Icelandic

World English Bible

Ezekiel

39

1Og þú, mannsson, spá þú gegn Góg og seg: Svo segir Drottinn Guð: Ég skal finna þig, Góg, höfðingi yfir Rós, Mesek og Túbal,
1You, son of man, prophesy against Gog, and say, Thus says the Lord Yahweh: Behold, I am against you, Gog, prince of Rosh, Meshech, and Tubal:
2og snúa þér við og fara með þig og láta þig koma lengst úr norðri og leiða þig upp á Ísraels fjöll.
2and I will turn you around, and will lead you on, and will cause you to come up from the uttermost parts of the north; and I will bring you on the mountains of Israel;
3Og ég skal slá bogann úr vinstri hendi þinni og láta örvarnar detta úr hægri hendi þinni.
3and I will strike your bow out of your left hand, and will cause your arrows to fall out of your right hand.
4Á Ísraels fjöllum skalt þú falla, þú og allar hersveitir þínar og þær þjóðir, sem eru í för með þér. Alls konar ránfuglum og dýrum merkurinnar gef ég þig til fæðslu.
4You shall fall on the mountains of Israel, you, and all your hordes, and the peoples who are with you: I will give you to the ravenous birds of every sort, and to the animals of the field to be devoured.
5Úti á víðavangi skalt þú falla, því að ég hefi talað það, segir Drottinn Guð.
5You shall fall on the open field; for I have spoken it, says the Lord Yahweh.
6Og ég vil steypa eldi yfir Magóg og yfir þá, sem ugglausir búa í strandbyggðunum, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn.
6I will send a fire on Magog, and on those who dwell securely in the islands; and they shall know that I am Yahweh.
7En ég vil gjöra mitt heilaga nafn kunnugt meðal lýðs míns Ísraels og ekki framar láta vanhelga mitt heilaga nafn, til þess að þjóðirnar viðurkenni, að ég er Drottinn, heilagur í Ísrael.
7My holy name will I make known in the midst of my people Israel; neither will I allow my holy name to be profaned any more: and the nations shall know that I am Yahweh, the Holy One in Israel.
8Sjá, það kemur fram og verður, _ segir Drottinn Guð. Það er dagurinn, sem ég hefi talað um.
8Behold, it comes, and it shall be done, says the Lord Yahweh; this is the day about which I have spoken.
9Þá munu íbúar Ísraels borga út ganga og eld kveikja og kynda með vopnum, törgum og skjöldum, með bogum og örvum, kylfum og lensum. Í sjö ár skulu þeir elda þessu.
9Those who dwell in the cities of Israel shall go forth, and shall make fires of the weapons and burn them, both the shields and the bucklers, the bows and the arrows, and the war clubs, and the spears, and they shall make fires of them seven years;
10Þeir munu ekki sækja við í mörkina né höggva neitt í skógunum, heldur munu þeir kynda eld með vopnum. Og þeir munu fletta þá, sem þá flettu, og ræna þá, sem þá rændu _ segir Drottinn Guð.
10so that they shall take no wood out of the field, neither cut down any out of the forests; for they shall make fires of the weapons; and they shall plunder those who plundered them, and rob those who robbed them, says the Lord Yahweh.
11En á þeim degi mun ég ákveða Góg samastað, legstað í Ísrael, Abarímdal, fyrir austan Dauðahafið. Menn munu girða fyrir Abarímdal. Þar munu þeir grafa Góg og allan liðmúg hans og nefna hann Gógsmúgadal.
11It shall happen in that day, that I will give to Gog a place for burial in Israel, the valley of those who pass through on the east of the sea; and it shall stop those who pass through: and there shall they bury Gog and all his multitude; and they shall call it The valley of Hamon Gog.
12Og Ísraelsmenn munu vera að jarða þá í sjö mánuði til þess að hreinsa landið.
12Seven months shall the house of Israel be burying them, that they may cleanse the land.
13Og allur landslýðurinn skal starfa að þeim grefti, og það skal verða þeim til frægðar þann dag, er ég gjöri mig dýrlegan _ segir Drottinn Guð.
13Yes, all the people of the land shall bury them; and it shall be to them a renown in the day that I shall be glorified, says the Lord Yahweh.
14Og þeir munu útvelja menn til þess stöðuga starfa að fara um landið og jarða þá, sem enn liggja eftir ofan jarðar, til þess að hreinsa landið. Að liðnum sjö mánuðum skulu þeir enn kanna það.
14They shall set apart men of continual employment, who shall pass through the land, and, with those who pass through, those who bury those who remain on the surface of the land, to cleanse it: after the end of seven months shall they search.
15Og þegar þeir fara um landið og einhver sér mannsbein, þá skal hann hlaða þar vörðu hjá, uns graftarmennirnir hafa grafið þau í Gógsmúgadal.
15Those who pass through the land shall pass through; and when any sees a man’s bone, then shall he set up a sign by it, until the undertakers have buried it in the valley of Hamon Gog.
16Og þannig skulu þeir grafa þar allan liðmúg sinn og hreinsa þannig landið.
16Hamonah shall also be the name of a city. Thus shall they cleanse the land.
17En þú, mannsson, svo segir Drottinn Guð: Seg þú við alls konar fugla og við öll dýr merkurinnar: Safnist saman og komið, þyrpist saman úr öllum áttum til fórnarveislu minnar, sem ég held yður, til mikillar fórnarveislu á Ísraels fjöllum, þar sem þér skuluð eta kjöt og drekka blóð.
17You, son of man, thus says the Lord Yahweh: Speak to the birds of every sort, and to every animal of the field, Assemble yourselves, and come; gather yourselves on every side to my sacrifice that I do sacrifice for you, even a great sacrifice on the mountains of Israel, that you may eat flesh and drink blood.
18Þér skuluð eta kjöt af köppum og drekka blóð úr þjóðhöfðingjum jarðarinnar: hrúta, lömb og hafra, uxa, _ allt saman alifé frá Basan.
18You shall eat the flesh of the mighty, and drink the blood of the princes of the earth, of rams, of lambs, and of goats, of bulls, all of them fatlings of Bashan.
19Og þér skuluð eta feitt kjöt, uns þér eruð saddir orðnir, og þér skuluð drekka blóð, uns þér eruð drukknir orðnir, í fórnarveislu minni, sem ég held yður.
19You shall eat fat until you be full, and drink blood until you are drunk, of my sacrifice which I have sacrificed for you.
20Og þér skuluð seðja yður við mitt borð á reiðskjótum og vagnhestum, á köppum og alls konar stríðsmönnum _ segir Drottinn Guð.
20You shall be filled at my table with horses and chariots, with mighty men, and with all men of war, says the Lord Yahweh.
21Ég vil auglýsa dýrð mína meðal þjóðanna, og allar þjóðir skulu sjá refsidóm minn, þann er ég hefi framkvæmt, og hönd mína, er ég hefi á þá lagt.
21I will set my glory among the nations; and all the nations shall see my judgment that I have executed, and my hand that I have laid on them.
22En Ísraelsmenn skulu viðurkenna, að ég, Drottinn, er Guð þeirra, upp frá þeim degi og framvegis.
22So the house of Israel shall know that I am Yahweh their God, from that day and forward.
23Þjóðirnar skulu viðurkenna, að Ísraelsmenn urðu að fara úr landi eingöngu vegna misgjörðar sinnar, fyrir þá sök að þeir höfðu rofið trúnað við mig, svo að ég byrgði auglit mitt fyrir þeim og seldi þá í hendur óvina þeirra, og féllu þeir þá allir fyrir sverðseggjum.
23The nations shall know that the house of Israel went into captivity for their iniquity; because they trespassed against me, and I hid my face from them: so I gave them into the hand of their adversaries, and they fell all of them by the sword.
24Ég breytti við þá eins og þeir höfðu til unnið með saurugleik sínum og fráhvarfi, og byrgði auglit mitt fyrir þeim.
24According to their uncleanness and according to their transgressions did I to them; and I hid my face from them.
25Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Nú mun ég snúa við högum Jakobs og miskunna mig yfir allan Ísraelslýð og vera sómakær um mitt heilaga nafn.
25Therefore thus says the Lord Yahweh: Now will I bring back the captivity of Jacob, and have mercy on the whole house of Israel; and I will be jealous for my holy name.
26Og þeir skulu gleyma vanvirðu sinni og allri þeirri ótryggð, er þeir hafa í frammi haft við mig, þegar þeir búa aftur óhultir í landi sínu og enginn skelfir þá.
26They shall bear their shame, and all their trespasses by which they have trespassed against me, when they shall dwell securely in their land, and none shall make them afraid;
27Þegar ég leiði þá heim aftur frá þjóðunum og safna þeim saman úr löndum óvina þeirra, þá skal ég auglýsa heilagleik minn á þeim í augsýn margra þjóða.
27when I have brought them back from the peoples, and gathered them out of their enemies’ lands, and am sanctified in them in the sight of many nations.
28Og þá skulu þeir viðurkenna, að ég, Drottinn, er Guð þeirra, með því að ég herleiddi þá til þjóðanna, en safna þeim nú saman inn í þeirra eigið land og læt engan þeirra framar verða þar eftir.Og ég vil ekki framar byrgja auglit mitt fyrir þeim, með því að ég hefi úthellt anda mínum yfir Ísraelslýð, segir Drottinn Guð.``
28They shall know that I am Yahweh their God, in that I caused them to go into captivity among the nations, and have gathered them to their own land; and I will leave none of them any more there;
29Og ég vil ekki framar byrgja auglit mitt fyrir þeim, með því að ég hefi úthellt anda mínum yfir Ísraelslýð, segir Drottinn Guð.``
29neither will I hide my face any more from them; for I have poured out my Spirit on the house of Israel, says the Lord Yahweh.