1Og sjá, þegar Jeróbóam stóð fyrir altarinu til þess að færa þar reykelsisfórn, kom guðsmaður nokkur frá Júda til Betel að boði Drottins
1Kaj jen homo de Dio venis el Judujo laux ordono de la Eternulo en Bet- Elon, kiam Jerobeam staris sur la altaro, por incensi.
2og æpti gegn altarinu að boði Drottins og mælti: ,,Altari, altari! Svo segir Drottinn: Sonur mun fæðast húsi Davíðs, Jósía að nafni. Hann mun á þér slátra hæðaprestunum, þeim er færa reykelsisfórnir á þér, og mannabeinum mun á þér brennt verða.``
2Kaj li vokis al la altaro laux ordono de la Eternulo kaj diris:Ho altaro, altaro! tiele diras la Eternulo:Jen en la domo de David naskigxos filo, kies nomo estos Josxija, kaj li bucxos sur vi la pastrojn de la altajxoj, incensantajn sur vi, kaj homaj ostoj estos bruligitaj sur vi.
3Og hann boðaði tákn þann dag og mælti: ,,Þetta er tákn þess, að Drottinn hafi talað: Sjá, altarið mun rifna og askan, sem á því er, steypast niður.``
3Kaj li donis en tiu tago signon, dirante:CXi tio estas la signo, ke tion parolis la Eternulo:jen la altaro disfendigxos, kaj la cindro, kiu estas sur gxi, dissxutigxos.
4Þegar konungur heyrði orð guðsmannsins, þau er hann æpti gegn altarinu í Betel, þá bandaði Jeróbóam með hendinni frá altarinu og mælti: ,,Takið hann höndum!`` Þá visnaði hönd hans, er hann hafði bandað með móti honum, og hann gat ekki dregið hana að sér aftur.
4Kiam la regxo auxdis la vortojn de la homo de Dio, kiujn li vokis al la altaro en Bet-El, Jerobeam etendis sian manon de sur la altaro, kaj diris:Kaptu lin! Sed rigidigxis lia mano, kiun li etendis kontraux lin, kaj li ne povis retiri gxin al si.
5En altarið rifnaði og askan steyptist niður af altarinu, samkvæmt tákninu, er guðsmaðurinn hafði boðað eftir skipun Drottins.
5Kaj la altaro disfendigxis, kaj la cindro de la altaro dissxutigxis, konforme al la signo, kiun donis la homo de Dio laux la ordono de la Eternulo.
6Þá tók konungur til máls og mælti við guðsmanninn: ,,Blíðka þú Drottin, Guð þinn, og bið fyrir mér, svo að ég geti aftur dregið höndina að mér.`` Þá blíðkaði guðsmaðurinn Drottin, svo að konungur gat aftur dregið að sér höndina, og varð hún jafngóð.
6Kaj la regxo ekparolis kaj diris al la homo de Dio:Faru peton antaux la Eternulo, via Dio, kaj pregxu por mi, por ke mia mano revenu al mi. Kaj la homo de Dio faris peton antaux la Eternulo, kaj la mano de la regxo revenis al li kaj farigxis kiel antauxe.
7Því næst mælti konungur við guðsmanninn: ,,Kom þú heim með mér og hress þig, og mun ég gefa þér gjöf nokkra.``
7Tiam la regxo diris al la homo de Dio:Iru kun mi en la domon kaj fortigu vin per mangxo, kaj mi donos al vi donacon.
8En guðsmaðurinn mælti við konung: ,,Þótt þú gæfir mér hálfa aleigu þína, þá mundi ég samt eigi með þér fara, og eigi mundi ég matar neyta og eigi vatn drekka á þessum stað.
8Sed la homo de Dio diris al la regxo:Ecx se vi donos al mi duonon de via domo, mi ne iros kun vi, kaj mi ne mangxos panon nek trinkos akvon en cxi tiu loko;
9Því að svo hefir mér boðið verið fyrir orð Drottins, er var á þessa leið: ,Þú skalt eigi matar neyta né vatn drekka, og þú skalt eigi snúa aftur sömu leiðina sem þú komst.```
9cxar tiele estas ordonite al mi per la vorto de la Eternulo:Ne mangxu panon nek trinku akvon, kaj ne reiru laux la vojo, laux kiu vi venis.
10Síðan fór hann burt aðra leið og sneri eigi aftur sömu leiðina sem hann hafði farið til Betel.
10Kaj li iris laux alia vojo, kaj ne reiris laux la vojo, laux kiu li venis en Bet-Elon.
11Í Betel bjó gamall spámaður. Og synir hans komu og sögðu honum frá öllu því, sem guðsmaðurinn hafði gjört í Betel þennan dag, og orð þau, er hann hafði talað til konungs. Og er þeir sögðu föður sínum frá þessu,
11Unu profeto maljunulo logxis en Bet-El. Kaj venis liaj filoj, kaj rakontis al li la tutan aferon, kiun faris la homo de Dio hodiaux en Bet-El; la vortojn, kiujn li diris al la regxo, ili rakontis al sia patro.
12mælti faðir þeirra til þeirra: ,,Hvaða leið fór hann?`` Og synir hans sýndu honum, hvaða leið guðsmaðurinn, sem kominn var frá Júda, hefði farið.
12Kaj ilia patro diris al ili:Laux kiu vojo li iris? Kaj liaj filoj montris la vojon, laux kiu iris la homo de Dio, kiu venis el Judujo.
13Og hann sagði við sonu sína: ,,Söðlið mér asnann.`` Og þeir söðluðu asnann fyrir hann og hann steig á bak,
13Tiam li diris al siaj filoj:Selu al mi la azenon. Kaj ili selis al li la azenon, kaj li ekrajdis sur gxi,
14hélt á eftir guðsmanninum og fann hann, þar sem hann sat undir eik nokkurri. Hann mælti til hans: ,,Ert þú guðsmaðurinn, sem kom frá Júda?`` Hinn svaraði: ,,Er ég víst.``
14kaj sekvis la homon de Dio kaj trovis lin sidanta sub kverko, kaj diris al li:CXu vi estas la homo de Dio, kiu venis el Judujo? Kaj tiu diris:Mi.
15Þá sagði gamli spámaðurinn við hann: ,,Kom þú heim með mér og neyt matar.``
15Kaj li diris al li:Venu kun mi en la domon kaj mangxu panon.
16Hinn mælti: ,,Ég get eigi snúið við með þér né með þér farið, mun og hvorki matar neyta né vatn drekka á þessum stað.
16Sed tiu diris:Mi ne povas reiri kun vi kaj veni al vi, kaj mi ne mangxos panon nek trinkos cxe vi akvon en cxi tiu loko;
17Því að við mig hefir verið sagt fyrir orð Drottins: ,Þú skalt hvorki neyta þar matar né vatn drekka, þú skalt ekki snúa aftur sömu leiðina sem þú komst.```
17cxar estas dirite al mi per la vorto de la Eternulo:Ne mangxu panon nek trinku tie akvon, ne reiru laux la vojo, laux kiu vi venis.
18Gamli spámaðurinn sagði þá við hann: ,,Ég er einnig spámaður, eins og þú, og engill hefir talað við mig eftir orði Drottins á þessa leið: ,Far þú með hann aftur heim til þín, að hann megi matar neyta og vatn drekka.``` En hann laug að honum.
18Kaj li diris al li:Mi ankaux estas profeto, kiel vi, kaj angxelo diris al mi laux ordono de la Eternulo jene:Revenigu lin kun vi en vian domon, por ke li mangxu panon kaj trinku akvon. Li mensogis al li.
19Sneri hann þá við með honum og neytti matar í húsi hans og drakk vatn.
19Kaj li reiris kun li kaj mangxis panon en lia domo kaj trinkis akvon.
20En er þeir sátu undir borðum, kom orð Drottins til spámannsins, er snúið hafði hinum aftur.
20Dum ili sidis ankoraux cxe la tablo, venis la vorto de la Eternulo al la profeto, kiu lin revenigis.
21Og hann kallaði til guðsmannsins, er kominn var frá Júda, og mælti: ,,Svo segir Drottinn: Sökum þess að þú óhlýðnaðist skipun Drottins og varðveittir eigi boð það, er Drottinn, Guð þinn, fyrir þig lagði,
21Kaj li vokis al la homo de Dio, kiu venis el Judujo, dirante:Tiele diras la Eternulo:Pro tio, ke vi malobeis la busxon de la Eternulo, kaj ne plenumis la ordonon, kiun faris al vi la Eternulo, via Dio,
22heldur snerir við og neyttir matar og drakkst vatn á þeim stað, er hann sagði um við þig: ,Þú skalt þar eigi matar neyta né vatn drekka` _ þá skal lík þitt eigi koma í gröf feðra þinna.``
22sed vi reiris kaj mangxis panon kaj trinkis akvon en la loko, pri kiu Li diris al vi, ke vi ne mangxu panon kaj ne trinku akvon, via kadavro ne venos en la tombon de viaj patroj.
23En er gamli spámaðurinn hafði etið og drukkið, lét hann söðla asnann fyrir spámanninn, er hann hafði snúið aftur.
23Post kiam li mangxis panon kaj trinkis, oni selis por li la azenon, por la profeto, kiun li revenigis.
24Hélt hann nú af stað, en ljón mætti honum á leiðinni og drap hann. Og lík hans lá þar endilangt á veginum, og asninn stóð yfir því, og ljónið stóð yfir líkinu.
24Kaj li iris, kaj sur la vojo renkontis lin leono kaj mortigis lin. Kaj lia kadavro kusxis jxetita sur la vojo, kaj la azeno staris apude, kaj la leono staris apud la kadavro.
25Og er menn fóru þar fram hjá, sáu þeir líkið liggja endilangt á veginum og ljónið standandi yfir líkinu. Þá komu þeir og sögðu frá því í borginni, þar sem gamli spámaðurinn átti heima.
25Kaj jen pasis homoj, kaj vidis la kadavron kusxantan sur la vojo, kaj la leonon starantan apud la kadavro, kaj ili iris kaj rakontis en la urbo, en kiu logxis la maljuna profeto.
26Og er spámaðurinn, er snúið hafði hinum aftur, heyrði þetta, mælti hann: ,,Það er guðsmaðurinn, sem óhlýðnaðist skipun Drottins. Fyrir því hefir Drottinn gefið hann ljóninu. Það hefir mulið hann sundur og drepið hann eftir orði Drottins, er hann hafði til hans talað.``
26Kiam tion auxdis la profeto, kiu revenigis lin de la vojo, li diris:Tio estas la homo de Dio, kiu malobeis la busxon de la Eternulo; la Eternulo transdonis lin al leono, kiu dissxiris kaj mortigis lin konforme al la vorto de la Eternulo, kiun Li diris al li.
27Þá mælti hann til sona sinna: ,,Söðlið mér asnann.`` Þeir gjörðu svo.
27Kaj li diris al siaj filoj jene:Selu al mi la azenon. Kaj ili selis.
28Síðan hélt hann af stað og fann lík hans liggjandi endilangt á veginum, og asnann og ljónið standandi yfir líkinu. En ljónið hafði hvorki etið líkið né mulið sundur asnann.
28Kaj li iris kaj trovis lian kadavron kusxantan sur la vojo, kaj la azenon kaj la leonon starantajn apud la kadavro; la leono ne mangxis la kadavron kaj ne dissxiris la azenon.
29Þá tók spámaðurinn upp lík guðsmannsins, lagði það á asnann og flutti það til borgarinnar til þess að harma hann og jarða.
29Kaj la profeto levis la kadavron de la homo de Dio kaj metis gxin sur la azenon kaj veturigis gxin returne. Kaj la maljuna profeto venis en la urbon, por priplori kaj enterigi lin.
30Og hann lagði lík hans í gröf sína, og menn hörmuðu hann, segjandi: ,,Æ, bróðir minn!``
30Kaj li metis lian kadavron en sian tombon; kaj ili priploris lin:Ho ve, mia frato!
31En er hann hafði jarðað hann, sagði hann við sonu sína: ,,Þegar ég dey, þá jarðið mig í þeirri gröf, sem guðsmaðurinn er jarðaður í. Leggið mín bein hjá hans beinum.
31Post kiam oni enterigis lin, li diris al siaj filoj jene:Kiam mi mortos, entombigu min en la tombo, en kiu estas entombigita la homo de Dio; apud liajn ostojn metu miajn ostojn.
32Því að orðin, sem hann að boði Drottins æpti gegn altarinu í Betel og gegn öllum hæðahofunum í borgum Samaríu, munu vissulega rætast.``
32CXar plenumigxos la vorto, kiun li eldiris laux ordono de la Eternulo pri la altaro, kiu estas en Bet-El, kaj pri cxiuj domoj de altajxoj, kiuj trovigxas en la urboj de Samario.
33Ekki sneri Jeróbóam sér eftir þennan atburð frá sínum vonda vegi, heldur gjörði að nýju óvalda menn að hæðaprestum. Hann vígði hvern sem vildi, og varð sá hinn sami þannig hæðaprestur.En þetta varð húsi Jeróbóams til syndar og til þess að uppræta það og afmá af jörðinni.
33Post tiu okazintajxo Jerobeam ne retiris sin de sia malbona vojo, sed li denove starigis el la popolo pastrojn por la altajxoj; kiun li volis, tiun li konsekris, ke li farigxu pastro de altajxoj.
34En þetta varð húsi Jeróbóams til syndar og til þess að uppræta það og afmá af jörðinni.
34Kaj cxi tio farigxis peko por la domo de Jerobeam, por pereo kaj ekstermigxo de sur la tero.