1Drottinn sagði við Jósúa: ,,Óttast þú eigi og lát eigi hugfallast. Tak með þér allt herliðið, og tak þig upp og far til Aí. Sjá, ég mun gefa konunginn í Aí, fólk hans, borg og land í þínar hendur.
1约书亚再攻艾城
2Og þú skalt fara með Aí og konung hennar eins og þú fórst með Jeríkó og konung hennar. Þó megið þér taka herfang það og fénað þann, sem þar er, yður til handa. Settu launsátur að baki borgarinnar.``
2你怎样对待耶利哥和耶利哥的王,也要照样对待艾城和艾城的王;只是城中的战利品和牲畜,你们可以据为己有;你要在城后面设下攻城的伏兵。”
3Þá tók Jósúa sig upp með allt herliðið og hélt til Aí. En Jósúa valdi nú þrjátíu þúsundir hraustra manna og sendi þá af stað um nóttina
3于是,约书亚和所有能作战的人都起来上艾城去;约书亚选了三万英勇的战士,漏夜派他们出去,
4og lagði svo fyrir þá: ,,Sjáið til! Þér skuluð liggja í launsátri að baki borgarinnar, en verið ekki mjög langt frá borginni og verið allir viðbúnir.
4吩咐他们说:“你们注意,要在城后面埋伏攻城;不可离城太远,人人都要作好准备。
5Sjálfur mun ég fara til borgarinnar með alla mína menn, og er þeir fara út í móti oss, eins og hið fyrra sinnið, munum vér flýja undan þeim.
5我和所有与我一起的人,要向城推进。城里的人像前一次出来攻击我们的时候,我们就在他们面前逃跑;
6Og þeir munu veita oss eftirför, uns vér höfum teygt þá burt frá borginni, því að þeir munu segja: ,Nú flýja þeir fyrir oss, eins og hið fyrra sinnið,` og vér munum flýja fyrir þeim.
6他们必定出来追赶我们,我们就把他们引出城来,因为他们必定说:‘这些人像前一次一样在我们面前逃跑了。’所以我们要在他们面前逃跑。
7Þá skuluð þér spretta upp úr launsátrinu og taka borgina, því að Drottinn, Guð yðar, mun gefa hana á yðar vald.
7那时你们就要从埋伏的地方起来,占领那城,因为耶和华你们的 神必把城交在你们的手里。
8En er þér hafið tekið borgina herskildi, skuluð þér leggja eld í borgina. Gjörið það, sem Drottinn segir. Gefið nú gætur að; ég hefi boðið yður það.``
8你们占领了城以后,就要放火烧城;要照着耶和华的话行事;你们要谨慎,我已经吩咐你们了。”
9Sendi Jósúa þá nú af stað, og fóru þeir í launsátrið og námu staðar milli Betel og Aí, vestanvert við Aí. En Jósúa hafðist við um nóttina meðal lýðsins.
9约书亚差派他们去了,他们就上到埋伏的地方去,住在伯特利和艾城的中间,就是在艾城的西边。那一夜,约书亚却在人民中间住宿。
10Morguninn eftir reis Jósúa árla og kannaði liðið. Fór hann því næst sjálfur og öldungar Ísraels fyrir liðinu upp til Aí.
10约书亚清早起来,召集人民上艾城去,他和以色列的长老走在人民的前面。
11Og allt herliðið, sem með honum var, fór upp þangað. Héldu þeir fram, þar til er þeir komu gegnt borginni. Þar settu þeir herbúðir sínar fyrir norðan Aí, og var dalurinn milli þeirra og Aí.
11所有与他在一起的战士都上去,迫近艾城,在城的北面安营;在约书亚和艾城中间有一个山谷,
12Því næst tók hann um fimm þúsundir manns og setti þá í launsátur milli Betel og Aí, vestanvert við borgina.
12约书亚挑了大约五千人,要他们埋伏在伯特利和艾城中间,就是艾城的西面。
13Þeir fylktu nú liðinu, öllum hernum, sem var fyrir norðan borgina, og afturliðinu fyrir vestan borgina. En Jósúa fór þessa sömu nótt ofan í dalinn miðjan.
13于是他们把众民,就是在城北的全军和在城西的伏兵都布置好了。那一夜,约书亚走进了山谷之中。
14Er konungurinn í Aí varð þessa vís, höfðu borgarmenn hraðan á, risu árla og fóru út í móti Ísrael til orustu, hann og allt hans lið, á ákveðnum stað gegnt Jórdandalnum. En hann vissi ekki, að honum var búin launsát að borgar baki.
14艾城的王看见了这情形,就和艾城的人急忙在清早起来,按着所定的时候出到亚拉巴,要与以色列人交战;王却不知道在城后面有伏兵要攻击他。
15En Jósúa og allur Ísrael létust bíða ósigur fyrir þeim og flýðu á leið til eyðimerkurinnar.
15约书亚和以色列人在他们面前装败,沿着通往旷野的路逃跑。
16Voru þá allir menn, er í borginni voru, kvaddir til að reka flóttann, og veittu þeir Jósúa eftirför og létu teygjast burt frá borginni.
16城里的众民都被召集,去追赶他们;艾城的人追赶约书亚的时候,就都被诱离城。
17Varð enginn maður eftir í Aí og Betel, sá er eigi færi eftir Ísrael; skildu þeir eftir opna borgina og veittu Ísrael eftirför.
17艾城和伯特利城没有留下一个人不出来追赶以色列人;他们撇下了敞开的城门,去追赶以色列人。
18Þá sagði Drottinn við Jósúa: ,,Rétt þú út spjót það, sem þú hefir í hendi þér, gegn Aí, því að ég mun gefa hana þér á vald.`` Og Jósúa rétti út spjótið, sem hann hafði í hendi sér, gegn borginni.
18攻陷艾城耶和华对约书亚说:“你向着艾城伸出你手中的短枪,因为我要把城交在你手里。”约书亚就向着艾城伸出他手里的短枪。
19Þá spratt launsátursliðið hratt upp úr stað sínum. Skunduðu þeir að, er hann rétti út höndina, fóru inn í borgina og tóku hana, lögðu því næst sem skjótast eld í borgina.
19他一伸手,伏兵就从埋伏的地方急忙起来,冲进城去,把城夺取,并连忙放火烧城。
20En er Aí-menn sneru sér við, sáu þeir að reyk lagði upp af borginni til himins, og brast þá nú þróttur, svo að þeir máttu í hvoruga áttina flýja, og liðið, sem flúið hafði til eyðimerkurinnar, snerist nú í móti þeim, er rekið höfðu flóttann.
20艾城的人转身观看,看见城里浓烟冲天,就全身乏力,不能逃跑;往旷野逃跑的以色列人就转过来攻击追赶他们的人。
21En er Jósúa og allur Ísrael sáu, að launsátursliðið hafði tekið borgina og að reykinn lagði upp af borginni, þá hurfu þeir aftur og gjörðu áhlaup á Aí-menn.
21约书亚和以色列人看见伏兵已经夺取了城,又看见城中浓烟上升,就转回,击杀艾城的人。
22Hinir komu þá og úr borginni út í móti þeim, og urðu þeir nú milli Ísraelsmanna, sem umkringdu þá á alla vegu. Felldu þeir þá, svo að enginn var eftir skilinn, sá er undan kæmist eða forðaði lífi sínu.
22伏兵也出城攻击艾城的人;艾城的人就被困在以色列人中间,前后受敌;于是以色列人把他们击杀,没有留下一个,也没有一个逃脱。
23En konunginum í Aí náðu þeir lifandi á sitt vald og fóru með hann til Jósúa.
23他们活捉了艾城的王,把他解到约书亚那里。
24Er Ísrael hafði drepið alla Aí-búa úti á víðavangi, í eyðimörkinni, þangað sem þeir höfðu veitt þeim eftirför, og þeir voru allir fallnir fyrir sverðseggjum, svo að enginn þeirra var eftir, þá hurfu allir Ísraelsmenn aftur til Aí og felldu íbúana með sverðseggjum.
24以色列人在田间、在旷野,杀尽了所有追赶他们的艾城的居民,艾城的人全部倒在刀下,直到完全消灭;接着,以色列众人回到艾城,用刀击杀了城中的人。
25Og allir þeir, sem féllu á þeim degi, bæði karlar og konur, voru tólf þúsund manns, allir Aí-búar.
25那一天被杀的人,连男带女,共有一万二千人,就是艾城所有的人。
26Jósúa dró ekki að sér höndina, sem hann hélt í spjótinu, uns hann hafði gjöreytt öllum Aí-búum.
26约书亚没有收回伸出短枪的手,直到把艾城的居民都消灭为止。
27En fénaðinum og herfangi því, er í borginni var, rændu Ísraelsmenn sér til handa eftir boði Drottins, því er hann hafði lagt fyrir Jósúa.
27只有那城里的牲畜和战利品,以色列人照着耶和华吩咐约书亚的话,都据为己有。
28Jósúa brenndi Aí og gjörði hana að ævinlegri grjóthrúgu, eyðirúst, fram á þennan dag.
28约书亚烧了艾城,使城永远成为废堆,一片荒凉,直到今日。
29Og konunginn í Aí lét hann hengja á tré og lét hann hanga til kvelds, en um sólarlagsbil bauð Jósúa að taka líkama hans ofan af trénu. Köstuðu þeir honum út fyrir borgarhliðið og gjörðu yfir hann steindys mikla, og er hún þar enn í dag.
29他又把艾城的王悬在树上,直到黄昏的时候;日落的时候,约书亚吩咐人把尸体从树上拿下来,丢在城门口那里,又在尸体上堆起了一大堆石头,这堆石头一直存到今日。
30Jósúa reisti Drottni, Ísraels Guði, altari á Ebalfjalli,
30以巴路山上筑坛宣读律法那时,约书亚在以巴路山上,为耶和华以色列的 神筑了一座祭坛,
31eins og Móse, þjónn Drottins, hafði boðið Ísraelsmönnum, samkvæmt því sem skrifað er í lögmálsbók Móse, altari af óhöggnum steinum, er járntól hafði ekki verið borið að. Og þeir fórnuðu Drottni brennifórnum á því og slátruðu heillafórnum.
31是照着耶和华的仆人摩西吩咐以色列人的,照着摩西律法书上所写的,用未经过铁器打凿的整块石块筑成的一座祭坛;在这祭坛之上,众人向耶和华献燔祭,也献平安祭。
32Og hann skrifaði þar á steinana eftirrit af lögmáli Móse, því er hann hafði skrifað í augsýn Ísraelsmanna.
32约书亚在那里,当着以色列人面前,把摩西所写的摩西律法抄写在石头上。
33Og allur Ísrael, öldungar hans, tilsjónarmenn og dómarar stóðu báðumegin við örkina, gegnt levítaprestunum, er báru sáttmálsörk Drottins, bæði útlendir menn og innbornir, annar helmingurinn utan í Garísímfjalli og hinn helmingurinn utan í Ebalfjalli, samkvæmt því sem Móse, þjónn Drottins, hafði boðið, að blessa Ísraelslýð.
33全体以色列人和他们的长老、官长,以及审判官,都站在约柜的两旁,在抬耶和华约柜的利未支派的祭司前面;无论是寄居的,或是本地人,一半对着基利心山,一半对着以巴路山;正如耶和华的仆人摩西以前所吩咐的,好为以色列民祝福。
34Og eftir það las hann upp öll orð lögmálsins, blessunina og bannfæringuna, samkvæmt öllu því, sem skrifað er í lögmálsbókinni.Ekkert orð af því, er Móse hafði boðið, var úr fellt. Jósúa las það allt upp fyrir öllum söfnuði Ísraels, einnig fyrir konum og börnum og útlendingum þeim, er með þeim höfðu farið.
34然后,约书亚宣读律法上一切祝福和咒诅的话,全都照着律法书上所写的一切。
35Ekkert orð af því, er Móse hafði boðið, var úr fellt. Jósúa las það allt upp fyrir öllum söfnuði Ísraels, einnig fyrir konum og börnum og útlendingum þeim, er með þeim höfðu farið.
35摩西吩咐的一切话,约书亚在以色列全体会众和妇女、小孩,以及在他们中间来往的寄居者面前,没有一句不向他们宣读出来的。