1Maður er nefndur Elkana. Hann var frá Ramataím-Sófím, frá Efraímfjöllum; hann var sonur Jeróhams Elíhúsonar, Tóhúsonar, Súfssonar Efraímíta.
1以利加拿携二妻到示罗献祭
2Elkana átti tvær konur. Hét önnur Hanna, en hin Peninna. Peninna átti börn, en Hanna átti engin börn.
2他有两个妻子,一个名叫哈拿,另一个名叫毗尼拿。毗尼拿有孩子,哈拿却没有孩子。
3Þessi maður fór á ári hverju úr borg sinni til þess að biðjast fyrir og til þess að færa Drottni allsherjar fórnir í Síló. En þar voru báðir synir Elí, Hofní og Pínehas, prestar Drottins.
3这人每年都从他的本城上示罗去敬拜,献祭给万军之耶和华。在示罗有以利的两个儿子,何弗尼和非尼哈,作耶和华的祭司。
4Í hvert sinn er Elkana fórnaði, þá gaf hann Peninnu, konu sinni, og öllum sonum hennar og dætrum sinn hlut hverju.
4以利加拿在献祭的那天,就把祭肉分给妻子毗尼拿和她所有的儿女。
5Hann gaf Hönnu ekki nema einn hlut, þótt hann elskaði hana, en Drottinn hafði lokað móðurkviði hennar.
5但他当面只分给哈拿一份;他虽然爱哈拿,耶和华却使哈拿不能怀孕。
6Elja hennar skapraunaði henni einnig til þess að reita hana til reiði, af því að Drottinn hafði lokað móðurkviði hennar.
6因为耶和华使哈拿不能怀孕,她的对头就尽力刺激她,使她苦恼。
7Svo gjörði Elkana ár eftir ár, í hvert skipti sem þau fóru upp til húss Drottins, og þannig skapraunaði hún henni. Hanna grét og neytti eigi matar.
7年年都是这样;每逢她上耶和华殿的时候,毗尼拿总是刺激哈拿,使她哭泣,吃不下饭。
8Þá sagði Elkana, maður hennar, við hana: ,,Hanna, hví grætur þú og hví neytir þú eigi matar og hví liggur svo illa á þér? Er ég þér ekki betri en tíu synir?``
8她的丈夫以利加拿对她说:“哈拿,你为什么哭泣?为什么不吃饭,为什么心里难过呢?你有我不是比有十个儿子更好吗?”
9Og Hanna stóð upp, þá er þau höfðu etið í Síló og þá er þau höfðu drukkið. En Elí prestur sat á stól við dyrastafinn á musteri Drottins.
9哈拿求子哈拿在示罗吃喝完了,就起来。(那时以利祭司在耶和华殿的门柱旁边,坐在椅子上。)
10Hanna var sárhrygg. Hún bað til Drottins og grét mjög,
10她心里愁苦,就向耶和华祷告,流泪痛哭,
11gjörði heit og mælti: ,,Drottinn allsherjar! Ef þú lítur á eymd ambáttar þinnar og minnist mín og gleymir eigi ambátt þinni og gefur ambátt þinni son, þá skal ég gefa hann Drottni alla daga ævi hans, og eigi skal rakhnífur koma á höfuð honum.``
11并且许愿,说:“万军之耶和华啊,你若是看顾使女的困苦,记念我,不忘记你的使女,赐给使女一个儿子,我就必把他一生献给耶和华,不剃他的头。”
12Er hún gjörði lengi bæn sína fyrir augliti Drottins, og Elí tók eftir munni hennar, _
12哈拿向耶和华祷告了很久,以利一直在注视她的嘴。
13en Hanna mæltist fyrir í hljóði; bærðust aðeins varirnar, en rödd hennar heyrðist ekki _, þá hélt Elí, að hún væri drukkin.
13原来哈拿是在心中诉说,只见她的嘴唇在动,却听不见她的声音,因此以利以为她是个喝醉了的女人。
14Þá sagði Elí við hana: ,,Hversu lengi ætlar þú að láta sjá þig drukkna? Láttu vímuna renna af þér!``
14以利就对她说:“你要醉到几时呢?快快醒过来吧!”
15Hanna svaraði og sagði: ,,Nei, herra minn, ég er kona með hryggð í hjarta. Vín hefi ég ekki drukkið né áfengan drykk, en ég hefi úthellt hjarta mínu fyrir Drottni.
15哈拿回答:“我主啊,不是的。我是个心灵愁苦的妇人,淡酒烈酒都没有喝,只不过在耶和华面前倾吐我的心意。
16Ætla þú eigi, að ambátt þín sé afhrak, því að af mínum mikla harmi og trega hefi ég talað hingað til.``
16不要把你的使女看作不检点的女子,我因为极度愁苦和激动,才一直倾诉到现在。”
17Elí svaraði og sagði: ,,Far þú í friði. Ísraels Guð mun veita þér það, er þú hefir beðið hann um.``
17以利回答:“平平安安回去吧!愿以色列的 神把你所求的赐给你。”
18Hanna mælti: ,,Ó að ambátt þín mætti finna náð í augum þínum!`` Síðan fór konan leiðar sinnar og mataðist og var eigi framar með döpru bragði.
18哈拿说:“愿你的婢女在你眼前蒙恩!”于是这妇人回去,并且吃饭,脸上再没有愁容。
19Morguninn eftir risu þau árla og gjörðu bæn sína fyrir augliti Drottins, sneru síðan aftur og komu heim til Rama. Og Elkana kenndi Hönnu konu sinnar, og Drottinn minntist hennar.
19撒母耳出生第二天,他们清早起来,在耶和华面前敬拜,然后回到他们的家乡拉玛,回到自己的家里去。以利加拿和妻子哈拿同房;耶和华顾念哈拿,
20Og er ár var liðið, hafði Hanna orðið þunguð og alið son, og hún nefndi hann Samúel, ,,því að ég hefi beðið Drottin um hann.``
20她就怀孕;时候到了,就生了一个儿子,哈拿给他起名叫撒母耳,因为她说:“他是我从耶和华那里求来的。”
21Elkana fór nú með alla fjölskyldu sína til þess að færa Drottni hina árlegu fórn og áheit sitt.
21撒母耳被献以利加拿和他全家都上示罗去,向耶和华献年祭和还所许的愿;
22En Hanna fór ekki, heldur sagði við mann sinn: ,,Ég fer ekki fyrr en sveinninn er vaninn af brjósti. Þá fer ég með hann, svo að hann birtist fyrir augliti Drottins og verði þar ávallt upp frá því.``
22哈拿却没有上去,因为她对丈夫说:“等孩子断了奶,我才带他去朝见耶和华。他要永远住在那里。”
23Elkana, maður hennar, sagði við hana: ,,Gjör þú sem þér vel líkar. Ver þú kyrr heima, uns þú hefir vanið hann af brjósti. Drottinn láti aðeins orð þín rætast.`` Síðan var konan kyrr heima og hafði son sinn á brjósti, uns hún vandi hann af.
23她丈夫以利加拿对她说:“你看怎样好,就怎样作吧。你可以留在这里,等到你给孩子断了奶,但愿耶和华实现他的话。”于是哈拿留在家里乳养孩子,直到给他断了奶。
24En er hún hafði vanið hann af brjósti, fór hún með hann og hafði með sér þriggja ára gamalt naut og eina efu mjöls og legil víns. Og hún fór með hann í hús Drottins í Síló. En sveinninn var þá ungur.
24她给孩子断了奶之后,就带他一同上去,又带了一头三岁的公牛、十公斤面和一皮袋酒。她把孩子带到示罗耶和华的殿那里;那时孩子还很小。
25Þau slátruðu nautinu og fóru með sveininn til Elí.
25他们宰了公牛以后,就带孩子到以利那里,
26Og hún sagði: ,,Heyr, herra minn! Svo sannarlega sem þú lifir, herra minn, er ég kona sú, er stóð hér hjá þér til þess að gjöra bæn mína til Drottins.
26妇人说:“我主啊,我敢指着我主的性命起誓,我就是从前在这里站在你旁边,向耶和华祷告的那个妇人。
27Um svein þennan gjörði ég bæn mína, og Drottinn veitti mér bæn mína, sem ég bað hann um.Fyrir því vil ég og ljá Drottni hann. Svo lengi sem hann lifir, skal hann vera Drottni léður.`` Og þau féllu þar fram fyrir Drottin.
27那时我祈求为要得这孩子,耶和华已经把我向他所求的赐给我了,
28Fyrir því vil ég og ljá Drottni hann. Svo lengi sem hann lifir, skal hann vera Drottni léður.`` Og þau féllu þar fram fyrir Drottin.
28所以我现在把他献给耶和华,他的一生是属于耶和华的。”于是他就在那里敬拜耶和华。