Icelandic

World English Bible

Genesis

4

1Maðurinn kenndi konu sinnar Evu, og hún varð þunguð og fæddi Kain og mælti: ,,Sveinbarn hefi ég eignast með hjálp Drottins.``
1The man knew Eve his wife. She conceived, and gave birth to Cain, and said, “I have gotten a man with Yahweh’s help.”
2Og hún fæddi annað sinn, bróður hans, Abel. Abel varð hjarðmaður, en Kain jarðyrkjumaður.
2Again she gave birth, to Cain’s brother Abel. Abel was a keeper of sheep, but Cain was a tiller of the ground.
3Og er fram liðu stundir, færði Kain Drottni fórn af ávexti jarðarinnar.
3As time passed, it happened that Cain brought an offering to Yahweh from the fruit of the ground.
4En Abel færði einnig fórn af frumburðum hjarðar sinnar og af feiti þeirra.
4Abel also brought some of the firstborn of his flock and of its fat. Yahweh respected Abel and his offering,
5Og Drottinn leit með velþóknun til Abels og fórnar hans, en til Kains og fórnar hans leit hann ekki með velþóknun. Þá reiddist Kain ákaflega og varð niðurlútur.
5but he didn’t respect Cain and his offering. Cain was very angry, and the expression on his face fell.
6Þá mælti Drottinn til Kains: ,,Hví reiðist þú, og hví ert þú niðurlútur?
6Yahweh said to Cain, “Why are you angry? Why has the expression of your face fallen?
7Er því ekki þannig farið: Ef þú gjörir rétt, þá getur þú verið upplitsdjarfur, en ef þú gjörir ekki rétt, þá liggur syndin við dyrnar og hefir hug á þér, en þú átt að drottna yfir henni?``
7If you do well, will it not be lifted up? If you don’t do well, sin crouches at the door. Its desire is for you, but you are to rule over it.”
8Þá sagði Kain við Abel bróður sinn: ,,Göngum út á akurinn!`` Og er þeir voru á akrinum, réðst Kain á Abel bróður sinn og drap hann.
8Cain said to Abel, his brother, “Let’s go into the field.” It happened when they were in the field, that Cain rose up against Abel, his brother, and killed him.
9Þá sagði Drottinn við Kain: ,,Hvar er Abel bróðir þinn?`` En hann mælti: ,,Það veit ég ekki. Á ég að gæta bróður míns?``
9Yahweh said to Cain, “Where is Abel, your brother?” He said, “I don’t know. Am I my brother’s keeper?”
10Og Drottinn sagði: ,,Hvað hefir þú gjört? Heyr, blóð bróður þíns hrópar til mín af jörðinni!
10Yahweh said, “What have you done? The voice of your brother’s blood cries to me from the ground.
11Og skalt þú nú vera bölvaður og burt rekinn af akurlendinu, sem opnaði munn sinn til að taka á móti blóði bróður þíns af þinni hendi.
11Now you are cursed because of the ground, which has opened its mouth to receive your brother’s blood from your hand.
12Þegar þú yrkir akurlendið, skal það eigi framar gefa þér gróður sinn. Landflótta og flakkandi skalt þú vera á jörðinni.``
12From now on, when you till the ground, it won’t yield its strength to you. You shall be a fugitive and a wanderer in the earth.”
13Og Kain sagði við Drottin: ,,Sekt mín er meiri en svo, að ég fái borið hana!
13Cain said to Yahweh, “My punishment is greater than I can bear.
14Sjá, nú rekur þú mig burt af akurlendinu, og ég verð að felast fyrir augliti þínu og vera landflótta og flakkandi á jörðinni, og hver, sem hittir mig, mun drepa mig.``
14Behold, you have driven me out this day from the surface of the ground. I will be hidden from your face, and I will be a fugitive and a wanderer in the earth. It will happen that whoever finds me will kill me.”
15Þá sagði Drottinn við hann: ,,Fyrir því skal hver, sem drepur Kain, sæta sjöfaldri hegningu.`` Og Drottinn setti Kain merki þess, að enginn, sem hitti hann, skyldi drepa hann.
15Yahweh said to him, “Therefore whoever slays Cain, vengeance will be taken on him sevenfold.” Yahweh appointed a sign for Cain, lest any finding him should strike him.
16Þá gekk Kain burt frá augliti Drottins og settist að í landinu Nód fyrir austan Eden.
16Cain went out from Yahweh’s presence, and lived in the land of Nod, east of Eden.
17Kain kenndi konu sinnar, og hún varð þunguð og fæddi Henok. En hann var að byggja borg og nefndi borgina eftir nafni sonar síns Henok.
17Cain knew his wife. She conceived, and gave birth to Enoch. He built a city, and called the name of the city, after the name of his son, Enoch.
18Og Henoki fæddist Írad, og Írad gat Mehújael, og Mehújael gat Metúsael, og Metúsael gat Lamek.
18To Enoch was born Irad. Irad became the father of Mehujael. Mehujael became the father of Methushael. Methushael became the father of Lamech.
19Lamek tók sér tvær konur. Hét önnur Ada, en hin Silla.
19Lamech took two wives: the name of the one was Adah, and the name of the other Zillah.
20Og Ada ól Jabal. Hann varð ættfaðir þeirra, sem í tjöldum búa og fénað eiga.
20Adah gave birth to Jabal, who was the father of those who dwell in tents and have livestock.
21En bróðir hans hét Júbal. Hann varð ættfaðir allra þeirra, sem leika á gígjur og hjarðpípur.
21His brother’s name was Jubal, who was the father of all who handle the harp and pipe.
22Og Silla ól einnig son, Túbal-Kain, sem smíðaði úr kopar og járni alls konar tól. Og systir Túbal-Kains var Naama.
22Zillah also gave birth to Tubal Cain, the forger of every cutting instrument of brass and iron. Tubal Cain’s sister was Naamah.
23Lamek sagði við konur sínar: Ada og Silla, heyrið orð mín, konur Lameks, gefið gaum ræðu minni! Mann drep ég fyrir hvert mitt sár og ungmenni fyrir hverja þá skeinu, sem ég fæ.
23Lamech said to his wives, “Adah and Zillah, hear my voice. You wives of Lamech, listen to my speech, for I have slain a man for wounding me, a young man for bruising me.
24Verði Kains hefnt sjö sinnum, þá skal Lameks hefnt verða sjö og sjötíu sinnum!
24If Cain will be avenged seven times, truly Lamech seventy-seven times.”
25Og Adam kenndi enn að nýju konu sinnar, og hún ól son og kallaði hann Set. ,,Því að nú hefir Guð,`` kvað hún, ,,gefið mér annað afkvæmi í stað Abels, þar eð Kain drap hann.``En Set fæddist og sonur, og nefndi hann nafn hans Enos. Þá hófu menn að ákalla nafn Drottins.
25Adam knew his wife again. She gave birth to a son, and named him Seth, “for God has appointed me another child instead of Abel, for Cain killed him.”
26En Set fæddist og sonur, og nefndi hann nafn hans Enos. Þá hófu menn að ákalla nafn Drottins.
26There was also born a son to Seth, and he named him Enosh. Then men began to call on Yahweh’s name.