1Circa i doni spirituali, fratelli, non voglio che siate nell’ignoranza.
1En svo ég minnist á gáfur andans, bræður, þá vil ég ekki að þér séuð fáfróðir um þær.
2Voi sapete che quando eravate Gentili eravate trascinati dietro agl’idoli muti, secondo che vi si menava.
2Þér vitið, að þegar þér voruð heiðingjar, þá létuð þér leiða yður til mállausra skurðgoðanna, rétt eins og verkast vildi.
3Perciò vi fo sapere che nessuno, parlando per lo Spirito di Dio, dice: Gesù è anatema! e nessuno può dire: Gesù è il Signore! se non per lo Spirito Santo.
3Fyrir því læt ég yður vita, að enginn, sem talar af Guðs anda, segir: ,,Bölvaður sé Jesús!`` og enginn getur sagt: ,,Jesús er Drottinn!`` nema af heilögum anda.
4Or vi è diversità di doni, ma v’è un medesimo Spirito.
4Mismunur er á náðargáfum, en andinn er hinn sami,
5E vi è diversità di ministeri, ma non v’è che un medesimo Signore.
5og mismunur er á embættum, en Drottinn hinn sami,
6E vi è varietà di operazioni, ma non v’è che un medesimo Iddio, il quale opera tutte le cose in tutti.
6og mismunur er á hæfileikum að framkvæma, en Guð hinn sami, sem öllu kemur til leiðar í öllum.
7Or a ciascuno è data la manifestazione dello Spirito per l’utile comune.
7Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er.
8Infatti, a uno è data mediante lo Spirito parola di sapienza; a un altro, parola di conoscenza, secondo il medesimo Spirito;
8Einum er fyrir andann gefið að mæla af speki, öðrum að mæla af þekkingu í krafti sama anda.
9a un altro, fede, mediante il medesimo Spirito; a un altro, doni di guarigioni, per mezzo del medesimo Spirito; a un altro, potenza d’operar miracoli;
9Hinn sami andi veitir einum trú, öðrum lækningagáfu
10a un altro, profezia; a un altro, il discernimento degli spiriti; a un altro, diversità di lingue, e ad un altro, la interpretazione delle lingue;
10og öðrum kraft til að framkvæma undur. Einn fær spádómsgáfu, annar hæfileika að greina anda, einn að tala tungum og annar að útleggja tungutal.
11ma tutte queste cose le opera quell’uno e medesimo Spirito, distribuendo i suoi doni a ciascuno in particolare come Egli vuole.
11En öllu þessu kemur til leiðar eini og sami andinn, og hann útbýtir hverjum einum eftir vild sinni.
12Poiché, siccome il corpo è uno ed ha molte membra, e tutte le membra del corpo, benché siano molte, formano un unico corpo, così ancora è di Cristo.
12Því að eins og líkaminn er einn og hefur marga limi, en allir limir líkamans, þótt margir séu, eru einn líkami, þannig er og Kristur.
13Infatti noi tutti abbiam ricevuto il battesimo di un unico Spirito per formare un unico corpo, e Giudei e Greci, e schiavi e liberi; e tutti siamo stati abbeverati di un unico Spirito.
13Í einum anda vorum vér allir skírðir til að vera einn líkami, hvort sem vér erum Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir, og allir fengum vér einn anda að drekka.
14E infatti il corpo non si compone di un membro solo, ma di molte membra.
14Því að líkaminn er ekki einn limur, heldur margir.
15Se il piè dicesse: Siccome io non sono mano, non son del corpo, non per questo non sarebbe del corpo.
15Ef fóturinn segði: ,,Fyrst ég er ekki hönd, heyri ég ekki líkamanum til,`` þá er hann ekki fyrir það líkamanum óháður.
16E se l’orecchio dicesse: Siccome io non son occhio, non son del corpo, non per questo non sarebbe del corpo.
16Og ef eyrað segði: ,,Fyrst ég er ekki auga, heyri ég ekki líkamanum til,`` þá er það ekki þar fyrir líkamanum óháð.
17Se tutto il corpo fosse occhio, dove sarebbe l’udito? Se tutto fosse udito, dove sarebbe l’odorato?
17Ef allur líkaminn væri auga, hvar væri þá heyrnin? Ef hann væri allur heyrn, hvar væri þá ilmanin?
18Ma ora Iddio ha collocato ciascun membro nel corpo, come ha voluto.
18En nú hefur Guð sett hvern einstakan lim á líkamann eins og honum þóknaðist.
19E se tutte le membra fossero un unico membro, dove sarebbe il corpo?
19Ef allir limirnir væru einn limur, hvar væri þá líkaminn?
20Ma ora ci son molte membra, ma c’è un unico corpo;
20En nú eru limirnir margir, en líkaminn einn.
21e l’occhio non può dire alla mano: Io non ho bisogno di te; né il capo può dire ai piedi: Non ho bisogno di voi.
21Augað getur ekki sagt við höndina: ,,Ég þarfnast þín ekki!`` né heldur höfuðið við fæturna: ,,Ég þarfnast ykkar ekki!``
22Al contrario, le membra del corpo che paiono essere più deboli, sono invece necessarie;
22Nei, miklu fremur eru þeir limir á líkamanum nauðsynlegir, sem virðast vera í veikbyggðara lagi.
23e quelle parti del corpo che noi stimiamo esser le meno onorevoli, noi le circondiamo di maggior onore; e le parti nostre meno decorose son fatte segno di maggior decoro,
23Og þeim, sem oss virðast vera í óvirðulegra lagi á líkamanum, þeim veitum vér því meiri sæmd, og þeim, sem vér blygðumst vor fyrir, sýnum vér því meiri blygðunarsemi.
24mentre le parti nostre decorose non ne hanno bisogno; ma Dio ha costrutto il corpo in modo da dare maggior onore alla parte che ne mancava,
24Þess þarfnast hinir ásjálegu limir vorir ekki. En Guð setti líkamann svo saman, að hann gaf þeim, sem síðri var, því meiri sæmd,
25affinché non ci fosse divisione nel corpo, ma le membra avessero la medesima cura le une per le altre.
25til þess að ekki yrði ágreiningur í líkamanum, heldur skyldu limirnir bera sameiginlega umhyggju hver fyrir öðrum.
26E se un membro soffre, tutte le membra soffrono con lui; e se un membro è onorato, tutte le membra ne gioiscono con lui.
26Og hvort heldur einn limur þjáist, þá þjást allir limirnir með honum, eða einn limur er í hávegum hafður, samgleðjast allir limirnir honum.
27Or voi siete il corpo di Cristo, e membra d’esso, ciascuno per parte sua.
27Þér eruð líkami Krists og limir hans hver um sig.
28E Dio ha costituito nella Chiesa primieramente degli apostoli; in secondo luogo dei profeti; in terzo luogo de’ dottori; poi, i miracoli; poi i doni di guarigione, le assistenze, i doni di governo, la diversità delle lingue.
28Guð hefur sett nokkra í kirkjunni, fyrst postula, í öðru lagi spámenn, í þriðja lagi fræðara, sumum hefur hann veitt gáfu að gjöra kraftaverk, lækna, vinna líknarstörf, stjórna og tala tungum.
29Tutti sono eglino apostoli? Son forse tutti profeti? Son forse tutti dottori? Fan tutti de’ miracoli?
29Hvort eru allir postular? Hvort eru allir spámenn? Hvort eru allir fræðarar? Hvort eru allir kraftaverkamenn?
30Tutti hanno eglino i doni delle guarigioni? Parlan tutti in altre lingue? Interpretano tutti?
30Hvort hafa allir hlotið lækningagáfu? Hvort tala allir tungum? Hvort útlista allir tungutal?Nei, sækist heldur eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri. Og nú bendi ég yður á enn þá miklu ágætari leið.
31Ma desiderate ardentemente i doni maggiori. E ora vi mostrerò una via, che è la via per eccellenza.
31Nei, sækist heldur eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri. Og nú bendi ég yður á enn þá miklu ágætari leið.