Norwegian

Icelandic

Nehemiah

8

1Og alt folket samlet sig som en mann på plassen foran Vannporten; og de bad Esras, den skriftlærde, om å hente boken med Mose lov, som Herren hadde gitt Israel.
1Allur lýðurinn safnaðist saman eins og einn maður á torginu fyrir framan Vatnshliðið. Og þeir báðu Esra fræðimann að sækja lögmálsbók Móse, er Drottinn hafði sett Ísrael.
2Og presten Esras bar loven frem for menigheten, både for menn og kvinner og alle som kunde forstå hvad de hørte; det var den første dag i den syvende måned.
2Þá kom Esra prestur með lögmálið fram fyrir söfnuðinn, bæði karla og konur og alla þá, er vit höfðu á að taka eftir, á fyrsta degi hins sjöunda mánaðar.
3Og han leste op av den midt for plassen foran Vannporten fra tidlig morgen til midt på dagen - for mennene og kvinnene og dem som kunde forstå; og alt folket lyttet til lovbokens ord.
3Og hann las upp úr því á torginu, sem er fyrir framan Vatnshliðið, frá birtingu til hádegis, í viðurvist karla og kvenna og þeirra barna, er vit höfðu á, og eyru alls lýðsins hlýddu á lögmálsbókina.
4Esras, den skriftlærde, stod på en forhøining av tre, som var blitt reist til dette, og ved siden av ham stod Mattitja, Sema, Anaja, Uria, Hilkia og Ma'aseja til høire for ham, og til venstre for ham Pedaja, Misael, Malkia, Hasum, Hasbaddana, Sakarja og Mesullam.
4Esra fræðimaður stóð á háum trépalli, er menn höfðu gjört til þessa, og hjá honum stóðu Mattitja, Sema, Anaja, Úría, Hilkía og Maaseja, honum til hægri hliðar, og honum til vinstri hliðar Pedaja, Mísael, Malkía, Hasúm, Hasbaddana, Sakaría og Mesúllam.
5Og Esras åpnet boken for alt folkets øine; for han stod høiere enn alt folket; og da han åpnet den, reiste alt folket sig.
5Og Esra lauk upp bókinni í augsýn alls fólksins, því að hann stóð hærra en allur lýðurinn, og þegar hann lauk henni upp, stóð allur lýðurinn upp.
6Esras lovet Herren, den store Gud, og alt folket svarte med opløftede hender: Amen, amen, og de bøide sig og kastet sig ned for Herren med ansiktet til jorden.
6Og Esra lofaði Drottin, hinn mikla Guð, og allur lýðurinn svaraði: ,,Amen! amen!`` og fórnuðu þeir um leið upp höndunum og beygðu sig og féllu fram á ásjónur sínar til jarðar fyrir Drottni.
7Og Josva, Bani, Serebja, Jamin, Akkub, Sabbetai, Hodia, Ma'aseja, Kelita, Asarja, Josabad, Hanan, Pelaja og de andre levitter utla loven for folket, mens folket blev stående på sin plass.
7Og levítarnir Jesúa, Baní, Serebja, Jamín, Akkúb, Sabtaí, Hódía, Maaseja, Kelíta, Asarja, Jósabad, Hanan og Pelaja skýrðu lögmálið fyrir lýðnum, en fólkið var kyrrt á sínum stað.
8De leste op av boken - av Guds lov - de tolket og utla den for folket, så de skjønte det som blev lest.
8Þeir lásu skýrt upp úr bókinni, lögmáli Guðs, og útskýrðu það, svo að menn skildu hið upplesna.
9Og stattholderen Nehemias og presten Esras, den skriftlærde, og levittene som lærte folket, sa til alt folket: Denne dag er helliget Herren eders Gud, sørg ikke og gråt ikke! For alt folket gråt da de hørte lovens ord.
9Og Nehemía _ það er landstjórinn _ og Esra prestur, fræðimaðurinn, og levítarnir, sem fræddu lýðinn, sögðu við gjörvallan lýðinn: ,,Þessi dagur er helgaður Drottni, Guði yðar. Sýtið eigi né grátið!`` Því að allur lýðurinn grét, þegar þeir heyrðu orð lögmálsins.
10Så sa han til dem: Gå nu og et fete retter og drikk søte drikker og send gaver derav til dem for hvem intet er tillaget, for dagen er helliget vår Herre, og sørg ikke, for glede i Herren er eders styrke!
10Og Esra sagði við þá: ,,Farið og etið feitan mat og drekkið sæt vín og sendið þeim skammta, sem ekkert er tilreitt fyrir, því að þessi dagur er helgaður Drottni vorum. Verið því eigi hryggir, því að gleði Drottins er hlífiskjöldur yðar.``
11Også levittene søkte å få alt folket til å holde sig rolig og sa: Vær stille, for dagen er hellig; sørg ikke!
11Og levítarnir sefuðu allan lýðinn með því að segja: ,,Verið hljóðir, því að þessi dagur er heilagur. Verið því eigi hryggir.``
12Da gikk alt folket bort og åt og drakk og sendte gaver omkring og holdt en stor gledesfest; for de hadde forstått det som var blitt talt til dem.
12Þá fór allt fólkið til þess að eta og drekka og senda skammta og halda mikla gleðihátíð, því að þeir höfðu skilið þau orð, er menn höfðu kunngjört þeim.
13Dagen efter samlet alt folkets familiehoder, prestene og levittene sig hos Esras, den skriftlærde, for å få nærmere rede på lovens ord.
13Daginn eftir söfnuðust ætthöfðingjar alls lýðsins, prestarnir og levítarnir saman hjá Esra fræðimanni til þess að gefa gaum að orðum lögmálsins.
14De fant da skrevet i loven - den lov som Herren hadde gitt ved Moses - at Israels barn skulde bo i løvhytter på festen i den syvende måned,
14Þá fundu þeir ritað í lögmálinu, er Drottinn hafði sett þeim fyrir Móse, að Ísraelsmenn skyldu búa í laufskálum á hátíðinni í sjöunda mánuðinum,
15og at de skulde kunngjøre og la utrope i alle sine byer og i Jerusalem: Gå ut på fjellene og hent løv av oljetrær og av ville oljetrær og av myrter og av palmer og av andre løvrike trær og gjør løvhytter, som foreskrevet er.
15og að þeir ættu að kunngjöra og láta boð út ganga í öllum borgum sínum og í Jerúsalem á þessa leið: ,,Farið upp í fjöll og komið með greinar af olíuviði og greinar af villi-olíuviði og greinar af mýrtusviði og greinar af pálmaviði og greinar af þéttlaufguðum trjám, til þess að gjöra af laufskála, eins og skrifað er.``
16Da gikk folket ut og hentet løv, og de gjorde sig løvhytter, hver på sitt tak og på sine tun og likeledes i forgårdene til Guds hus og på plassen ved Vannporten og på plassen ved Efra'im-porten.
16Og fólkið fór og sótti greinar, og þeir gjörðu sér laufskála hver á sínu húsþaki og í forgörðum sínum og í forgörðum Guðs húss og á torginu fyrir framan Vatnshliðið og á torginu fyrir framan Efraímhliðið.
17Og hele menigheten, de som var kommet tilbake fra fangenskapet, gjorde løvhytter og bodde i dem; for fra Josvas, Nuns sønns dager like til denne dag hadde Israels barn ikke gjort dette. Og der var en overmåte stor glede.
17Og allur söfnuðurinn, þeir er aftur voru heim komnir úr herleiðingunni, byggðu laufskála og bjuggu í laufskálunum. Því að Ísraelsmenn höfðu eigi gjört það síðan á dögum Jósúa Núnssonar allt til þessa dags, og varð þar því mjög mikil gleði.Og það var lesið upp úr lögmálsbók Guðs á degi hverjum, frá fyrsta degi til hins síðasta dags. Og þeir héldu hátíð í sjö daga, og áttunda daginn var hátíðasamkoma, eins og fyrirskipað var.
18Dag efter dag leste de op av Guds lovbok, fra den første dag til den siste; de holdt høitid i syv dager og på den åttende dag en festlig sammenkomst, som påbudt var.
18Og það var lesið upp úr lögmálsbók Guðs á degi hverjum, frá fyrsta degi til hins síðasta dags. Og þeir héldu hátíð í sjö daga, og áttunda daginn var hátíðasamkoma, eins og fyrirskipað var.