1Og det var en mann av fariseerne som hette Nikodemus, en av jødenes rådsherrer;
1Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, ráðsherra meðal Gyðinga.
2han kom til ham om natten og sa til ham: Rabbi! vi vet at du er en lærer kommet fra Gud; for ingen kan gjøre disse tegn som du gjør, uten at Gud er med ham.
2Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: ,,Rabbí, vér vitum, að þú ert lærifaðir kominn frá Guði. Enginn getur gjört þessi tákn, sem þú gjörir, nema Guð sé með honum.``
3Jesus svarte og sa til ham: Sannelig, sannelig sier jeg dig: Uten at nogen blir født på ny, kan han ikke se Guds rike.
3Jesús svaraði honum: ,,Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju.``
4Nikodemus sier til ham: Hvorledes kan et menneske fødes når han er gammel? kan han vel annen gang komme inn i sin mors liv og fødes?
4Nikódemus segir við hann: ,,Hvernig getur maður fæðst, þegar hann er orðinn gamall? Skyldi hann geta komist aftur í líf móður sinnar og fæðst?``
5Jesus svarte: Sannelig, sannelig sier jeg dig: Uten at nogen blir født av vann og Ånd, kan han ikke komme inn i Guds rike.
5Jesús svaraði: ,,Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur komist inn í Guðs ríki, nema hann fæðist af vatni og anda.
6Det som er født av kjødet, er kjød, og det som er født av Ånden, er ånd.
6Það sem af holdinu fæðist, er hold, en það sem af andanum fæðist, er andi.
7Undre dig ikke over at jeg sa til dig: I må fødes på ny!
7Undrast eigi, að ég segi við þig: Yður ber að fæðast að nýju.
8Vinden blåser dit den vil, og du hører den suser; men du vet ikke hvor den kommer fra, og hvor den farer hen; således er det med hver den som er født av Ånden.
8Vindurinn blæs þar sem hann vill, og þú heyrir þyt hans. Samt veistu ekki, hvaðan hann kemur né hvert hann fer. Svo er um þann, sem af andanum er fæddur.``
9Nikodemus svarte og sa til ham: Hvorledes kan dette skje?
9Þá spurði Nikódemus: ,,Hvernig má þetta verða?``
10Jesus svarte og sa til ham: Du er Israels lærer, og vet ikke dette?
10Jesús svaraði honum: ,,Þú ert lærifaðir í Ísrael og veist ekki þetta?
11Sannelig, sannelig sier jeg dig: Vi taler det vi vet, og vi vidner det vi har sett, og I tar ikke imot vårt vidnesbyrd.
11Sannlega, sannlega segi ég þér: Vér tölum um það, sem vér þekkjum, og vitnum um það, sem vér höfum séð, en þér takið ekki á móti vitnisburði vorum.
12Når jeg har sagt eder de jordiske ting, og I ikke tror, hvorledes skal I da tro om jeg sier eder de himmelske?
12Ef þér trúið eigi, þegar ég ræði við yður jarðnesk efni, hvernig skylduð þér þá trúa, er ég ræði við yður um hin himnesku?
13Og dog er ingen steget op til himmelen uten han som er steget ned fra himmelen, Menneskesønnen, som er i himmelen.
13Enginn hefur stigið upp til himins, nema sá er steig niður frá himni, Mannssonurinn.
14Og likesom Moses ophøiet slangen i ørkenen, således skal Menneskesønnen ophøies,
14Og eins og Móse hóf upp höggorminn í eyðimörkinni, þannig á Mannssonurinn að verða upp hafinn,
15forat hver den som tror på ham, skal ha evig liv.
15svo að hver sem trúir hafi eilíft líf í honum.
16For så har Gud elsket verden at han gav sin Sønn, den enbårne, forat hver den som tror på ham, ikke skal fortapes, men ha evig liv;
16Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
17for Gud sendte ikke sin Sønn til verden for å dømme verden, men forat verden skulde bli frelst ved ham.
17Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn, heldur að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann.
18Den som tror på ham, blir ikke dømt; den som ikke tror, er allerede dømt, fordi han ikke har trodd på Guds enbårne Sønns navn.
18Sá sem trúir á hann, dæmist ekki. Sá sem trúir ekki, er þegar dæmdur, því að hann hefur ekki trúað á nafn Guðs sonarins eina.
19Og dette er dommen, at lyset er kommet til verden, og menneskene elsket mørket fremfor lyset; for deres gjerninger var onde.
19En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn, en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið, því að verk þeirra voru vond.
20For hver den som gjør ondt, hater lyset og kommer ikke til lyset, forat hans gjerninger ikke skal bli refset;
20Hver sem illt gjörir hatar ljósið og kemur ekki til ljóssins, svo að verk hans verði ekki uppvís.
21men den som gjør sannheten, han kommer til lyset, forat hans gjerninger må bli åpenbaret; for de er gjort i Gud.
21En sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins, svo að augljóst verði, að verk hans eru í Guði gjörð.``
22Derefter kom Jesus og hans disipler til Judea, og han blev der sammen med dem og døpte.
22Eftir þetta fór Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði.
23Men også Johannes døpte, i Ænon, nær ved Salim, fordi det var meget vann der, og folk kom dit og lot sig døpe;
23Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím, en þar var mikið vatn. Menn komu þangað og létu skírast.
24for Johannes var enda ikke kastet i fengsel.
24Þá var ekki enn búið að varpa Jóhannesi í fangelsi.
25Det blev nu en trette mellem Johannes' disipler og en jøde om renselsen,
25Nú varð deila um hreinsun milli lærisveina Jóhannesar og Gyðings eins.
26og de kom til Johannes og sa til ham: Rabbi! han som var hos dig på hin side Jordan, han som du har gitt vidnesbyrd, se, han døper, og alle kommer til ham!
26Þeir komu til Jóhannesar og sögðu við hann: ,,Rabbí, sá sem var hjá þér handan við Jórdan og þú barst vitni um, hann er að skíra, og allir koma til hans.``
27Johannes svarte og sa: Et menneske kan ikke få noget uten at det er gitt ham fra himmelen.
27Jóhannes svaraði þeim: ,,Enginn getur tekið neitt, nema honum sé gefið það af himni.
28I er selv mine vidner at jeg sa: Jeg er ikke Messias, men: Jeg er utsendt foran ham.
28Þér getið sjálfir vitnað um, að ég sagði: ,Ég er ekki Kristur, heldur er ég sendur á undan honum.`
29Den som har bruden, han er brudgom; men brudgommens venn, som står og hører på ham, gleder sig storlig over brudgommens røst. Denne min glede er nu blitt fullkommen.
29Sá er brúðguminn, sem á brúðina, en vinur brúðgumans, sem stendur hjá og hlýðir á hann, gleðst mjög við rödd hans. Þessi gleði er nú mín að fullu.
30Han skal vokse, jeg skal avta.
30Hann á að vaxa, en ég að minnka.
31Han som kommer ovenfra, er over alle; den som er av jorden, er av jorden og taler av jorden. Han som kommer fra himmelen, er over alle;
31Sá sem kemur að ofan, er yfir öllum. Sá sem er af jörðu, hann er af jörðu og talar af jörðu. Sá sem kemur af himni, er yfir öllum
32det han har sett og hørt, det vidner han, og ingen tar imot hans vidnesbyrd;
32og vitnar um það, sem hann hefur séð og heyrt, og enginn tekur á móti vitnisburði hans.
33den som har tatt imot hans vidnesbyrd, han har stadfestet at Gud er sanndru.
33En sá sem hefur tekið á móti vitnisburði hans, hefur staðfest, að Guð sé sannorður.
34For han som Gud har utsendt, taler Guds ord; for Gud gir ikke Ånden efter mål.
34Sá sem Guð sendi, talar Guðs orð, því ómælt gefur Guð andann.
35Faderen elsker Sønnen, og alt har han gitt i hans hånd.
35Faðirinn elskar soninn og hefur lagt allt í hönd honum.Sá sem trúir á soninn, hefur eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá líf, heldur varir reiði Guðs yfir honum.``
36Den som tror på Sønnen, har evig liv; men den som ikke vil tro på Sønnen, skal ikke se livet, men Guds vrede blir over ham.
36Sá sem trúir á soninn, hefur eilíft líf, en sá sem óhlýðnast syninum, mun ekki sjá líf, heldur varir reiði Guðs yfir honum.``