
12de udråbte en Fastedag og satte Nabot øverst blandt Folket;
12Þeir létu boða föstu og létu Nabót sitja efstan meðal fólksins.
13og de to Niddinger kom og satte sig lige over for ham og vidnede imod ham i Folkets Påhør og sagde: "Nabot har forbandet Gud og Kongen!" Og derpå førte de ham uden for Byen og stenede ham til Døde.
13Síðan komu varmennin tvö og settust gegnt honum. Og varmennin vitnuðu gegn Nabót í áheyrn fólksins og sögðu: ,,Nabót hefir lastmælt Guði og konunginum.`` Og þeir leiddu hann út fyrir borgina og lömdu hann grjóti til bana.
14Så sendte de Jesabel det Bud: "Nabot er stenet til Døde!"
14Síðan sendu þeir til Jesebelar og létu segja: ,,Nabót var grýttur og er dauður.``
15Og da Jesabel hørte, at Nabot var stenet til Døde, sagde hun til Akab: "Stå op og tag Jizre'eliten Nabots Vingård, som han vægrede sig ved at sælge dig, i Besiddelse, thi Nabot lever ikke mere, han er død!"
15Þegar Jesebel heyrði, að Nabót hefði grýttur verið og væri dauður, þá sagði hún við Akab: ,,Rís nú á fætur og kasta eign þinni á víngarð Nabóts Jesreelíta, sem hann vildi eigi láta falan við þig fyrir peninga, því að Nabót er nú ekki á lífi, heldur er hann dauður.``
16Så snart Akab hørte, at Nabot var død, rejste han sig og gik ned til Jizre'eliten Nabots Vingård for at tage den i Besiddelse.
16Og er Akab heyrði, að Nabót væri dauður, reis hann á fætur og fór ofan í víngarð Nabóts Jesreelíta til þess að kasta á hann eign sinni.
17Men HERRENs Ord kom til Tisjbiten Elias således:
17En orð Drottins kom til Elía Tisbíta, svolátandi:
18"Stå op, gå Akab, Israels Konge i Samaria, i Møde; han er just i Nabots Vingård, som han er gået ned at tage i Besiddelse.
18,,Tak þú þig upp, far ofan eftir, til fundar við Akab Ísraelskonung, sem býr í Samaríu. Hann er nú í víngarði Nabóts. Er hann farinn þangað ofan til þess að kasta á hann eign sinni.
19Og tal således til ham: Så siger HERREN: Har du myrdet og allerede tiltrådt Arven? Sig fremdeles til ham: Så siger HERREN: På samme Sted, Hundene slikkede Nabots Blod, skal de også slikke dit!"
19Mæl þú til hans á þessa leið: ,Svo segir Drottinn: Hefir þú myrt og líka tekið eignina?` Og mæl enn fremur til hans: ,Svo segir Drottinn: Þar sem hundarnir sleiktu blóð Nabóts, þar skulu og hundar sleikja þitt blóð.```
20Da sagde Akab til Elias: "Har du fundet mig, min Fjende?" Og han svarede: "Ja, jeg har fundet dig! Fordi du har solgt dig selv til at gøre, hvad der er ondt i HERRENs Øjne,
20Og Akab sagði við Elía: ,,Hefir þú fundið mig, fjandmaður minn?`` Hann svaraði: ,,Hefi ég víst. Af því að þú hefir ofurselt þig til að gjöra það, sem illt er í augum Drottins,
21se, derfor vil jeg bringe Ulykke over dig og feje dig bort og udrydde hvert mandligt Væsen, store og små, af Akabs Slægt, i Israel;
21þá leiði ég ógæfu yfir þig og sópa þér burt og uppræti hvern karlmann af ætt Akabs, bæði þræl og frelsingja í Ísrael.
22jeg vil handle med dit Hus som med Jeroboams, Nebats Søns, Hus og Basjas, Abijas Søns, Hus for den Krænkelse, du har øvet, og fordi du har forledt Israel til Synd.
22Og ég mun fara með ætt þína eins og með ætt Jeróbóams Nebatssonar og ætt Basa Ahíasonar vegna reiði þeirrar, er þú hefir egnt mig til, og af því að þú hefir komið Ísrael til að syndga.``
23Men også om Jesabel har HERREN talet og sagt: Hundene skal æde Jesabel på Jizre'els Mark!
23Og einnig um Jesebel talaði Drottinn á þessa leið: ,,Hundar skulu eta Jesebel hjá Jesreelmúrum.
24Den af Akabs Slægt, der dør i Byen, skal Hundene æde, og den, der dør på Marken, skal Himmelens Fugle æde!"
24Hvern þann, er deyr af Akabsætt innan borgar, munu hundar eta, og hvern þann, sem deyr úti á víðavangi, munu fuglar himins eta.``
25Aldrig har der været nogen der som Akab solgte sig selv til at gøre, hvad der er ondt i HERRENs Øjne, fordi hans Hustru Jesabel forledte ham dertil;
25Alls enginn hefir verið, er ofurselt hafi sig, eins og Akab, til að gjöra það sem illt var í augum Drottins, og ginnti Jesebel kona hans hann til þess.
26han handlede såre vederstyggeligt, idet han boldt sig til Afgudsbillederne ganske som Amoriterne, dem, HERREN drev bort foran Israeliterne.
26Og hann breytti mjög svívirðilega með því að elta skurðgoðin, alveg eins og Amorítar gjörðu, þeir er Drottinn stökkti burt undan Ísraelsmönnum.
27Da Akab hørte de Ord, sønderrev han sine Klæder og bandt Sæk om sin bare Krop og fastede, og han sov i Sæk og gik sagtelig om.
27En er Akab heyrði þessi orð, reif hann klæði sín og lagði hærusekk á bert hold sitt og fastaði. Og hann svaf í hærusekknum og gekk hljóðlega.
28Da kom HERRENs Ord til Tisjbiten Elias således:.
28Þá kom orð Drottins til Elía Tisbíta, svolátandi:,,Hefir þú séð, hversu Akab lægir sig fyrir mér? Af því að hann hefir lægt sig fyrir mér, mun ég eigi leiða ógæfuna yfir meðan hann lifir, en á dögum sonar hans mun ég leiða ógæfuna yfir ætt hans.``
29"Har du set, hvorledes Akab ydmyger sig for mig? Fordi han ydmyger sig for mig, vil jeg ikke lade Ulykken komme i hans Dage; i hans Søns Dage vil jeg lade Ulykken komme over hans Hus!"
29,,Hefir þú séð, hversu Akab lægir sig fyrir mér? Af því að hann hefir lægt sig fyrir mér, mun ég eigi leiða ógæfuna yfir meðan hann lifir, en á dögum sonar hans mun ég leiða ógæfuna yfir ætt hans.``