1Or Sarai, moglie d’Abramo, non gli avea dato figliuoli. Essa aveva una serva egiziana per nome Agar.
1Saraí kona Abrams ól honum ekki börn. En hún hafði egypska ambátt, sem hét Hagar.
2E Sarai disse ad Abramo: "Ecco, l’Eterno m’ha fatta sterile; deh, va’ dalla mia serva; forse avrò progenie da lei". E Abramo dette ascolto alla voce di Sarai.
2Og Saraí sagði við Abram: ,,Heyrðu, Drottinn hefir varnað mér barngetnaðar. Gakk því inn til ambáttar minnar, vera má að hún afli mér afkvæmis.`` Og Abram hlýddi orðum Saraí.
3Sarai dunque, moglie d’Abramo, dopo che Abramo ebbe dimorato dieci anni nel paese di Canaan, prese la sua serva Agar, l’Egiziana, e la diede per moglie ad Abramo suo marito.
3Saraí, kona Abrams, tók Hagar hina egypsku, ambátt sína, er Abram hafði búið tíu ár í Kanaanlandi, og gaf manni sínum Abram hana fyrir konu.
4Ed egli andò da Agar, che rimase incinta; e quando s’accorse ch’era incinta, guardò la sua padrona con disprezzo.
4Og hann gekk inn til Hagar, og hún varð þunguð. En er hún vissi, að hún var með barni, fyrirleit hún húsmóður sína.
5E Sarai disse ad Abramo: "L’ingiuria fatta a me, ricade su te. Io t’ho dato la mia serva in seno; e da che ella s’è accorta ch’era incinta, mi guarda con disprezzo. L’Eterno sia giudice fra me e te".
5Þá sagði Saraí við Abram: ,,Sá óréttur, sem ég verð að þola, bitni á þér! Ég hefi gefið ambátt mína þér í faðm, en er hún nú veit, að hún er með barni, fyrirlítur hún mig. Drottinn dæmi milli mín og þín!``
6E Abramo rispose a Sarai: "Ecco, la tua serva è in tuo potere; fa’ con lei come ti piacerà". Sarai la trattò duramente, ed ella se ne fuggì da lei.
6En Abram sagði við Saraí: ,,Sjá, ambátt þín er á þínu valdi. Gjör þú við hana sem þér gott þykir.`` Þá þjáði Saraí hana, svo að hún flýði í burtu frá henni.
7E l’angelo dell’Eterno la trovò presso una sorgente d’acqua, nel deserto, presso la sorgente ch’è sulla via di Shur,
7Þá fann engill Drottins hana hjá vatnslind í eyðimörkinni, hjá lindinni á veginum til Súr.
8e le disse: "Agar, serva di Sarai, donde vieni? e dove vai?" Ed ella rispose: "Me ne fuggo dal cospetto di Sarai mia padrona".
8Og hann mælti: ,,Hagar, ambátt Saraí, hvaðan kemur þú og hvert ætlar þú að fara?`` Hún svaraði: ,,Ég er á flótta frá Saraí, húsmóður minni.``
9E l’angelo dell’Eterno le disse: "Torna alla tua padrona, e umiliati sotto la sua mano".
9Og engill Drottins sagði við hana: ,,Hverf þú heim aftur til húsmóður þinnar og gef þig undir hennar vald.``
10L’angelo dell’Eterno soggiunse: "Io moltiplicherò grandemente la tua progenie, e non la si potrà contare, tanto sarà numerosa".
10Engill Drottins sagði við hana: ,,Ég mun margfalda afkvæmi þitt, svo að það verði eigi talið fyrir fjölda sakir.``
11E l’angelo dell’Eterno le disse ancora: "Ecco, tu sei incinta, e partorirai un figliuolo, al quale porrai nome Ismaele, perché l’Eterno t’ha ascoltata nella tua afflizione;
11Engill Drottins sagði við hana: ,,Sjá, þú ert þunguð og munt son fæða. Hans nafn skalt þú kalla Ísmael, því að Drottinn hefir heyrt kveinstafi þína.
12esso sarà tra gli uomini come un asino selvatico; la sua mano sarà contro tutti, e la mano di tutti contro di lui; e abiterà in faccia a tutti i suoi fratelli".
12Hann mun verða maður ólmur sem villiasni, hönd hans mun vera uppi á móti hverjum manni og hvers manns hönd uppi á móti honum, og hann mun búa andspænis öllum bræðrum sínum.``
13Allora Agar chiamò il nome dell’Eterno che le avea parlato, Atta-El-Roi, perché disse: "Ho io, proprio qui, veduto andarsene colui che m’ha vista?"
13Og hún nefndi Drottin, sem við hana talaði, ,,Þú ert Guð, sem sér.`` Því að hún sagði: ,,Ætli ég hafi einnig hér horft á eftir honum, sem hefir séð mig?``
14Perciò quel pozzo fu chiamato "il pozzo di Lachai-Roi". Ecco, esso è fra Kades e Bered.
14Þess vegna heitir brunnurinn Beer-lahaj-róí, en hann er á milli Kades og Bered.
15E Agar partorì un figliuolo ad Abramo; e Abramo, al figliuolo che Agar gli avea partorito, pose nome Ismaele.
15Hagar ól Abram son, og Abram nefndi son sinn, sem Hagar ól honum, Ísmael.En Abram var áttatíu og sex ára gamall, þegar Hagar ól honum Ísmael.
16Abramo aveva ottantasei anni quando Agar gli partorì Ismaele.
16En Abram var áttatíu og sex ára gamall, þegar Hagar ól honum Ísmael.