1Der På brød Abraham op derfra til Sydlandet og slog sig ned mellem Kadesj og Sjur og boede som fremmed i Gerar.
1Nú flutti Abraham sig þaðan til Suðurlandsins og settist að milli Kades og Súr og dvaldist um hríð í Gerar.
2Da nu Abraham sagde om sin Hustru Sara, at hun var hans Søster, sendte Kong Abimelek af Gerar Bud og lod Sara hente til sig.
2Og Abraham sagði um Söru konu sína: ,,Hún er systir mín.`` Þá sendi Abímelek konungur í Gerar menn og lét sækja Söru.
3Men Gud kom til Abimelek i en Drøm om Natten og sagde til ham: "Se, du skal dø for den Kvindes Skyld, som du har taget, thi hun er en anden Mands Hustru!"
3En Guð kom til Abímeleks í draumi um nóttina og sagði við hann: ,,Sjá, þú skalt deyja vegna konu þeirrar, sem þú hefir tekið, því að hún er gift kona.``
4Abimelek var imidlertid ikke kommet hende nær; og han sagde: "Herre, vil du virkelig.slå retfærdige Folk ihjel?
4En Abímelek hafði ekki komið nærri henni. Og hann sagði: ,,Drottinn, munt þú einnig vilja deyða saklaust fólk?
5Har han ikke sagt mig, at hun er hans Søster? Og hun selv har også sagt, at han er hendes Broder; i mit Hjertes Troskyldighed og med rene Hænder har jeg gjort dette."
5Hefir hann ekki sagt við mig: ,Hún er systir mín`? og hún sjálf hefir einnig sagt: ,Hann er bróðir minn?` Í einlægni hjarta míns og með hreinum höndum hefi ég gjört þetta.``
6Da sagde Gud til ham i Drømmen: "Jeg ved, at du har gjort det i dit Hjertes Troskyldighed, og jeg har også hindret dig i at synde imod mig; derfor tilstedte jeg dig ikke at røre hende.
6Og Guð sagði við hann í draumnum: ,,Víst veit ég, að þú gjörðir þetta í einlægni hjarta þíns, og ég hefi einnig varðveitt þig frá að syndga gegn mér. Fyrir því leyfði ég þér ekki að snerta hana.
7Men send nu Mandens Hustru tilbage, thi han er en Profet, så han kan gå i Forbøn for dig, og du kan blive i Live; men sender du hende ikke tilbage, så vid, at du og alle dine er dødsens!"
7Fá því nú manninum konu hans aftur, því að hann er spámaður, og mun hann biðja fyrir þér, að þú megir lífi halda. En ef þú skilar henni ekki aftur, þá skalt þú vita, að þú munt vissulega deyja, þú og allir, sem þér tilheyra.``
8Tidligt næste Morgen lod Abimelek alle sine Tjenere kalde og fortalte dem det hele, og Mændene blev såre forfærdede.
8Abímelek reis árla um morguninn og kallaði til sín alla þjóna sína og greindi þeim frá öllu þessu. Og mennirnir urðu mjög óttaslegnir.
9Men Abimelek lod Abraham kalde og sagde til ham: "Hvad har du dog gjort imod os? Og hvad har jeg forbrudt imod dig, at du bragte denne store Synd over mig og mit Rige? Du har gjort imod mig, hvad man ikke bør gøre!"
9Og Abímelek lét kalla Abraham til sín og sagði við hann: ,,Hvað hefir þú gjört oss? Og hvað hefi ég misgjört við þig, að þú skyldir leiða svo stóra synd yfir mig og ríki mitt? Verk, sem enginn skyldi fremja, hefir þú framið gegn mér.``
10Og Abimelek sagde til Abraham: "Hvad bragte dig til at handle således?"
10Og Abímelek sagði við Abraham: ,,Hvað gekk þér til að gjöra þetta?``
11Abraham svarede: "Jo, jeg tænkte: Her er sikkert ingen Gudsfrygt på dette Sted, så de vil slå mig ihjel for min Hustrus Skyld.
11Þá mælti Abraham: ,,Ég hugsaði: ,Vart mun nokkur guðsótti vera á þessum stað, og þeir munu drepa mig vegna konu minnar.`
12Desuden er hun virkelig min Søster, min Faders Datter, kun ikke min Moders; men hun blev min Hustru.
12Og þar að auki er hún sannlega systir mín, samfeðra, þótt eigi séum við sammæðra, og hún varð kona mín.
13Og da nu Gud lod mig flakke om fjernt fra min Faders Hus, sagde jeg til hende: Den Godhed må du vise mig, at du overalt, hvor vi kommer hen, siger, at jeg er din Broder."
13Og þegar Guð lét mig fara úr húsi föður míns, sagði ég við hana: ,Þessa góðsemi verður þú að sýna mér: Hvar sem við komum, þá segðu um mig: Hann er bróðir minn.```
14Derpå tog Abimelelk Småkvæg og Hornkvæg, Trælle og Trælkvinder og gav Abraham dem og sendte hans Hustru Sara tilbage til ham;
14Þá tók Abímelek sauði, naut, þræla og ambáttir og gaf Abraham og fékk honum aftur Söru konu hans.
15og Abimelek sagde til ham: "Se, mit Land ligger åbent for dig; slå dig ned, hvor du lyster!"
15Og Abímelek sagði: ,,Sjá, land mitt stendur þér til boða. Bú þú þar sem þér best líkar.``
16Men til Sara sagde han: "Jeg har givet din Broder 1000 Sekel Sølv, det skal være dig Godtgørelse for alt, hvad der er tilstødt dig. Hermed har du fået fuld Oprejsning."
16Og við Söru sagði hann: ,,Sjá, ég gef bróður þínum þúsund sikla silfurs. Sjá, það sé þér uppreist í augum allra þeirra, sem með þér eru, og ert þú þannig réttlætt fyrir öllum.``
17Men Abraham gik i Forbøn hos Gud, og Gud helbredte Abimelek og hans Hustru og Medhustruer, så at de atter fik Børn.
17Og Abraham bað til Guðs fyrir honum, og Guð læknaði Abímelek og konu hans og ambáttir, svo að þær ólu börn.Því að Drottinn hafði lokað sérhverjum móðurkviði í húsi Abímeleks sakir Söru, konu Abrahams.
18HERREN havde nemlig lukket for ethvert Moderliv i Abimeleks Hus for Abrahams Hustru Saras Skyld.
18Því að Drottinn hafði lokað sérhverjum móðurkviði í húsi Abímeleks sakir Söru, konu Abrahams.