1Því næst sagði Drottinn við Móse: ,,Gakk fyrir Faraó og seg við hann: ,Svo segir Drottinn: Gef lýð mínum fararleyfi, að þeir megi þjóna mér.
1Da sa Herren til Moses: Gå inn til Farao og si til ham: Så sier Herren: La mitt folk fare, så de kan tjene mig!
2En ef þú synjar honum fararleyfis, þá skal ég þjá allt þitt land með froskum.
2Dersom du nekter å la dem fare, da vil jeg plage hele ditt land med frosk.
3Áin skal mora af froskum. Þeir skulu fara á land upp og skríða inn í höll þína og í svefnherbergi þitt og upp í rekkju þína, inn í hús þjóna þinna og upp á fólk þitt, í bakstursofna þína og deigtrog.
3Og elven skal vrimle av frosk, og de skal krype op og komme inn i ditt hus og i ditt sengkammer og op i din seng og i dine tjeneres hus og på ditt folk og i dine bakerovner og i dine deigtrau.
4Og froskarnir skulu skríða upp á þig og fólk þitt og upp á alla þjóna þína.```
4Ja, på dig og på ditt folk og på alle dine tjenere skal froskene krype op.
5Og Drottinn sagði við Móse: ,,Seg við Aron: ,Rétt út hönd þína og hald staf þínum uppi yfir fljótunum, ánum og tjörnunum, og lát froska koma yfir Egyptaland.```
5Og Herren sa til Moses: Si til Aron: Rekk ut din hånd med din stav over elvene, over kanalene og over sjøene, og la froskene komme op over Egyptens land!
6Aron rétti út hönd sína yfir vötn Egyptalands. Komu þá upp froskar og huldu Egyptaland.
6Og Aron rakte ut sin hånd over Egyptens vann, og froskene kom op og dekket hele Egyptens land.
7En spásagnamennirnir gjörðu slíkt hið sama með fjölkynngi sinni og létu froska koma yfir Egyptaland.
7Men tegnsutleggerne gjorde det samme med sine hemmelige kunster og lot froskene komme op over Egyptens land.
8Þá lét Faraó kalla Móse og Aron og sagði: ,,Biðjið Drottin, að hann láti þessa froska víkja frá mér og frá þjóð minni. Þá skal ég láta fólkið fara, að það megi færa Drottni fórnir.``
8Da kalte Farao Moses og Aron til sig og sa: Bed til Herren at han vil ta froskene bort fra mig og mitt folk! Da til jeg la folket fare, sa de kan ofre til Herren.
9Móse sagði við Faraó: ,,Þér skal veitast sú virðing að ákveða, nær ég skuli biðja fyrir þér og fyrir þjónum þínum og fyrir fólki þínu, að froskarnir víki frá þér og úr húsum þínum og verði hvergi eftir nema í ánni.``
9Og Moses sa til Farao: Ha selv den ære å si når jeg skal bede for dig og dine tjenere og ditt folk at froskene må bli drevet bort fra dig og dine hus, så de bare blir tilbake i elven.
10Hann svaraði: ,,Á morgun.`` Og Móse sagði: ,,Svo skal vera sem þú mælist til, svo að þú vitir, að enginn er sem Drottinn, Guð vor.
10Han svarte: Imorgen. Da sa Moses: La det bli som du sier, forat du kan kjenne at det ikke er nogen som Herren vår Gud.
11Froskarnir skulu víkja frá þér og úr húsum þínum, frá þjónum þínum og frá fólki þínu. Hvergi nema í ánni skulu þeir eftir verða.``
11Froskene skal vike fra dig og dine hus og fra dine tjenere og ditt folk; bare i elven skal de bli tilbake.
12Síðan gengu þeir Móse og Aron burt frá Faraó og Móse ákallaði Drottin út af froskunum, sem hann hafði koma látið yfir Faraó.
12Så gikk Moses og Aron ut igjen fra Farao, og Moses ropte til Herren for froskenes skyld som han hadde ført over Farao.
13Og Drottinn gjörði sem Móse beiddist, og dóu froskarnir í húsunum, í görðunum og á ökrunum.
13Og Herren gjorde som Moses hadde sagt, og froskene som var i husene og gårdene og på markene, døde bort;
14Hrúguðu menn þeim saman í marga hauga, og varð af illur daunn í landinu.
14og de samlet dem i dyngevis, og landet blev fylt med stank.
15En er Faraó sá að af létti, herti hann hjarta sitt og hlýddi þeim ekki, eins og Drottinn hafði sagt.
15Men da Farao så at han hadde fått luft, gjorde han sitt hjerte hårdt og hørte ikke på dem, således som Herren hadde sagt.
16Því næst sagði Drottinn við Móse: ,,Seg við Aron: ,Rétt út staf þinn og slá duft jarðarinnar, og skal það þá verða að mýi um allt Egyptaland.```
16Da sa Herren til Moses: Si til Aron: Rekk ut din stav og slå i støvet på jorden, så skal det bli til mygg i hele Egyptens land.
17Þeir gjörðu svo. Rétti Aron út hönd sína og laust stafnum á duft jarðarinnar, og varð það að mýi á mönnum og fénaði. Allt duft jarðarinnar varð að mýi um allt Egyptaland.
17Og de gjorde således; Aron rakte ut sin hånd med sin stav og slo i støvet på jorden, og myggene kom både på folk og fe; alt støvet på jorden blev til mygg i hele Egyptens land.
18Og spásagnamennirnir gjörðu slíkt hið sama með fjölkynngi sinni til þess að framleiða mý, en gátu ekki. En mýið lagðist bæði á menn og fénað.
18Tegnsutleggerne gjorde likeså med sine hemmelige kunster; de søkte å få mygg frem, men kunde ikke. Og myggene blev sittende på folk og på fe.
19Þá sögðu spásagnamennirnir við Faraó: ,,Þetta er Guðs fingur.`` En hjarta Faraós harðnaði, og hann hlýddi þeim ekki, eins og Drottinn hafði sagt.
19Da sa tegnsutleggerne til Farao: Dette er Guds finger. Men Faraos hjerte var og blev forherdet, og han hørte ikke på dem, således som Herren hadde sagt.
20Þá sagði Drottinn við Móse: ,,Rís upp árla á morgun og far til fundar við Faraó, er hann gengur til vatns, og seg við hann: ,Svo segir Drottinn: Gef fólki mínu fararleyfi, að þeir megi þjóna mér.
20Da sa Herren til Moses: Stå tidlig op imorgen, og still dig frem for Farao når han går ned til elven, og si til ham: Så sier Herren: La mitt folk fare, så de kan tjene mig!
21En leyfir þú eigi fólki mínu að fara, skal ég láta flugur koma yfir þig og þjóna þína, yfir fólk þitt og í hús þín, og hús Egypta skulu full verða af flugum og jafnvel jörðin undir fótum þeirra.
21For dersom du ikke lar mitt folk fare, da sender jeg fluesvermer over dig og dine tjenere og ditt folk og dine hus, og egypternes hus skal fylles av fluesvermene, ja endog jorden de står på.
22En á þeim degi vil ég undan taka Gósenland, þar sem mitt fólk hefst við, svo að þar skulu engar flugur vera, til þess að þú vitir, að ég er Drottinn á jörðunni.
22Men på den dag vil jeg undta Gosen, hvor mitt folk bor, så det ikke skal være fluesvermer der; da skal du kjenne at jeg, Herren, er midt i landet.
23Og ég vil gjöra aðskilnað milli míns fólks og þíns fólks. Á morgun skal þetta tákn verða.```
23For jeg vil frelse mitt folk og gjøre forskjell på mitt folk og ditt folk; imorgen skal dette tegn skje.
24Og Drottinn gjörði svo. Kom þá fjöldi flugna í hús Faraós og hús þjóna hans og yfir allt Egyptaland, svo að landið spilltist af flugunum.
24Og Herren gjorde som han hadde sagt, og det kom svære fluesvermer i Faraos hus og i hans tjeneres hus; i hele Egypten blev landet herjet av fluesvermer.
25Þá lét Faraó kalla þá Móse og Aron og sagði: ,,Farið og færið fórnir Guði yðar hér innanlands.``
25Da kalte Farao Moses og Aron til sig og sa: Gå og ofre til eders Gud her i landet!
26En Móse svaraði: ,,Ekki hæfir að vér gjörum svo, því að vér færum Drottni, Guði vorum, þær fórnir, sem eru Egyptum andstyggð. Ef vér nú bærum fram þær fórnir, sem eru Egyptum andstyggð, að þeim ásjáandi, mundu þeir þá ekki grýta oss?
26Men Moses sa: Det er ikke rådelig å gjøre så; for det vi ofrer til Herren vår Gud, er en vederstyggelighet for egypterne; om vi nu ofret for egypternes øine det som er en vederstyggelighet for dem, vilde de da ikke stene oss?
27Vér verðum að fara þrjár dagleiðir út á eyðimörkina til að færa fórnir Drottni, Guði vorum, eins og hann hefir boðið oss.``
27Tre dagsreiser vil vi gå ut i ørkenen og ofre til Herren vår Gud, således som han byder oss.
28Þá mælti Faraó: ,,Ég vil leyfa yður að fara burt, svo að þér færið fórnir Drottni, Guði yðar, á eyðimörkinni. Aðeins megið þér ekki fara of langt í burt. Biðjið fyrir mér!``
28Da sa Farao: Jeg vil la eder fare, så I kan ofre til Herren eders Gud i ørkenen; men I må ikke dra langt bort. Bed for mig!
29Móse svaraði: ,,Sjá, þegar ég kem út frá þér, vil ég biðja til Drottins, að flugurnar víki frá Faraó og frá þjónum hans og frá fólki hans á morgun. En þá má Faraó ekki oftar prettast um að leyfa fólkinu að fara burt til að færa Drottni fórnir.``
29Moses svarte: Se, jeg går nu ut og vil bede til Herren, og imorgen skal fluesvermene vike bort fra Farao, fra hans tjenere og fra hans folk; bare nu Farao ikke mere vil bruke svik, men la folket fare, så de kan ofre til Herren.
30Þá gekk Móse út frá Faraó og bað til Drottins.
30Så gikk Moses ut fra Farao og bad til Herren.
31Og Drottinn gjörði sem Móse bað og lét flugurnar víkja frá Faraó og þjónum hans og fólki hans, svo að ekki ein varð eftir.En Faraó herti þá enn hjarta sitt, og ekki leyfði hann fólkinu að fara.
31Og Herren gjorde som Moses bad, og lot fluesvermene vike bort fra Farao, fra hans tjenere og fra hans folk; det blev ikke én igjen.
32En Faraó herti þá enn hjarta sitt, og ekki leyfði hann fólkinu að fara.
32Men Farao forherdet sitt hjerte også denne gang; han lot ikke folket fare.