1Drottinn talaði við Móse og sagði:
1Yahweh spoke to Moses, saying,
2,,Og þú skalt segja við Ísraelsmenn: Hver sá Ísraelsmanna, eða útlendra manna, er búa í Ísrael, sem færir Mólok nokkurt afkvæmi sitt, skal líflátinn verða. Landslýður skal lemja hann grjóti.
2“Moreover, you shall tell the children of Israel, ‘Anyone of the children of Israel, or of the strangers who live as foreigners in Israel, who gives any of his seed to Molech; he shall surely be put to death. The people of the land shall stone him with stones.
3Og ég vil snúa augliti mínu gegn þeim manni og uppræta hann úr þjóð sinni, fyrir þá sök að hann hefir fært Mólok afkvæmi sitt til þess að saurga helgidóm minn og vanhelga heilagt nafn mitt.
3I also will set my face against that person, and will cut him off from among his people because he has given of his seed to Molech, to defile my sanctuary, and to profane my holy name.
4En ef landslýður hylmir yfir með slíkum manni, er hann færir Mólok afkvæmi sitt, og líflætur hann ekki,
4If the people of the land all hide their eyes from that person, when he gives of his seed to Molech, and don’t put him to death;
5þá vil ég snúa augliti mínu gegn slíkum manni og gegn ætt hans. Og ég mun uppræta hann og alla þá, er verða honum samsekir í því að taka fram hjá með Mólok, úr þjóð þeirra.
5then I will set my face against that man, and against his family, and will cut him off, and all who play the prostitute after him, to play the prostitute with Molech, from among their people.
6Sá sem leitar til særingaranda og spásagnaranda til þess að taka fram hjá með þeim, gegn honum vil ég snúa augliti mínu og uppræta hann úr þjóð sinni.
6“‘The person that turns to those who are mediums, and to the wizards, to play the prostitute after them, I will even set my face against that person, and will cut him off from among his people.
7Helgist og verið heilagir, því að ég er Drottinn, Guð yðar.
7“‘Sanctify yourselves therefore, and be holy; for I am Yahweh your God.
8Fyrir því skuluð þér varðveita setningar mínar og halda þær. Ég er Drottinn, sá er yður helgar.
8You shall keep my statutes, and do them. I am Yahweh who sanctifies you.
9Hver sá, sem bölvar föður sínum eða móður sinni, skal líflátinn verða. Föður sínum eða móður sinni hefir hann bölvað, blóðsök hvílir á honum.
9“‘For everyone who curses his father or his mother shall surely be put to death: he has cursed his father or his mother; his blood shall be upon him.
10Þá er einhver drýgir hór með konu annars manns, drýgir hór með konu náunga síns, þá skal líflátinn verða bæði hórkarlinn og hórkonan.
10“‘The man who commits adultery with another man’s wife, even he who commits adultery with his neighbor’s wife, the adulterer and the adulteress shall surely be put to death.
11Og leggist maður með konu föður síns, þá hefir hann berað blygðan föður síns. Þau skulu bæði líflátin verða, blóðsök hvílir á þeim.
11“‘The man who lies with his father’s wife has uncovered his father’s nakedness: both of them shall surely be put to death; their blood shall be upon them.
12Og leggist maður með tengdadóttur sinni, þá skulu þau bæði líflátin verða. Svívirðing hafa þau framið, blóðsök hvílir á þeim.
12“‘If a man lies with his daughter-in-law, both of them shall surely be put to death: they have committed a perversion; their blood shall be upon them.
13Og leggist maður með karlmanni sem kona væri, þá fremja þeir báðir viðurstyggð. Þeir skulu líflátnir verða, blóðsök hvílir á þeim.
13“‘If a man lies with a male, as with a woman, both of them have committed an abomination: they shall surely be put to death; their blood shall be upon them.
14Og taki maður bæði konu og móður hennar, þá er það óhæfa. Skal brenna hann í eldi ásamt þeim, svo að eigi gangist við óhæfa meðal yðar.
14“‘If a man takes a wife and her mother, it is wickedness: they shall be burned with fire, both he and they; that there may be no wickedness among you.
15Og eigi maður samlag við skepnu, þá skal hann líflátinn verða, og skepnuna skuluð þér drepa.
15“‘If a man lies with an animal, he shall surely be put to death; and you shall kill the animal.
16Og ef kona kemur nærri einhverri skepnu til samræðis við hana, þá skalt þú deyða konuna og skepnuna. Þau skulu líflátin verða, blóðsök hvílir á þeim.
16“‘If a woman approaches any animal, and lies down with it, you shall kill the woman, and the animal: they shall surely be put to death; their blood shall be upon them.
17Nú tekur einhver systur sína, dóttur föður síns eða dóttur móður sinnar, og sér blygðan hennar og hún sér blygðan hans, þá er það skömm. Þau skulu upprætt verða í augsýn samlanda sinna. Blygðan systur sinnar hefir hann berað og bakað sér sekt.
17“‘If a man takes his sister, his father’s daughter, or his mother’s daughter, and sees her nakedness, and she sees his nakedness; it is a shameful thing; and they shall be cut off in the sight of the children of their people: he has uncovered his sister’s nakedness; he shall bear his iniquity.
18Leggist maður með konu, sem hefir tíðir, og berar blygðan hennar _ hefir beran gjört brunn hennar og hún hefir sjálf berað brunn blóðs síns _, þá skulu þau bæði upprætt verða úr þjóð sinni.
18“‘If a man lies with a woman having her monthly period, and uncovers her nakedness; he has made naked her fountain, and she has uncovered the fountain of her blood: and both of them shall be cut off from among their people.
19Eigi skalt þú bera blygðan móðursystur þinnar eða föðursystur, því að sá maður hefir bert gjört náið skyldmenni sitt, þau hafa bakað sér sekt.
19“‘You shall not uncover the nakedness of your mother’s sister, nor of your father’s sister; for he has made naked his close relative: they shall bear their iniquity.
20Og ef einhver leggst með sifkonu sinni, þá hefir hann berað blygðan föðurbróður síns. Þau hafa bakað sér synd, barnlaus skulu þau deyja.
20If a man lies with his uncle’s wife, he has uncovered his uncle’s nakedness: they shall bear their sin; they shall die childless.
21Og ef einhver tekur konu bróður síns, þá er það saurgun. Blygðan bróður síns hefir hann berað, barnlaus skulu þau vera.
21“‘If a man takes his brother’s wife, it is an impurity: he has uncovered his brother’s nakedness; they shall be childless.
22Varðveitið því allar setningar mínar og öll lög mín og haldið þau, svo að landið, sem ég mun leiða yður inn í, til þess að þér byggið það, spúi yður ekki.
22“‘You shall therefore keep all my statutes, and all my ordinances, and do them; that the land, where I am bringing you to dwell, may not vomit you out.
23Þér skuluð ekki breyta eftir setningum þeirrar þjóðar, sem ég rek burt undan yður, því að þeir frömdu allt þetta og þess vegna bauð mér við þeim.
23You shall not walk in the customs of the nation, which I am casting out before you: for they did all these things, and therefore I abhorred them.
24Fyrir því sagði ég yður: ,Þér skuluð eignast land þeirra, og ég vil gefa yður það til eignar, land sem flýtur í mjólk og hunangi.` Ég er Drottinn, Guð yðar, sem hefi skilið yður frá þjóðunum.
24But I have said to you, “You shall inherit their land, and I will give it to you to possess it, a land flowing with milk and honey.” I am Yahweh your God, who has separated you from the peoples.
25Gjörið því grein hreinna ferfætlinga og óhreinna, og óhreinna fugla og hreinna, og gjörið yður eigi viðurstyggilega á skepnum, fuglum né neinu, sem hrærist á jörðinni, því sem ég hefi greint frá, til þess að það væri yður óhreint.
25“‘You shall therefore make a distinction between the clean animal and the unclean, and between the unclean fowl and the clean: and you shall not make yourselves abominable by animal, or by bird, or by anything with which the ground teems, which I have separated from you as unclean for you.
26Og þér skuluð vera heilagir fyrir mér, því að ég, Drottinn, er heilagur, og hefi skilið yður frá þjóðunum, til þess að þér skuluð vera mínir.Hafi maður eða kona særingaranda eða spásagnaranda, þá skulu þau líflátin verða. Skal lemja þau grjóti, blóðsök hvílir á þeim.``
26You shall be holy to me: for I, Yahweh, am holy, and have set you apart from the peoples, that you should be mine.
27Hafi maður eða kona særingaranda eða spásagnaranda, þá skulu þau líflátin verða. Skal lemja þau grjóti, blóðsök hvílir á þeim.``
27“‘A man or a woman that is a medium, or is a wizard, shall surely be put to death: they shall stone them with stones; their blood shall be upon them.’”