1And I saw when the Lamb opened one of the seven seals, and I heard one of the four living creatures saying, as a voice of thunder, Come [and see].
1Og ég sá, er lambið lauk upp einu af innsiglunum sjö, og ég heyrði eina af verunum fjórum segja eins og með þrumuraust: ,,Kom!``
2And I saw: and behold, a white horse, and he that sat upon it having a bow; and a crown was given to him, and he went forth conquering and that he might conquer.
2Og ég sá, og sjá: Hvítur hestur, og sá sem á honum sat hafði boga, og honum var fengin kóróna og hann fór út sigrandi og til þess að sigra.
3And when it opened the second seal, I heard the second living creature saying, Come [and see].
3Þegar lambið lauk upp öðru innsiglinu, heyrði ég aðra veruna segja: ,,Kom!``
4And another, a red horse, went forth; and to him that sat upon it, to him it was given to take peace from the earth, and that they should slay one another; and there was given to him a great sword.
4Og út gekk annar hestur, rauður, og þeim sem á honum sat var gefið vald að taka burt friðinn af jörðunni, svo að menn brytjuðu hverjir aðra niður. Og honum var fengið sverð mikið.
5And when it opened the third seal, I heard the third living creature saying, Come [and see]. And I saw: and behold, a black horse, and he that sat upon it having a balance in his hand.
5Þegar lambið lauk upp þriðja innsiglinu, heyrði ég þriðju veruna segja: ,,Kom!`` Og ég sá, og sjá: Svartur hestur, og sá er á honum sat hafði vog í hendi sér.
6And I heard as a voice in the midst of the four living creatures saying, A choenix of wheat for a denarius, and three choenixes of barley for a denarius: and do not injure the oil and the wine.
6Og mitt á meðal veranna fjögurra heyrði ég eins konar rödd er sagði: ,,Mælir hveitis fyrir daglaun og þrír mælar byggs fyrir daglaun, en eigi skalt þú spilla olíunni og víninu.``
7And when it opened the fourth seal, I heard [the voice of] the fourth living creature saying, Come [and see].
7Þegar lambið lauk upp fjórða innsiglinu, heyrði ég rödd fjórðu verunnar, er sagði: ,,Kom!``
8And I saw: and behold, a pale horse, and he that sat upon it, his name [was] Death, and hades followed with him; and authority was given to him over the fourth of the earth to slay with sword, and with hunger, and with death, and by the beasts of the earth.
8Og ég sá, og sjá: Bleikur hestur, og sá er á honum sat, hann hét Dauði, og Hel var í för með honum. Þeim var gefið vald yfir fjórða hluta jarðarinnar, til þess að deyða með sverði, með hungri og drepsótt og láta menn farast fyrir villidýrum jarðarinnar.
9And when it opened the fifth seal, I saw underneath the altar the souls of them that had been slain for the word of God, and for the testimony which they held;
9Þegar lambið lauk upp fimmta innsiglinu, sá ég undir altarinu sálir þeirra manna, sem drepnir höfðu verið fyrir sakir Guðs orðs og fyrir sakir vitnisburðarins, sem þeir höfðu.
10and they cried with a loud voice, saying, How long, O sovereign Ruler, holy and true, dost thou not judge and avenge our blood on them that dwell upon the earth?
10Og þeir hrópuðu hárri röddu og sögðu: ,,Hversu lengi ætlar þú, Herra, þú heilagi og sanni, að draga það að dæma og hefna blóðs vors á byggjendum jarðarinnar?``
11And there was given to them, to each one a white robe; and it was said to them that they should rest yet a little while, until both their fellow-bondmen and their brethren, who were about to be killed as they, should be fulfilled.
11Og þeim var fengin, hverjum og einum, hvít skikkja. Og þeim var sagt, að þeir skyldu enn hvílast litla hríð, þangað til samþjónar þeirra og bræður þeirra, sem áttu að deyðast eins og sjálfir þeir, einnig fylltu töluna.
12And I saw when it opened the sixth seal, and there was a great earthquake; and the sun became black as hair sackcloth, and the whole moon became as blood,
12Og ég sá, er lambið lauk upp sjötta innsiglinu. Og mikill landskjálfti varð, og sólin varð svört sem hærusekkur, og allt tunglið varð sem blóð.
13and the stars of heaven fell upon the earth, as a fig tree, shaken by a great wind, casts its unseasonable figs.
13Og stjörnur himinsins hröpuðu niður á jörðina eins og þegar fíkjutré, skekið af stormvindi, fellir haustaldin sín.
14And the heaven was removed as a book rolled up, and every mountain and island were removed out of their places.
14Og himinninn sviptist burt eins og þegar bókfell vefst saman, og hvert fjall og ey færðist úr stað sínum.
15And the kings of the earth, and the great, and the chiliarchs, and the rich, and the strong, and every bondman and freeman, hid themselves in the caves and in the rocks of the mountains;
15Og konungar jarðarinnar og höfðingjarnir og herforingjarnir og auðmennirnir, mektarmennirnir og hver þræll og þegn fólu sig í hellum og í hömrum fjalla.
16and they say to the mountains and to the rocks, Fall on us, and have us hidden from [the] face of him that sits upon the throne, and from the wrath of the Lamb;
16Og þeir segja við fjöllin og hamrana: ,,Hrynjið yfir oss og felið oss fyrir ásjónu hans, sem í hásætinu situr, og fyrir reiði lambsins;því að kominn er dagurinn, hinn mikli dagur reiði þeirra, og hver mun geta staðist?``
17because the great day of his wrath is come, and who is able to stand?
17því að kominn er dagurinn, hinn mikli dagur reiði þeirra, og hver mun geta staðist?``