1Þegar allir konungar þeir, sem bjuggu hinumegin Jórdanar, í fjalllendinu, á láglendinu og á öllu strandlendinu við hafið mikla gegnt Líbanon _ Hetítar, Amorítar, Kanaanítar, Peresítar, Hevítar og Jebúsítar _ spurðu þetta,
1さて、ヨルダンの西側の、山地、平地、およびレバノンまでの大海の沿岸に住むもろもろの王たち、すなわちヘテびと、アモリびと、カナンびと、ペリジびと、ヒビびと、エブスびとの王たちは、これを聞いて、
2þá söfnuðust þeir saman, allir sem einn maður, til þess að berjast við Jósúa og Ísrael.
2心を合わせ、相集まって、ヨシュアおよびイスラエルと戦おうとした。
3En íbúar í Gíbeon fréttu, hvernig Jósúa hafði farið með Jeríkó og Aí.
3しかし、ギベオンの住民たちは、ヨシュアがエリコとアイにおこなったことを聞いて、
4Beittu þeir nú líka slægð. Fóru þeir og fengu sér veganesti, tóku gamla sekki á asna sína, og gamla, rifna og samanbundna vínbelgi,
4自分たちも策略をめぐらし、行って食料品を準備し、古びた袋と、古びて破れたのを繕ったぶどう酒の皮袋とを、ろばに負わせ、
5og gamla, bætta skó á fætur sér og fóru í gömul föt, og allt brauð, sem þeir höfðu í nesti, var hart og komið í mola.
5繕った古ぐつを足にはき、古びた着物を身につけた。彼らの食料のパンは、みなかわいて、砕けていた。
6Fóru þeir á fund Jósúa í herbúðirnar í Gilgal og sögðu við hann og Ísraelsmenn: ,,Vér erum komnir frá fjarlægu landi, gjörið nú sáttmála við oss!``
6彼らはギルガルの陣営のヨシュアの所にきて、彼とイスラエルの人々に言った、「われわれは遠い国からまいりました。それで今われわれと契約を結んでください」。
7Þá svöruðu Ísraelsmenn Hevítunum: ,,Vera má, að þér búið meðal vor. Hvernig megum vér þá gjöra sáttmála við yður?``
7しかし、イスラエルの人々はそのヒビびとたちに言った、「あなたがたはわれわれのうちに住んでいるのかも知れないから、われわれはどうしてあなたがたと契約が結べましょう」。
8Þá sögðu þeir við Jósúa: ,,Vér erum þjónar þínir.`` Jósúa sagði við þá: ,,Hverjir eruð þér og hvaðan komið þér?``
8彼らはヨシュアに言った、「われわれはあなたのしもべです」。ヨシュアは彼らに言った、「あなたがたはだれですか。どこからきたのですか」。
9Þeir sögðu við hann: ,,Vér þjónar þínir erum komnir frá mjög fjarlægu landi fyrir sakir nafns Drottins Guðs þíns, því að vér höfum heyrt hans getið, svo og alls þess, er hann gjörði Egyptum,
9彼らはヨシュアに言った、「しもべどもはあなたの神、主の名のゆえに、ひじょうに遠い国からまいりました。われわれは主の名声、および主がエジプトで行われたすべての事を聞き、
10sem og þess, hvernig hann fór með báða Amorítakonungana, sem bjuggu hinumegin Jórdanar, þá Síhon konung í Hesbon og Óg konung í Basan, sem bjó í Astarót.
10また主がヨルダンの向こう側にいたアモリびとのふたりの王、すなわちヘシボンの王シホン、およびアシタロテにおったバシャンの王オグに行われたすべてのことを聞いたからです。
11Fyrir því sögðu öldungar vorir og allir íbúar lands vors við oss: ,Takið yður veganesti og farið til fundar við þá og segið við þá: Vér erum þjónar yðar, gjörið nú sáttmála við oss.`
11それで、われわれの長老たち、および国の住民はみなわれわれに言いました、『おまえたちは旅路の食料を手に携えていって、彼らに会って言いなさい、「われわれはあなたがたのしもべです。それで今われわれと契約を結んでください」』。
12Sjáið hér brauð vort. Vér tókum það nýbakað oss til nestis að heiman, þá er vér lögðum af stað á yðar fund, en sjá, nú er það orðið hart og komið í mola.
12ここにあるこのパンは、あなたがたの所に来るため、われわれが出立する日に、おのおの家から、まだあたたかなのを旅の食料として準備したのですが、今はもうかわいて砕けています。
13Og vínbelgir þessir voru nýir, þegar vér létum á þá, en sjá, nú eru þeir farnir að rifna, og þessi klæði vor og skór vorir eru slitnir orðnir á þessari afar löngu leið.``
13またぶどう酒を満たしたこれらの皮袋も、新しかったのですが、破れました。われわれのこの着物も、くつも、旅路がひじょうに長かったので、古びてしまいました」。
14Þá tóku Ísraelsmenn nokkuð af nesti þeirra, en atkvæða Drottins leituðu þeir ekki.
14そこでイスラエルの人々は彼らの食料品を共に食べ、主のさしずを求めようとはしなかった。
15Hét Jósúa þeim þá friði og gjörði þann sáttmála við þá, að hann skyldi láta þá lífi halda, og höfuðsmenn safnaðarins bundu það svardögum við þá.
15そしてヨシュアは彼らと和を講じ、契約を結んで、彼らを生かしておいた。会衆の長たちは彼らに誓いを立てた。
16Þremur dögum eftir að þeir höfðu gjört þennan sáttmála við þá, spurðist það, að þeir væru þar úr grenndinni og að þeir byggju mitt á meðal þeirra.
16契約を結んで三日の後に、彼らはその人々が近くの人々で、自分たちのうちに住んでいるということを聞いた。
17Ísraelsmenn lögðu þá upp og komu á þriðja degi til borga þeirra, en borgir þeirra voru Gíbeon, Kefíra, Beerót og Kirjat Jearím.
17イスラエルの人々は進んで、三日目にその町々に着いた。その町々とは、ギベオン、ケピラ、ベエロテおよびキリアテ・ヤリムであった。
18Og Ísraelsmenn drápu þá eigi, því að höfuðsmenn safnaðarins höfðu svarið þeim grið í nafni Drottins, Ísraels Guðs. Möglaði þá allur söfnuðurinn gegn höfuðsmönnunum.
18ところで会衆の長たちが、すでにイスラエルの神、主をさして彼らに誓いを立てていたので、イスラエルの人々は彼らを殺さなかった。そこで会衆はみな、長たちにむかってつぶやいた。
19Þá sögðu allir höfuðsmennirnir við gjörvallan söfnuðinn: ,,Vér höfum svarið þeim grið í nafni Drottins, Ísraels Guðs. Fyrir því megum vér nú eigi snerta þá.
19しかし、長たちは皆、全会衆に言った、「われわれはイスラエルの神、主をさして彼らに誓った。それゆえ今、彼らに触れてはならない。
20Þetta munum vér við þá gjöra og láta þá lífi halda, svo að eigi komi yfir oss reiði vegna eiðsins, er vér sórum þeim.``
20われわれは、こうして彼らを生かしておこう。そうすれば、われわれが彼らに立てた誓いのゆえに、怒りがわれわれに臨むことはないであろう」。
21Og höfuðsmennirnir sögðu: ,,Þeir skulu lífi halda!`` Og þeir urðu viðarhöggsmenn og vatnsberar fyrir allan söfnuðinn, eins og höfuðsmennirnir höfðu sagt þeim.
21長たちはまた人々に「彼らを生かしておこう」と言ったので、彼らはついに、全会衆のために、たきぎを切り、水をくむものとなった。長たちが彼らに言ったとおりである。
22Þá lét Jósúa kalla þá og mælti við þá á þessa leið: ,,Hví svikuð þér oss, er þér sögðuð: ,Vér eigum heima mjög langt í burtu frá yður,` þar sem þér þó búið mitt á meðal vor?
22ヨシュアは彼らを呼び寄せて言った、「あなたがたは、われわれのうちに住みながら、なぜ『われわれはあなたがたからは遠く離れている』と言って、われわれをだましたのか。
23Fyrir því skuluð þér nú vera bölvaðir og jafnan vera þrælar upp frá þessu, bæði viðarhöggsmenn og vatnsberar fyrir hús Guðs míns.``
23それであなたがたは今のろわれ、奴隷となってわたしの神の家のために、たきぎを切り、水をくむものが、絶えずあなたがたのうちから出るであろう」。
24Þá svöruðu þeir Jósúa og sögðu: ,,Oss þjónum þínum var frá því sagt, að Drottinn, Guð þinn, hefði heitið Móse, þjóni sínum, að gefa yður allt landið, en eyða öllum landsbúum fyrir yður. Fyrir því urðum vér hræddir um líf vort fyrir yður og tókum því þetta til bragðs.
24彼らはヨシュアに答えて言った、「あなたの神、主がそのしもべモーセに、この地をことごとくあなたがたに与え、この地に住む民をことごとくあなたがたの前から滅ぼし去るようにと、お命じになったことを、しもべどもは明らかに伝え聞きましたので、あなたがたのゆえに、命が危いと、われわれは非常に恐れて、このことをしたのです。
25En nú erum vér á þínu valdi. Far þú með oss svo sem þér þykir gott og rétt vera.``
25われわれは、今、あなたの手のうちにあります。われわれにあなたがして良いと思い、正しいと思うことをしてください」。
26Og Jósúa fór svo með þá og frelsaði þá úr höndum Ísraelsmanna, svo að þeir dræpu þá ekki.Og hann gjörði þá á þeim degi að viðarhöggsmönnum og vatnsberum fyrir söfnuðinn og fyrir altari Drottins á þeim stað, er hann mundi til velja, og er svo enn í dag.
26そこでヨシュアは、彼らにそのようにし、彼らをイスラエルの人々の手から救って殺させなかった。しかし、ヨシュアは、その日、彼らを、会衆のため、また主の祭壇のため、主が選ばれる場所で、たきぎを切り、水をくむ者とした。これは今日までつづいている。
27Og hann gjörði þá á þeim degi að viðarhöggsmönnum og vatnsberum fyrir söfnuðinn og fyrir altari Drottins á þeim stað, er hann mundi til velja, og er svo enn í dag.
27しかし、ヨシュアは、その日、彼らを、会衆のため、また主の祭壇のため、主が選ばれる場所で、たきぎを切り、水をくむ者とした。これは今日までつづいている。