1Hann tók sig upp þaðan og hélt til byggða Júdeu og yfir um Jórdan. Fjöldi fólks safnast enn til hans, og hann kenndi þeim, eins og hann var vanur.
1예수께서 거기서 떠나 유대 지경과 요단강 건너편으로 가시니 무리가 다시 모여 들거늘 예수께서 다시 전례대로 가르치시더니
2Farísear komu og spurðu hann, hvort maður mætti skilja við konu sína. Þeir vildu freista hans.
2바리새인들이 예수께 나아와 그를 시험하여 묻되 `사람이 아내를 내어 버리는 것이 옳으니이까 ?'
3Hann svaraði þeim: ,,Hvað hefur Móse boðið yður?``
3대답하여 가라사대 `모세가 어떻게 너희에게 명하였느냐 ?'
4Þeir sögðu: ,,Móse leyfði að ,rita skilnaðarbréf og skilja við hana.```
4가로되 `모세는 이혼증서를 써주어 내어 버리기를 허락하였나이다'
5Jesús mælti þá til þeirra: ,,Vegna harðúðar hjartna yðar ritaði hann yður þetta boðorð,
5예수께서 저희에게 이르시되 `너희 마음의 완악함을 인하여 이 명령을 기록하였거니와
6en frá upphafi sköpunar ,gjörði Guð þau karl og konu.
6창조시로부터 저희를 남자와 여자로 만드셨으니
7Fyrir því skal maður yfirgefa föður sinn og móður og bindast konu sinni,
7이러므로 사람이 그 부모를 떠나서
8og þau tvö skulu verða einn maður.` Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður.
8그 둘이 한 몸이 될지니라 이러한즉 이제 둘이 아니요 한 몸이니
9Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.``
9그러므로 하나님이 짝지어 주신 것을 사람이 나누지 못할지니라' 하시더라
10Þegar lærisveinarnir voru komnir inn, spurðu þeir hann aftur um þetta.
10집에서 제자들이 다시 이일을 묻자온대
11En hann sagði við þá: ,,Sá sem skilur við konu sína og kvænist annarri, drýgir hór gegn henni.
11이르시되 `누구든지 그 아내를 내어버리고 다른 데 장가드는 자는 본처에게 간음을 행함이요
12Og ef kona skilur við mann sinn og giftist öðrum, drýgir hún hór.``
12또 아내가 남편을 버리고 다른데로 시집 가면 간음을 행함이니라'
13Menn færðu börn til hans, að hann snerti þau, en lærisveinarnir átöldu þá.
13사람들이 예수의 만져주심을 바라고 어린 아이들을 데리고 오매 제자들이 꾸짖거늘
14Þegar Jesús sá það, sárnaði honum, og hann mælti við þá: ,,Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki.
14예수께서 보시고 분히 여겨 이르시되 `어린 아이들의 내게 오는 것을 용납하고 금하지 말라 하나님의 나라가 이런 자의 것이니라
15Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma.``
15내가 진실로 너희에게 이르노니 누구든지 하나님의 나라를 어린 아이와 같이 받들지 않는 자는 결단코 들어가지 못하리라' 하시고
16Og hann tók þau sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.
16그 어린 아이들을 안고 저희 위에 안수하시고 축복하시니라
17Þegar hann var að leggja af stað, kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: ,,Góði meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?``
17예수께서 길에 나가실새 한사람이 달려와서 꿇어 앉아 묻자오되 `선한 선생님이여, 내가 무엇을 하여야 영생을 얻으리이까 ?'
18Jesús sagði við hann: ,,Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn.
18예수께서 이르시되 `네가 어찌하여 나를 선하다 일컫느냐 ? 하나님 한 분 외에는 선한 이가 없느니라
19Þú kannt boðorðin: ,Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, þú skalt ekki pretta, heiðra föður þinn og móður.```
19네가 계명을 아나니 살인하지 말라, 간음하지 말라, 도적질하지 말라, 거짓 증거하지 말라, 속여 취하지 말라, 네 부모를 공경하라 하였느니라'
20Hinn svaraði honum: ,,Meistari, alls þessa hef ég gætt frá æsku.``
20여짜오되 `선생님이여, 이것은 내가 어려서부터 다 지키었나이다'
21Jesús horfði á hann með ástúð og sagði við hann: ,,Eins er þér vant. Far þú, sel allt, sem þú átt, og gef fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himni. Kom síðan, og fylg mér.``
21예수께서 그를 보시고 사랑하여 가라사대 `네게 오히려 한 가지 부족한 것이 있으니 가서 네 있는 것을 다 팔아 가난한 자들을 주라 그리하면 하늘에서 보화가 네게 있으리라 그리고 와서 나를 좇으라 !' 하시니
22En hann varð dapur í bragði við þessi orð og fór burt hryggur, enda átti hann miklar eignir.
22그 사람은 재물이 많은고로 이 말씀을 인하여 슬픈 기색을 띠고 근심하며 가니라
23Þá leit Jesús í kring og sagði við lærisveina sína: ,,Hve torvelt verður þeim, sem auðinn hafa, að ganga inn í Guðs ríki.``
23예수께서 둘러 보시고 제자들에게 이르시되 `재물이 있는 자는 하나님의 나라에 들어가기가 심히 어렵도다' 하시니
24Lærisveinunum brá mjög við orð Jesú, en hann sagði aftur við þá: ,,Börn, hve torvelt er að komast inn í Guðs ríki.
24제자들이 그 말씀에 놀라는지라 예수께서 다시 대답하여 가라사대 얘들아 하나님의 나라에 들어가기가 어떻게 어려운지
25Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.``
25약대가 바늘귀로 나가는 것이 부자가 하나님의 나라에 들어가는 것보다 쉬우니라 하신대
26En þeir urðu steini lostnir og sögðu sín á milli: ,,Hver getur þá orðið hólpinn?``
26제자들이 심히 놀라 서로 말하되 `그런즉 누가 구원을 얻을 수 있는가 ?' 하니
27Jesús horfði á þá og sagði: ,,Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en fyrir Guði. Guð megnar allt.``
27예수께서 저희를 보시며 가라사대 `사람으로는 할 수 없으되 하나님으로는 그렇지 아니하니 하나님으로서는 다 하실 수 있느니라 !'
28Þá sagði Pétur við hann: ,,Vér yfirgáfum allt og fylgdum þér.``
28베드로가 여짜와 가로되 `보소서, 우리가 모든 것을 버리고 주를 좇았나이다'
29Jesús sagði: ,,Sannlega segi ég yður, að enginn hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, móður eða föður, börn eða akra vegna mín og fagnaðarerindisins,
29예수께서 가라사대 `내가 진실로 너희에게 이르노니 나와 및 복음을 위하여 집이나, 형제나, 자매나, 어미나, 아비나, 자식이나, 전토를 버린 자는
30án þess að hann fái hundraðfalt aftur, nú á þessum tíma heimili, bræður og systur, mæður, börn og akra, jafnframt ofsóknum, og í hinum komandi heimi eilíft líf.
30금세에 있어 집과 형제와 자매와 모친과 자식과 전토를 백배나 받되 핍박을 겸하여 받고 내세에 영생을 받지 못할 자가 없느니라
31En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.``
31그러나 먼저 된 자로서 나중 되고 나중 된 자로서 먼저 될 자가 많으니라'
32Þeir voru nú á leið upp til Jerúsalem. Jesús gekk á undan þeim, en þeir voru skelfdir, og þeir sem eftir fylgdu voru hræddir. Og enn tók hann til sín þá tólf og fór að segja þeim, hvað fram við sig ætti að koma.
32예루살렘으로 올라가는 길에 예수께서 제자들 앞에 서서 가시는데 저희가 놀라고 좇는 자들은 두려워하더라 이에 다시 열 두 제자를 데리시고 자기의 당할 일을 일러 가라사대
33,,Nú förum vér upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða og framselja hann heiðingjum.
33`보라, 우리가 예루살렘에 올라가노니 인자가 대제사장들과 서기관들에게 넘기우매 저희가 죽이기로 결안하고 이방인들에게 넘겨 주겠고
34Og þeir munu hæða hann, hrækja á hann, húðstrýkja og lífláta, en eftir þrjá daga mun hann upp rísa.``
34그들은 능욕하며 침 뱉으며 채찍질하고 죽일 것이니 저는 삼일 만에 살아나리라' 하시니라
35Þá komu til hans Jakob og Jóhannes, synir Sebedeusar, og sögðu við hann: ,,Meistari, okkur langar, að þú gjörir fyrir okkur það sem við ætlum að biðja þig.``
35세베대의 아들 야고보와 요한이 주께 나아와 여짜오되 `선생님이여, 무엇이든지 우리의 구하는 바를 우리에게 하여 주시기를 원하옵나이다'
36Hann spurði þá: ,,Hvað viljið þið, að ég gjöri fyrir ykkur?``
36이르시되 `너희에게 무엇을 하여 주기를 원하느냐 ?'
37Þeir svöruðu: ,,Veit okkur, að við fáum að sitja þér við hlið í dýrð þinni, annar til hægri handar þér og hinn til vinstri.``
37여짜오되 `주의 영광 중에서 우리를 하나는 주의 우편에, 하나는 좌편에 앉게 하여 주옵소서'
38Jesús sagði við þá: ,,Þið vitið ekki, hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég drekk, eða skírst þeirri skírn, sem ég skírist?``
38예수께서 가라사대 `너희 구하는 것을 너희가 알지 못하는도다 너희가 나의 마시는 잔을 마시며 나의 받는 세례를 받을 수 있느냐 ?'
39Þeir sögðu við hann: ,,Það getum við.`` Jesús mælti: ,,Þann kaleik, sem ég drekk, munuð þið drekka, og þið munuð skírast þeirri skírn, sem ég skírist.
39저희가 말하되 `할 수 있나이다' 예수께서 이르시되 `너희가 나의 마시는 잔을 마시며 나의 받는 세례를 받으려니와
40En mitt er ekki að veita, hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim, sem það er fyrirbúið.``
40내 좌우편에 앉는 것은 나의 줄 것이 아니라 누구를 위하여 예비되었든지 그들이 얻을 것이니라'
41Þegar hinir tíu heyrðu þetta, gramdist þeim við þá Jakob og Jóhannes.
41열 제자가 듣고 야고보와 요한에 대하여 분히 여기거늘
42En Jesús kallaði þá til sín og mælti: ,,Þér vitið, að þeir, sem teljast ráða fyrir þjóðum, drottna yfir þeim, og höfðingjar þeirra láta menn kenna á valdi sínu.
42예수께서 불러다가 이르시되 `이방인의 소위 집권자들이 저희를 임의로 주관하고 그 대인(大人)들이 저희에게 권세를 부리는 줄을 너희가 알거니와
43En eigi sé svo meðal yðar, heldur sé sá, sem mikill vill verða meðal yðar, þjónn yðar.
43너희 중에는 그렇지 아니하니 너희 중에 누구든지 크고자 하는 자는 너희를 섬기는 자가 되고
44Og sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé allra þræll.
44너희 중에 누구든지 으뜸이 되고자 하는 자는 모든 사람의 종이 되어야 하리라
45Því að Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.``
45인자의 온 것은 섬김을 받으려 함이 아니라 도리어 섬기려 하고 자기 목숨을 많은 사람의 대속물로 주려 함이니라'
46Þeir komu til Jeríkó. Og þegar hann fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda, sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður.
46저희가 여리고에 이르렀더니 예수께서 제자들과 허다한 무리와 함께 여리고에 나가실 때에 디매오의 아들인 소경 거지 바디매오가 길가에 앉았다가
47Þegar hann heyrði, að þar færi Jesús frá Nasaret, tók hann að hrópa: ,,Sonur Davíðs, Jesús, miskunna þú mér!``
47나사렛 예수시란 말을 듣고 소리질러 가로되 `다윗의 자손 예수여, 나를 불쌍히 여기소서 !' 하거늘
48Margir höstuðu á hann, að hann þegði, en hann hrópaði því meir: ,,Sonur Davíðs, miskunna þú mér!``
48많은 사람이 꾸짖어 잠잠하라 하되 그가 더욱 소리질러 가로되 `다윗의 자손이여, 나를 불쌍히 여기소서 !' 하는지라
49Jesús nam staðar og sagði: ,,Kallið á hann.`` Þeir kalla á blinda manninn og segja við hann: ,,Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.``
49예수께서 머물러 서서 `저를 부르라' 하시니 저희가 그 소경을 부르며 이르되 `안심하고 일어나라 너를 부르신다' 하매
50Hann kastaði frá sér yfirhöfn sinni, spratt á fætur og kom til Jesú.
50소경이 겉옷을 내어 버리고 뛰어 일어나 예수께 나아오거늘
51Jesús spurði hann: ,,Hvað vilt þú, að ég gjöri fyrir þig?`` Blindi maðurinn svaraði honum: ,,Rabbúní, að ég fái aftur sjón.``Jesús sagði við hann: ,,Far þú, trú þín hefur bjargað þér.`` Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni.
51예수께서 일러 가라사대 `네게 무엇을 하여 주기를 원하느냐 ?' 소경이 가로되 `선생님이여, 보기를 원하나이다'
52Jesús sagði við hann: ,,Far þú, trú þín hefur bjargað þér.`` Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni.
52예수께서 이르시되 `가라, 네 믿음이 너를 구원하였느니라 !' 하시니 저가 곧 보게 되어 예수를 길에서 좇으니라