1Heyr þú nú, Ísrael, lög þau og ákvæði, sem ég kenni yður, til þess að þér haldið þau, svo að þér megið lifa og komast inn í það land, sem Drottinn, Guð feðra yðar, gefur yður, og fá það til eignar.
1Now, Israel, listen to the statutes and to the ordinances, which I teach you, to do them; that you may live, and go in and possess the land which Yahweh, the God of your fathers, gives you.
2Þér skuluð engu auka við þau boðorð, sem ég legg fyrir yður, né heldur draga nokkuð frá, svo að þér varðveitið skipanir Drottins Guðs yðar, sem ég legg fyrir yður.
2You shall not add to the word which I command you, neither shall you diminish from it, that you may keep the commandments of Yahweh your God which I command you.
3Þér hafið séð með eigin augum, hvað Drottinn gjörði sakir Baal Peór, því að öllum þeim mönnum, sem fylgdu Baal Peór, eyddi Drottinn Guð þinn úr samfélagi yðar.
3Your eyes have seen what Yahweh did because of Baal Peor; for all the men who followed Baal Peor, Yahweh your God has destroyed them from the midst of you.
4En þér, sem hélduð yður fast við Drottin Guð yðar, lifið allir fram á þennan dag.
4But you who were faithful to Yahweh your God are all alive this day.
5Sjá, ég hefi kennt yður lög og ákvæði, eins og Drottinn Guð minn lagði fyrir mig, til þess að þér breytið eftir þeim í því landi, sem þér haldið nú inn í til þess að taka það til eignar.
5Behold, I have taught you statutes and ordinances, even as Yahweh my God commanded me, that you should do so in the midst of the land where you go in to possess it.
6Varðveitið þau því og haldið þau, því að það mun koma á yður orði hjá öðrum þjóðum fyrir visku og skynsemi. Þegar þær heyra öll þessi lög, munu þær segja: ,,Það er vissulega viturt og skynsamt fólk, þessi mikla þjóð.``
6Keep therefore and do them; for this is your wisdom and your understanding in the sight of the peoples, who shall hear all these statutes, and say, “Surely this great nation is a wise and understanding people.”
7Því að hvaða stórþjóð er til, sem hafi guð, er henni sé eins nálægur eins og Drottinn Guð vor er oss, hvenær sem vér áköllum hann?
7For what great nation is there, that has a god so near to them, as Yahweh our God is whenever we call on him?
8Og hver er sú stórþjóð, er hafi svo réttlát lög og ákvæði, eins og allt þetta lögmál er, sem ég legg fyrir yður í dag?
8What great nation is there, that has statutes and ordinances so righteous as all this law, which I set before you this day?
9En vara þig og gæt vandlega sálar þinnar, að eigi gleymir þú þeim hlutum, sem þú hefir séð með eigin augum, og að það ekki líði þér úr minni alla ævidaga þína, og þú skalt gjöra þá kunna börnum þínum og barnabörnum.
9Only take heed to yourself, and keep your soul diligently, lest you forget the things which your eyes saw, and lest they depart from your heart all the days of your life; but make them known to your children and your children’s children;
10Gleym þú eigi deginum, þegar þú stóðst frammi fyrir Drottni Guði þínum hjá Hóreb, og Drottinn sagði við mig: ,,Safna þú lýðnum saman fyrir mig. Ég ætla að láta þá heyra orð mín, svo að þeir læri að óttast mig alla þá daga, sem þeir lifa á jörðinni, og kenni það einnig börnum sínum.``
10the day that you stood before Yahweh your God in Horeb, when Yahweh said to me, “Assemble me the people, and I will make them hear my words, that they may learn to fear me all the days that they live on the earth, and that they may teach their children.”
11Þér komuð þá fram og námuð staðar undir fjallinu, en fjallið logaði allt í eldi upp í háan himin. Fylgdi því myrkur, ský og sorti.
11You came near and stood under the mountain; and the mountain burned with fire to the heart of the sky, with darkness, cloud, and thick darkness.
12Og Drottinn talaði við yður út úr eldinum. Hljóm orðanna heyrðuð þér, en mynd sáuð þér enga, þér heyrðuð aðeins hljóminn.
12Yahweh spoke to you out of the midst of the fire: you heard the voice of words, but you saw no form; you only heard a voice.
13Þá birti hann yður sáttmála sinn, sem hann bauð yður að halda, tíu boðorðin, og hann reit þau á tvær steintöflur.
13He declared to you his covenant, which he commanded you to perform, even the ten commandments; and he wrote them on two tables of stone.
14Þá bauð Drottinn mér að kenna yður lög og ákvæði, svo að þér gætuð breytt eftir þeim í því landi, er þér haldið nú yfir til, til þess að taka það til eignar.
14Yahweh commanded me at that time to teach you statutes and ordinances, that you might do them in the land where you go over to possess it.
15Gætið yðar því vandlega, líf yðar liggur við _ því að þér sáuð enga mynd á þeim degi, þegar Drottinn talaði við yður hjá Hóreb út úr eldinum, _
15Take therefore good heed to yourselves; for you saw no kind of form on the day that Yahweh spoke to you in Horeb out of the midst of the fire.
16að þér ekki mannspillið yður á því að búa yður til skurðgoð í mynd einhvers líkneskis, hvort heldur er í líki karls eða konu,
16Lest you corrupt yourselves, and make yourself an engraved image in the form of any figure, the likeness of male or female,
17í líki einhvers ferfætlings, sem til er á jörðinni, í líki einhvers fleygs fugls, er flýgur í loftinu,
17the likeness of any animal that is on the earth, the likeness of any winged bird that flies in the sky,
18í líki einhvers dýrs, sem skríður á jörðinni, eða í líki einhvers fisks, sem til er í vötnunum undir jörðinni,
18the likeness of anything that creeps on the ground, the likeness of any fish that is in the water under the earth;
19og að þú eigi, þegar þú lyftir augum þínum til himins og sér sólina, tunglið og stjörnurnar, allan himinsins her, látir tælast til þess að falla fram fyrir þeim og dýrka þau. Því að Drottinn Guð þinn hefir skipt þeim meðal allra þjóða undir himninum.
19and lest you lift up your eyes to the sky, and when you see the sun and the moon and the stars, even all the army of the sky, you are drawn away and worship them, and serve them, which Yahweh your God has allotted to all the peoples under the whole sky.
20Yður hefir Drottinn tekið að sér og leitt yður út úr járnbræðsluofninum, út úr Egyptalandi, svo að þér skylduð verða eignarþjóð hans, sem og hefir verið til þessa.
20But Yahweh has taken you, and brought you forth out of the iron furnace, out of Egypt, to be to him a people of inheritance, as at this day.
21Drottinn reiddist mér yðar vegna, svo að hann sór, að ég skyldi ekki komast yfir Jórdan og ekki komast inn í góða landið, sem Drottinn Guð þinn gefur þér til eignar,
21Furthermore Yahweh was angry with me for your sakes, and swore that I should not go over the Jordan, and that I should not go in to that good land, which Yahweh your God gives you for an inheritance:
22heldur hlýt ég að deyja í þessu landi og fæ ekki að komast yfir Jórdan. En þér munuð komast yfir um og fá þetta góða land til eignar.
22but I must die in this land, I must not go over the Jordan; but you shall go over, and possess that good land.
23Gætið yðar, að þér gleymið ekki sáttmálanum, er Drottinn Guð yðar hefir við yður gjört, og búið yður ekki til skurðgoð í mynd einhvers þess, er Drottinn Guð þinn hefir bannað þér.
23Take heed to yourselves, lest you forget the covenant of Yahweh your God, which he made with you, and make you an engraved image in the form of anything which Yahweh your God has forbidden you.
24Því að Drottinn Guð þinn er eyðandi eldur, vandlátur Guð.
24For Yahweh your God is a devouring fire, a jealous God.
25Þegar þér hafið getið börn og barnabörn, og hafið ílengst í landinu, _ ef þér þá mannspillið yður á því að búa til skurðgoð í einhverri mynd og gjörið það, sem illt er í augum Drottins Guðs yðar, svo að þér egnið hann til reiði,
25When you shall father children, and children’s children, and you shall have been long in the land, and shall corrupt yourselves, and make an engraved image in the form of anything, and shall do that which is evil in the sight of Yahweh your God, to provoke him to anger;
26þá kveð ég í dag bæði himin og jörð til vitnis móti yður, að þá munuð þér brátt eyðast úr því landi, er þér haldið nú inn í yfir Jórdan til þess að fá það til eignar. Þér munuð þá eigi lifa þar mörg árin, heldur verða gjöreyddir.
26I call heaven and earth to witness against you this day, that you shall soon utterly perish from off the land whereunto you go over the Jordan to possess it; you shall not prolong your days on it, but shall utterly be destroyed.
27Og Drottinn mun þá dreifa yður meðal þjóðanna, svo að af yður skal einungis eftir verða lítill hópur meðal heiðingja þeirra, er Drottinn leiðir yður burt til.
27Yahweh will scatter you among the peoples, and you shall be left few in number among the nations, where Yahweh shall lead you away.
28Þar munuð þér þjóna þeim guðum, sem eru handaverk manna, stokkar og steinar, sem eigi sjá og eigi heyra og eigi eta og eigi finna lykt.
28There you shall serve gods, the work of men’s hands, wood and stone, which neither see, nor hear, nor eat, nor smell.
29Þar munt þú leita Drottins Guðs þíns, og þú munt finna hann, ef þú leitar hans af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni.
29But from there you shall seek Yahweh your God, and you shall find him, when you search after him with all your heart and with all your soul.
30Þegar þú ert í nauðum staddur og allt þetta kemur yfir þig, þá munt þú, á komandi tímum, snúa þér til Drottins Guðs þíns og hlýða hans röddu.
30When you are in oppression, and all these things have come on you, in the latter days you shall return to Yahweh your God, and listen to his voice:
31Því að Drottinn Guð þinn er miskunnsamur Guð. Hann mun eigi yfirgefa þig né afmá þig, og hann mun eigi gleyma sáttmálanum, er hann sór feðrum þínum.
31for Yahweh your God is a merciful God; he will not fail you, neither destroy you, nor forget the covenant of your fathers which he swore to them.
32Spyr þig fyrir um fyrri tíma, sem verið hafa á undan þér, allt frá þeim tíma, er Guð skóp mennina á jörðinni, og frá einu heimsskauti til annars, hvort nokkurn tíma hafi orðið svo miklir hlutir eða nokkuð slíkt heyrst,
32For ask now of the days that are past, which were before you, since the day that God created man on the earth, and from the one end of the sky to the other, whether there has been anything as this great thing is, or has been heard like it?
33hvort nokkur þjóð hafi heyrt raust Guðs út úr eldinum, eins og þú hefir heyrt, og þó haldið lífi.
33Did a people ever hear the voice of God speaking out of the midst of the fire, as you have heard, and live?
34Eða hvort Guð hefir til reynt nokkurn tíma að koma sjálfur til þess að ná þjóð af annarri þjóð með máttarverkum, táknum og undrum, með styrjöld, sterkri hendi, útréttum armlegg og miklum skelfingum, eins og Drottinn Guð þinn gjörði við yður í Egyptalandi í augsýn þinni.
34Or has God tried to go and take a nation for himself from the midst of another nation, by trials, by signs, and by wonders, and by war, and by a mighty hand, and by an outstretched arm, and by great terrors, according to all that Yahweh your God did for you in Egypt before your eyes?
35Þetta hefir þú fengið að sjá, svo að þú mættir vita, að Drottinn, hann er Guð, og enginn nema hann einn.
35It was shown to you so that you might know that Yahweh is God. There is no one else besides him.
36Af himni hefir hann látið þig heyra sína raust til þess að kenna þér, og á jörðu hefir hann látið þig sjá hinn mikla eld sinn, og þú hefir heyrt orð hans út úr eldinum.
36Out of heaven he made you to hear his voice, that he might instruct you: and on earth he made you to see his great fire; and you heard his words out of the midst of the fire.
37Og fyrir því að hann elskaði feður þína og útvaldi niðja þeirra eftir þá og leiddi þig sjálfur af Egyptalandi með hinum mikla mætti sínum
37Because he loved your fathers, therefore he chose their seed after them, and brought you out with his presence, with his great power, out of Egypt;
38til þess að stökkva burt undan þér þjóðum, sem eru stærri og sterkari en þú ert, en leiða þig þangað og gefa þér land þeirra til eignar, eins og nú er fram komið,
38to drive out nations from before you greater and mightier than you, to bring you in, to give you their land for an inheritance, as at this day.
39þá ber þér í dag að kannast við það og hugfesta það, að Drottinn, hann er Guð á himnum uppi og á jörðu niðri og enginn annar.
39Know therefore this day, and lay it to your heart, that Yahweh he is God in heaven above and on the earth beneath; there is none else.
40Þú skalt varðveita boð hans og skipanir, sem ég legg fyrir þig í dag, svo að þér vegni vel og börnum þínum eftir þig, og til þess að þú alla daga megir dvelja langa ævi í landinu, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.
40You shall keep his statutes, and his commandments, which I command you this day, that it may go well with you, and with your children after you, and that you may prolong your days in the land, which Yahweh your God gives you, forever.
41Þá skildi Móse frá þrjár borgir hinumegin Jórdanar, austanmegin,
41Then Moses set apart three cities beyond the Jordan toward the sunrise;
42til þess að þangað mætti flýja hver sá vegandi, er óviljandi hefði vegið náunga sinn og eigi verið óvinur hans áður _ að hann mætti flýja í einhverja af borgum þessum og halda lífi:
42that the manslayer might flee there, who kills his neighbor unawares, and didn’t hate him in time past; and that fleeing to one of these cities he might live:
43Beser í eyðimörkinni á sléttlendinu handa Rúbenítum, Ramót í Gíleað handa Gaðítum og Gólan í Basan handa Manassítum.
43Bezer in the wilderness, in the plain country, for the Reubenites; and Ramoth in Gilead, for the Gadites; and Golan in Bashan, for the Manassites.
44Þetta er lögmálið, sem Móse lagði fyrir Ísraelsmenn.
44This is the law which Moses set before the children of Israel:
45Þetta eru fyrirmæli þau, lög og ákvæði, sem Móse birti Ísraelsmönnum, þá er þeir fóru af Egyptalandi,
45these are the testimonies, and the statutes, and the ordinances, which Moses spoke to the children of Israel, when they came forth out of Egypt,
46hinumegin Jórdanar, í dalnum gegnt Bet Peór í landi Síhons Amorítakonungs, sem hafði aðsetur í Hesbon og Móse og Ísraelsmenn felldu, er þeir fóru af Egyptalandi.
46beyond the Jordan, in the valley over against Beth Peor, in the land of Sihon king of the Amorites, who lived at Heshbon, whom Moses and the children of Israel struck, when they came forth out of Egypt.
47Þeir lögðu undir sig land hans, svo og land Ógs, konungs í Basan, land Amorítakonunganna beggja, hinumegin Jórdanar, austanmegin,
47They took his land in possession, and the land of Og king of Bashan, the two kings of the Amorites, who were beyond the Jordan toward the sunrise;
48frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, allt til Síón, það er Hermon,og allt sléttlendið hinumegin Jórdanar, austanmegin, allt að vatninu á sléttlendinu undir Pisgahlíðum.
48from Aroer, which is on the edge of the valley of the Arnon, even to Mount Sion (the same is Hermon),
49og allt sléttlendið hinumegin Jórdanar, austanmegin, allt að vatninu á sléttlendinu undir Pisgahlíðum.
49and all the Arabah beyond the Jordan eastward, even to the sea of the Arabah, under the slopes of Pisgah.