1Enginn sá, er meiddur hefir verið eistnamari eða hreðurskorinn, má vera í söfnuði Drottins.
1He who is wounded in the stones, or has his privy member cut off, shall not enter into the assembly of Yahweh.
2Enginn bastarður má vera í söfnuði Drottins, jafnvel ekki tíundi maður frá honum má vera í söfnuði Drottins.
2A bastard shall not enter into the assembly of Yahweh; even to the tenth generation shall none of his enter into the assembly of Yahweh.
3Enginn Ammóníti eða Móabíti má vera í söfnuði Drottins. Jafnvel ekki tíundi maður frá þeim má vera í söfnuði Drottins að eilífu,
3An Ammonite or a Moabite shall not enter into the assembly of Yahweh; even to the tenth generation shall none belonging to them enter into the assembly of Yahweh forever:
4vegna þess að þeir komu ekki í móti yður með brauð og vatn, þá er þér voruð á leiðinni frá Egyptalandi, og vegna þess að þeir keyptu í móti þér Bíleam Beórsson frá Petór í Mesópótamíu til þess að bölva þér.
4because they didn’t meet you with bread and with water in the way, when you came forth out of Egypt, and because they hired against you Balaam the son of Beor from Pethor of Mesopotamia, to curse you.
5En Drottinn Guð þinn vildi ekki hlýða á Bíleam, og Drottinn Guð þinn sneri bölvaninni í blessan fyrir þig, af því að Drottinn Guð þinn elskaði þig.
5Nevertheless Yahweh your God wouldn’t listen to Balaam; but Yahweh your God turned the curse into a blessing to you, because Yahweh your God loved you.
6Þú skalt aldrei alla ævi þína láta þér annt um farsæld þeirra og velgengni.
6You shall not seek their peace nor their prosperity all your days forever.
7Þú skalt eigi hafa andstyggð á Edómítum, því að þeir eru bræður þínir. Þú skalt eigi hafa andstyggð á Egyptum, því að þú dvaldir sem útlendingur í landi þeirra.
7You shall not abhor an Edomite; for he is your brother: you shall not abhor an Egyptian, because you lived as a foreigner in his land.
8Afkomendur þeirra í þriðja lið mega vera í söfnuði Drottins.
8The children of the third generation who are born to them shall enter into the assembly of Yahweh.
9Þegar þú fer í hernað móti óvinum þínum, þá skalt þú gæta þín við öllum illum hlutum.
9When you go forth in camp against your enemies, then you shall keep yourselves from every evil thing.
10Ef einhver, sem með þér er, er ekki hreinn vegna þess, sem hann hefir hent um nóttina, þá skal hann ganga út fyrir herbúðirnar og má eigi koma inn í herbúðirnar,
10If there is among you any man who is not clean by reason of that which happens him by night, then shall he go outside of the camp. He shall not come within the camp:
11en að áliðnum degi skal hann lauga sig í vatni, og er sól er setst, má hann aftur ganga inn í herbúðirnar.
11but it shall be, when evening comes on, he shall bathe himself in water; and when the sun is down, he shall come within the camp.
12Þú skalt og hafa afvikinn stað fyrir utan herbúðirnar. Þangað skalt þú fara erinda þinna.
12You shall have a place also outside of the camp, where you shall go forth abroad:
13Og þú skalt hafa spaða í tækjum þínum, og er þú þarft að setjast niður úti, þá skalt þú grafa holu með honum, moka því næst aftur yfir og hylja saurindin.
13and you shall have a paddle among your weapons; and it shall be, when you sit down abroad, you shall dig therewith, and shall turn back and cover that which comes from you:
14Því að Drottinn Guð þinn er á gangi um herbúðir þínar til þess að frelsa þig og gefa óvini þína á þitt vald; fyrir því skulu herbúðir þínar helgar vera, svo að hann sjái ekkert óþokkalegt hjá þér og snúi sér burt frá þér.
14for Yahweh your God walks in the midst of your camp, to deliver you, and to give up your enemies before you; therefore your camp shall be holy, that he may not see an unclean thing in you, and turn away from you.
15Þú skalt eigi framselja í hendur húsbónda þræl, sem flúið hefir til þín frá húsbónda sínum.
15You shall not deliver to his master a servant who is escaped from his master to you:
16Hann skal setjast að hjá þér, í landi þínu, á þeim stað, er hann sjálfur velur, í einhverri af borgum þínum, þar sem honum best líkar. Þú skalt ekki sýna honum ójöfnuð.
16he shall dwell with you, in the midst of you, in the place which he shall choose within one of your gates, where it pleases him best: you shall not oppress him.
17Á meðal Ísraels dætra má engin vera, sú er helgi sig saurlifnaði, og á meðal Ísraels sona má enginn vera, sá er helgi sig saurlifnaði.
17There shall be no prostitute of the daughters of Israel, neither shall there be a sodomite of the sons of Israel.
18Þú skalt eigi bera skækjulaun eða hundsgjald inn í hús Drottins Guðs þíns eftir neinu heiti, því að einnig hvort tveggja þetta er Drottni Guði þínum andstyggilegt.
18You shall not bring the hire of a prostitute, or the wages of a dog, into the house of Yahweh your God for any vow: for even both these are an abomination to Yahweh your God.
19Þú skalt ekki taka fjárleigu af bróður þínum, hvorki fyrir peninga, matvæli né nokkurn hlut annan, er ljá má gegn leigu.
19You shall not lend on interest to your brother; interest of money, interest of food, interest of anything that is lent on interest:
20Af útlendum manni mátt þú taka fjárleigu, en af bróður þínum mátt þú ekki taka fjárleigu, til þess að Drottinn Guð þinn blessi þig í öllu því, er þú tekur þér fyrir hendur í landinu, sem þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar.
20to a foreigner you may lend on interest; but to your brother you shall not lend on interest, that Yahweh your God may bless you in all that you put your hand to, in the land where you go in to possess it.
21Þegar þú gjörir Drottni Guði þínum heit, þá skalt þú ekki láta dragast að efna það, því að ella mun Drottinn Guð þinn krefjast þess af þér og það verða þér til syndar.
21When you shall vow a vow to Yahweh your God, you shall not be slack to pay it: for Yahweh your God will surely require it of you; and it would be sin in you.
22En þótt þú sleppir því að gjöra heit, þá hvílir engin sekt á þér fyrir það.
22But if you shall forbear to vow, it shall be no sin in you.
23Það sem komið hefir yfir varir þínar, skalt þú halda og breyta eftir því, eins og þú sjálfviljuglega hefir heitið Drottni Guði þínum, það sem þú hefir talað með munni þínum.
23That which is gone out of your lips you shall observe and do; according as you have vowed to Yahweh your God, a freewill offering, which you have promised with your mouth.
24Þegar þú kemur í víngarð náunga þíns, þá mátt þú eta vínber eins og þig lystir, þar til er þú ert mettur, en í ker þitt mátt þú ekkert láta.Þegar þú kemur á kornakur náunga þíns, þá mátt þú tína öx með hendinni, en sigð mátt þú ekki sveifla yfir kornstöngum náunga þíns.
24When you come into your neighbor’s vineyard, then you may eat of grapes your fill at your own pleasure; but you shall not put any in your vessel.
25Þegar þú kemur á kornakur náunga þíns, þá mátt þú tína öx með hendinni, en sigð mátt þú ekki sveifla yfir kornstöngum náunga þíns.
25When you come into your neighbor’s standing grain, then you may pluck the ears with your hand; but you shall not move a sickle to your neighbor’s standing grain.