1Als es aber Morgen geworden war, hielten alle Hohenpriester und die Ältesten des Volkes einen Rat wider Jesus, um ihn zum Tode zu bringen.
1Að morgni gjörðu allir æðstu prestarnir og öldungar lýðsins samþykkt gegn Jesú, að hann skyldi af lífi tekinn.
2Und sie banden ihn, führten ihn ab und überantworteten ihn dem Landpfleger Pontius Pilatus.
2Þeir létu binda hann og færa brott og framseldu hann Pílatusi landshöfðingja.
3Als nun Judas, der ihn verraten hatte, sah, daß er verurteilt war, reute es ihn; und er brachte die dreißig Silberlinge den Hohenpriestern und den Ältesten zurück
3Þegar Júdas, sem sveik hann, sá, að hann var dæmdur sekur, iðraðist hann og skilaði æðstu prestunum og öldungunum silfurpeningunum þrjátíu
4und sprach: Ich habe gesündigt, daß ich unschuldiges Blut verraten habe! Sie aber sprachen: Was geht das uns an? Da siehe du zu!
4og mælti: ,,Ég drýgði synd, ég sveik saklaust blóð.`` Þeir sögðu: ,,Hvað varðar oss um það? Það er þitt að sjá fyrir því.``
5Da warf er die Silberlinge in den Tempel und machte sich davon, ging hin und erhängte sich.
5Hann fleygði þá silfrinu inn í musterið og hélt brott. Síðan fór hann og hengdi sig.
6Die Hohenpriester aber nahmen die Silberlinge und sprachen: Wir dürfen sie nicht in den Gotteskasten legen, weil es Blutgeld ist.
6Æðstu prestarnir tóku silfrið og sögðu: ,,Ekki má láta það í guðskistuna, því þetta eru blóðpeningar.``
7Nachdem sie aber Rat gehalten, kauften sie dafür den Acker des Töpfers, als Begräbnisstätte für die Fremdlinge.
7Og þeir urðu ásáttir um að kaupa fyrir þá leirkerasmiðs akurinn til grafreits handa útlendingum.
8Daher wird jener Acker Blutacker genannt bis auf den heutigen Tag.
8Þess vegna kallast hann enn í dag Blóðreitur.
9Da wurde erfüllt, was durch den Propheten Jeremia gesagt ist, welcher spricht: «Und sie nahmen die dreißig Silberlinge, den Wert des Geschätzten, den sie geschätzt hatten, von den Kindern Israel
9Þá rættist það, sem sagt var fyrir munn Jeremía spámanns: ,,Þeir tóku silfurpeningana þrjátíu, það verð, sem sá var metinn á, er til verðs var lagður af Ísraels sonum,
10und gaben sie für den Acker des Töpfers, wie der Herr mir befohlen hatte.»
10og keyptu fyrir þá leirkerasmiðs akurinn eins og Drottinn hafði fyrir mig lagt.``
11Jesus aber stand vor dem Landpfleger; und der Landpfleger fragte ihn und sprach: Bist du der König der Juden? Jesus sprach zu ihm: Du sagst es!
11Jesús kom nú fyrir landshöfðingjann. Landshöfðinginn spurði hann: ,,Ert þú konungur Gyðinga?`` Jesús svaraði: ,,Þú segir það.``
12Und als er von den Hohenpriestern und Ältesten verklagt wurde, antwortete er nichts.
12Æðstu prestarnir og öldungarnir báru á hann sakir, en hann svaraði engu.
13Da sprach Pilatus zu ihm: Hörst du nicht, wie vieles sie wider dich zeugen?
13Þá spurði Pílatus hann: ,,Heyrir þú ekki, hve mjög þeir vitna gegn þér?``
14Und er antwortete ihm auch nicht auf ein einziges Wort, so daß der Landpfleger sich sehr verwunderte.
14En hann svaraði honum ekki, engu orði hans, og undraðist landshöfðinginn mjög.
15Aber auf das Fest pflegte der Landpfleger dem Volke einen Gefangenen freizugeben, welchen sie wollten.
15Á hátíðinni var landshöfðinginn vanur að gefa lýðnum lausan einn bandingja, þann er þeir vildu.
16Sie hatten aber damals einen berüchtigten Gefangenen namens Barabbas.
16Þá var þar alræmdur bandingi í haldi, Barabbas að nafni.
17Als sie nun versammelt waren, sprach Pilatus zu ihnen: Welchen wollt ihr, daß ich euch freilasse, Barabbas oder Jesus, den man Christus nennt?
17Sem þeir nú voru saman komnir, sagði Pílatus við þá: ,,Hvorn viljið þér, að ég gefi yður lausan, Barabbas eða Jesú, sem kallast Kristur?``
18Denn er wußte, daß sie ihn aus Neid überantwortet hatten.
18Hann vissi, að þeir höfðu fyrir öfundar sakir framselt hann.
19Als er aber auf dem Richterstuhl saß, sandte sein Weib zu ihm und ließ ihm sagen: Habe du nichts zu schaffen mit diesem Gerechten; denn ich habe heute im Traume seinetwegen viel gelitten!
19Meðan Pílatus sat á dómstólnum, sendi kona hans til hans með þessi orð: ,,Láttu þennan réttláta mann vera, þungir hafa draumar mínir verið í nótt hans vegna.``
20Aber die Hohenpriester und die Ältesten beredeten die Volksmenge, den Barabbas zu erbitten, Jesus aber umbringen zu lassen.
20En æðstu prestarnir og öldungarnir fengu múginn til að biðja um Barabbas, en að Jesús yrði deyddur.
21Der Landpfleger aber antwortete und sprach zu ihnen: Welchen von diesen beiden wollt ihr, daß ich euch frei lasse? Sie sprachen: Den Barabbas!
21Landshöfðinginn spurði: ,,Hvorn þeirra tveggja viljið þér, að ég gefi yður lausan?`` Þeir sögðu: ,,Barabbas.``
22Pilatus spricht zu ihnen: Was soll ich denn mit Jesus tun, den man Christus nennt? Sie sprachen alle zu ihm: Kreuzige ihn!
22Pílatus spyr: ,,Hvað á ég þá að gjöra við Jesú, sem kallast Kristur?`` Þeir segja allir: ,,Krossfestu hann.``
23Da sagte der Landpfleger: Was hat er denn Böses getan? Sie aber schrieen noch viel mehr und sprachen: Kreuzige ihn!
23Hann spurði: ,,Hvað illt hefur hann þá gjört?`` En þeir æptu því meir: ,,Krossfestu hann!``
24Als nun Pilatus sah, daß er nichts ausrichtete, sondern daß vielmehr ein Aufruhr entstand, nahm er Wasser und wusch sich vor dem Volk die Hände und sprach: Ich bin unschuldig an dem Blut dieses Gerechten; sehet ihr zu!
24Nú sér Pílatus, að hann fær ekki að gjört, en ólætin aukast. Hann tók vatn, þvoði hendur sínar frammi fyrir fólkinu og mælti: ,,Sýkn er ég af blóði þessa manns! Svarið þér sjálfir fyrir!``
25Und alles Volk antwortete und sprach: Sein Blut komme über uns und über unsere Kinder!
25Og allur lýðurinn sagði: ,,Komi blóð hans yfir oss og yfir börn vor!``
26Da gab er ihnen den Barabbas los; Jesus aber ließ er geißeln und übergab ihn zur Kreuzigung.
26Þá gaf hann þeim Barabbas lausan, en lét húðstrýkja Jesú og framseldi hann til krossfestingar.
27Da nahmen die Kriegsknechte des Landpflegers Jesus in das Amthaus und versammelten die ganze Rotte um ihn.
27Hermenn landshöfðingjans fóru nú með hann inn í höllina og söfnuðu um hann allri hersveitinni.
28Und sie zogen ihn aus und legten ihm einen Purpurmantel um
28Þeir afklæddu hann og færðu hann í skarlatsrauða kápu,
29und flochten eine Krone von Dornen, setzten sie auf sein Haupt, gaben ihm ein Rohr in die rechte Hand und beugten vor ihm die Knie, verspotteten ihn und sprachen: Sei gegrüßt, König der Juden!
29fléttuðu þyrnikórónu og settu á höfuð honum, en reyrsprota í hægri hönd hans. Síðan féllu þeir á kné fyrir honum og höfðu hann að háði og sögðu: ,,Heill þú, konungur Gyðinga!``
30Dann spieen sie ihn an und nahmen das Rohr und schlugen ihn auf das Haupt.
30Og þeir hræktu á hann, tóku reyrsprotann og slógu hann í höfuðið.
31Und nachdem sie ihn verspottet hatten, zogen sie ihm den Mantel aus und legten ihm seine Kleider an, und dann führten sie ihn hin, um ihn zu kreuzigen.
31Þegar þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr kápunni og í hans eigin klæði. Þá leiddu þeir hann út til að krossfesta hann.
32Als sie aber hinauszogen, fanden sie einen Mann von Kyrene, namens Simon; den zwangen sie, ihm das Kreuz zu tragen.
32Á leiðinni hittu þeir mann frá Kýrene, er Símon hét. Hann neyddu þeir til að bera kross Jesú.
33Und als sie an den Ort kamen, den man Golgatha nennt, das heißt Schädelstätte,
33Og er þeir komu til þess staðar, er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður,
34gaben sie ihm Wein mit Galle vermischt zu trinken; und als er es gekostet hatte, wollte er nicht trinken.
34gáfu þeir honum vín að drekka, galli blandað. Hann bragðaði það, en vildi ekki drekka.
35Nachdem sie ihn nun gekreuzigt hatten, teilten sie seine Kleider unter sich und warfen das Los, auf daß erfüllt würde, was durch den Propheten gesagt ist: «Sie haben meine Kleider unter sich geteilt, und über mein Gewand haben sie das Los geworfen.»
35Þá krossfestu þeir hann. Og þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér,
36Und sie saßen daselbst und hüteten ihn.
36sátu þar svo og gættu hans.
37Und sie befestigten über seinem Haupte die Inschrift seiner Schuld: Dies ist Jesus, der König der Juden.
37Yfir höfði hans festu þeir sakargift hans svo skráða: ÞESSI ER JESÚS, KONUNGUR GYÐINGA.
38Dann wurden mit ihm zwei Räuber gekreuzigt, einer zur Rechten, der andere zur Linken.
38Þá voru krossfestir með honum tveir ræningjar, annar til hægri, hinn til vinstri.
39Die aber vorübergingen, lästerten ihn, schüttelten die Köpfe
39Þeir, sem fram hjá gengu, hæddu hann, skóku höfuð sín
40und sprachen: Der du den Tempel zerstörst und in drei Tagen aufbaust, hilf dir selbst! Bist du Gottes Sohn, so steig vom Kreuze herab!
40og sögðu: ,,Þú sem brýtur niður musterið og reisir það á þrem dögum. Bjarga nú sjálfum þér, ef þú ert sonur Guðs, og stíg niður af krossinum!``
41Gleicherweise spotteten auch die Hohenpriester samt den Schriftgelehrten und Ältesten und sprachen:
41Eins gjörðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og öldungarnir og sögðu:
42Andere hat er gerettet, sich selbst kann er nicht retten. Ist er der König Israels, so steige er nun vom Kreuz herab, so wollen wir ihm glauben!
42,,Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað. Hann er konungur Ísraels, stígi hann nú niður af krossinum, þá skulum vér trúa á hann.
43Er hat auf Gott vertraut, der befreie ihn jetzt, wenn er Lust an ihm hat; denn er hat ja gesagt: Ich bin Gottes Sohn!
43Hann treystir Guði. Nú ætti Guð að frelsa hann, ef hann hefur mætur á honum. Eða sagði hann ekki: ,Ég er sonur Guðs`?``
44Desgleichen schmähten ihn auch die Mörder, die mit ihm gekreuzigt waren.
44Einnig ræningjarnir, sem með honum voru krossfestir, smánuðu hann á sama hátt.
45Aber von der sechsten Stunde an kam eine Finsternis über das ganze Land bis zur neunten Stunde.
45En frá hádegi varð myrkur um allt land til nóns.
46Und um die neunte Stunde rief Jesus mit lauter Stimme: Eli, Eli, lama sabachthani! das heißt: Mein Gott, mein Gott, warum hast du mich verlassen?
46Og um nón kallaði Jesús hárri röddu: ,,Elí, Elí, lama sabaktaní!`` Það þýðir: ,,Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?``
47Etliche der Anwesenden, als sie es hörten, sprachen nun: Der ruft den Elia!
47Nokkrir þeirra, er þar stóðu, heyrðu þetta og sögðu: ,,Hann kallar á Elía!``
48Und alsbald lief einer von ihnen, nahm einen Schwamm, füllte ihn mit Essig, steckte ihn auf ein Rohr und gab ihm zu trinken.
48Jafnskjótt hljóp einn þeirra til, tók njarðarvött og fyllti ediki, stakk á reyrstaf og gaf honum að drekka.
49Die Übrigen aber sprachen: Halt, laßt uns sehen, ob Elia kommt, um ihn zu retten!
49Hinir sögðu: ,,Sjáum til, hvort Elía kemur að bjarga honum.``
50Jesus aber schrie abermals mit lauter Stimme und gab den Geist auf.
50En Jesús hrópaði aftur hárri röddu og gaf upp andann.
51Und siehe, der Vorhang im Tempel riß entzwei von oben bis unten, und die Erde erbebte, und die Felsen spalteten sich.
51Þá rifnaði fortjald musterisins í tvennt, ofan frá og niður úr, jörðin skalf og björgin klofnuðu,
52Und die Gräber öffneten sich, und viele Leiber der entschlafenen Heiligen standen auf
52grafir opnuðust og margir líkamir helgra látinna manna risu upp.
53und gingen aus den Gräbern hervor nach seiner Auferstehung und kamen in die heilige Stadt und erschienen vielen.
53Eftir upprisu Jesú gengu þeir úr gröfum sínum og komu í borgina helgu og birtust mörgum.
54Als aber der Hauptmann und die, welche mit ihm Jesus bewachten, das Erdbeben sahen und was da geschah, fürchteten sie sich sehr und sprachen: Wahrhaftig, dieser war Gottes Sohn!
54Þegar hundraðshöfðinginn og þeir, sem með honum gættu Jesú, sáu landskjálftann og atburði þessa, hræddust þeir mjög og sögðu: ,,Sannarlega var þessi maður sonur Guðs.``
55Es waren aber daselbst viele Frauen, die von ferne zusahen, welche Jesus von Galiläa her gefolgt waren und ihm gedient hatten;
55Þar voru og margar konur, sem álengdar horfðu á, þær höfðu fylgt Jesú frá Galíleu og þjónað honum.
56unter ihnen waren Maria Magdalena, und Maria, die Mutter des Jakobus und Joses, und die Mutter der Söhne des Zebedäus.
56Meðal þeirra var María Magdalena, María, móðir þeirra Jakobs og Jósefs, og móðir Sebedeussona.
57Als es nun Abend wurde, kam ein reicher Mann von Arimathia, namens Joseph, der auch ein Jünger Jesu geworden war.
57Um kvöldið kom auðugur maður frá Arímaþeu, Jósef að nafni, er sjálfur var orðinn lærisveinn Jesú.
58Dieser ging zu Pilatus und bat um den Leib Jesu. Da befahl Pilatus, daß er ihm gegeben werde.
58Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú. Pílatus bauð þá að fá Jósef hann.
59Und Joseph nahm den Leichnam, wickelte ihn in reine Leinwand
59Jósef tók líkið, sveipaði það hreinu línklæði
60und legte ihn in seine neue Gruft, welche er im Felsen hatte aushauen lassen; und er wälzte einen großen Stein vor die Tür der Gruft und ging davon.
60og lagði í nýja gröf, sem hann átti og hafði látið höggva í klett, velti síðan stórum steini fyrir grafarmunnann og fór burt.
61Es waren aber daselbst Maria Magdalena und die andere Maria, die saßen dem Grabe gegenüber.
61María Magdalena var þar og María hin, og sátu þær gegnt gröfinni.
62Am andern Tage nun, welcher auf den Rüsttag folgt, versammelten sich die Hohenpriester und die Pharisäer bei Pilatus
62Næsta dag, daginn eftir aðfangadag, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus
63und sprachen: Herr, wir erinnern uns, daß dieser Verführer sprach, als er noch lebte: Nach drei Tagen werde ich auferstehen.
63og sögðu: ,,Herra, vér minnumst þess, að svikari þessi sagði í lifanda lífi: ,Eftir þrjá daga rís ég upp.`
64So befiehl nun, daß das Grab sicher bewacht werde bis zum dritten Tag, damit nicht etwa seine Jünger kommen, ihn stehlen und zum Volke sagen: Er ist von den Toten auferstanden, und der letzte Betrug ärger werde als der erste.
64Bjóð því, að grafarinnar sé vandlega gætt allt til þriðja dags, ella gætu lærisveinar hans komið og stolið honum og sagt fólkinu: ,Hann er risinn frá dauðum.` Þá verða síðari svikin verri hinum fyrri.``
65Pilatus sprach zu ihnen: Ihr sollt eine Wache haben! Gehet hin und bewacht es, so gut ihr könnt!
65Pílatus sagði við þá: ,,Hér hafið þér varðmenn, farið og búið svo tryggilega um sem best þér kunnið.``Þeir fóru og gengu tryggilega frá gröfinni og innsigluðu steininn með aðstoð varðmannanna.
66Da gingen sie hin, versiegelten den Stein und bewachten das Grab mit der Wache.
66Þeir fóru og gengu tryggilega frá gröfinni og innsigluðu steininn með aðstoð varðmannanna.