Portuguese: Almeida Atualizada

Icelandic

Acts

2

1Ao cumprir-se o dia de Pentecostes, estavam todos reunidos no mesmo lugar.
1Þá er upp var runninn hvítasunnudagur, voru þeir allir saman komnir.
2De repente veio do céu um ruído, como que de um vento impetuoso, e encheu toda a casa onde estavam sentados.
2Varð þá skyndilega gnýr af himni eins og aðdynjanda sterkviðris og fyllti allt húsið, þar sem þeir voru.
3E lhes apareceram umas línguas como que de fogo, que se distribuíam, e sobre cada um deles pousou uma.
3Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvern og einn þeirra.
4E todos ficaram cheios do Espírito Santo, e começaram a falar noutras línguas, conforme o Espírito lhes concedia que falassem.
4Þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.
5Habitavam então em Jerusalém judeus, homens piedosos, de todas as nações que há debaixo do céu.
5Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guðræknir menn, frá öllum löndum undir himninum.
6Ouvindo-se, pois, aquele ruído, ajuntou-se a multidão; e estava confusa, porque cada um os ouvia falar na sua própria língua.
6Er þetta hljóð heyrðist, dreif að fjölda manns. Þeim brá mjög við, því að hver og einn heyrði þá mæla á sína tungu.
7E todos pasmavam e se admiravam, dizendo uns aos outros: Pois quê! não são galileus todos esses que estão falando?
7Þeir voru frá sér af undrun og sögðu: ,,Eru þetta ekki allt Galíleumenn, sem hér eru að tala?
8Como é, pois, que os ouvimos falar cada um na própria língua em que nascemos?
8Hvernig má það vera, að vér, hver og einn, heyrum þá tala vort eigið móðurmál?
9Nós, partos, medos, e elamitas; e os que habitamos a Mesopotâmia, a Judéia e a Capadócia, o Ponto e a Ásia,
9Vér erum Partar, Medar og Elamítar, vér erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu,
10a Frígia e a Panfília, o Egito e as partes da Líbia próximas a Cirene, e forasteiros romanos, tanto judeus como prosélitos,
10frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene, og vér, sem hingað erum fluttir frá Róm.
11cretenses e árabes - ouvímo-los em nossas línguas, falar das grandezas de Deus.
11Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Vér heyrum þá tala á vorum tungum um stórmerki Guðs.``
12E todos pasmavam e estavam perplexos, dizendo uns aos outros: Que quer dizer isto?
12Þeir voru allir furðu lostnir og ráðalausir og sögðu hver við annan: ,,Hvað getur þetta verið?``
13E outros, zombando, diziam: Estão cheios de mosto.
13En aðrir höfðu að spotti og sögðu: ,,Þeir eru drukknir af sætu víni.``
14Então Pedro, pondo-se em pé com os onze, levantou a voz e disse-lhes: Varões judeus e todos os que habitais em Jerusalém, seja- vos isto notório, e escutai as minhas palavras.
14Þá steig Pétur fram og þeir ellefu, og hann hóf upp rödd sína og mælti til þeirra: ,,Gyðingar og allir þér Jerúsalembúar! Þetta skuluð þér vita. Ljáið eyru orðum mínum.
15Pois estes homens não estão embriagados, como vós pensais, visto que é apenas a terceira hora do dia.
15Eigi eru þessir menn drukknir, eins og þér ætlið, enda aðeins komin dagmál.
16Mas isto é o que foi dito pelo profeta Joel:
16Hér er að rætast það, sem spámaðurinn Jóel segir:
17E acontecerá nos últimos dias, diz o Senhor, que derramarei do meu Espírito sobre toda a carne; e os vossos filhos e as vossas filhas profetizarão, os vossos mancebos terão visões, os vossos anciãos terão sonhos;
17Það mun verða á efstu dögum, segir Guð, að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, ungmenni yðar munu sjá sýnir og gamalmenni yðar mun drauma dreyma.
18e sobre os meus servos e sobre as minhas servas derramarei do meu Espírito naqueles dias, e eles profetizarão.
18Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar mun ég á þeim dögum úthella anda mínum, og þau munu spá.
19E mostrarei prodígios em cima no céu; e sinais embaixo na terra, sangue, fogo e vapor de fumaça.
19Og ég mun láta undur verða á himnum uppi og tákn á jörðu niðri, blóð og eld og reykjarmökk.
20O sol se converterá em trevas, e a lua em sangue, antes que venha o grande e glorioso dia do Senhor.
20Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóð, áður dagur Drottins kemur, hinn mikli og dýrlegi.
21e acontecerá que todo aquele que invocar o nome do Senhor será salvo.
21En hver sá, sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast.
22Varões israelitas, escutai estas palavras: A Jesus, o nazareno, varão aprovado por Deus entre vós com milagres, prodígios e sinais, que Deus por ele fez no meio de vós, como vós mesmos bem sabeis;
22Ísraelsmenn, heyrið þessi orð: Jesús frá Nasaret var maður, sem Guð sannaði yður með kraftaverkum, undrum og táknum, er Guð lét hann gjöra meðal yðar, eins og þér sjálfir vitið.
23a este, que foi entregue pelo determinado conselho e presciência de Deus, vós matastes, crucificando-o pelas mãos de iníquos;
23Hann var framseldur að fyrirhuguðu ráði Guðs og fyrirvitund, og þér létuð heiðna menn negla hann á kross og tókuð hann af lífi.
24ao qual Deus ressuscitou, rompendo os grilhões da morte, pois não era possível que fosse retido por ela.
24En Guð leysti hann úr nauðum dauðans og reisti hann upp, enda gat það aldrei orðið, að dauðinn fengi haldið honum,
25Porque dele fala Davi: Sempre via diante de mim o Senhor, porque está � minha direita, para que eu não seja abalado;
25því að Davíð segir um hann: Ávallt hafði ég Drottin fyrir augum mér, því að hann er mér til hægri hliðar, til þess að ég bifist ekki.
26por isso se alegrou o meu coração, e a minha língua exultou; e além disso a minha carne há de repousar em esperança;
26Fyrir því gladdist hjarta mitt, og tunga mín fagnaði. Meira að segja mun líkami minn hvílast í von.
27pois não deixarás a minha alma no hades, nem permitirás que o teu Santo veja a corrupção;
27Því að ekki munt þú skilja sálu mína eftir í helju og eigi láta þinn heilaga verða rotnun að bráð.
28fizeste-me conhecer os caminhos da vida; encher-me-ás de alegria na tua presença.
28Kunna gjörðir þú mér lífsins vegu. Þú munt mig fögnuði fylla fyrir þínu augliti.
29Irmãos, seja-me permitido dizer-vos livremente acerca do patriarca Davi, que ele morreu e foi sepultado, e entre nós está até hoje a sua sepultura.
29Bræður, óhikað get ég við yður talað um ættföðurinn Davíð. Hann dó og var grafinn, og leiði hans er til hér allt til þessa dags.
30Sendo, pois, ele profeta, e sabendo que Deus lhe havia prometido com juramento que faria sentar sobre o seu trono um dos seus descendentes -
30En hann var spámaður og vissi, að Guð hafði með eiði heitið honum að setja í hásæti hans einhvern niðja hans.
31prevendo isto, Davi falou da ressurreição de Cristo, que a sua alma não foi deixada no hades, nem a sua carne viu a corrupção.
31Því sá hann fyrir upprisu Krists og sagði: Ekki varð hann eftir skilinn í helju, og ekki varð líkami hans rotnun að bráð.
32Ora, a este Jesus, Deus ressuscitou, do que todos nós somos testemunhas.
32Þennan Jesú reisti Guð upp, og erum vér allir vottar þess.
33De sorte que, exaltado pela dextra de Deus, e tendo recebido do Pai a promessa do Espírito Santo, derramou isto que vós agora vedes e ouvis.
33Nú er hann upp hafinn til Guðs hægri handar og hefur af föðurnum tekið við heilögum anda, sem fyrirheitið var, og úthellt honum, eins og þér sjáið og heyrið.
34Porque Davi não subiu aos céus, mas ele próprio declara: Disse o Senhor ao meu Senhor: Assenta-te � minha direita,
34Ekki steig Davíð upp til himna, en hann segir: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar,
35até que eu ponha os teus inimigos por escabelo de teus pés.
35þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni.
36Saiba pois com certeza toda a casa de Israel que a esse mesmo Jesus, a quem vós crucificastes, Deus o fez Senhor e Cristo.
36Með öruggri vissu viti þá öll Ísraels ætt, að þennan Jesú, sem þér krossfestuð, hefur Guð gjört bæði að Drottni og Kristi.``
37E, ouvindo eles isto, compungiram-se em seu coração, e perguntaram a Pedro e aos demais apóstolos: Que faremos, irmãos?
37Er þeir heyrðu þetta, var sem stungið væri í hjörtu þeirra, og þeir sögðu við Pétur og hina postulana: ,,Hvað eigum vér að gjöra, bræður?``
38Pedro então lhes respondeu: Arrependei-vos, e cada um de vós seja batizado em nome de Jesus Cristo, para remissão de vossos pecados; e recebereis o dom do Espírito Santo.
38Pétur sagði við þá: ,,Gjörið iðrun og látið skírast hver og einn í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar synda yðar; þá munuð þér öðlast að gjöf heilagan anda.
39Porque a promessa vos pertence a vós, a vossos filhos, e a todos os que estão longe: a quantos o Senhor nosso Deus chamar.
39Því að yður er ætlað fyrirheitið, börnum yðar og öllum þeim, sem í fjarlægð eru, öllum þeim, sem Drottinn Guð vor kallar til sín.``
40E com muitas outras palavras dava testemunho, e os exortava, dizendo: salvai-vos desta geração perversa.
40Og með öðrum fleiri orðum vitnaði hann, áminnti þá og sagði: ,,Látið frelsast frá þessari rangsnúnu kynslóð.``
41De sorte que foram batizados os que receberam a sua palavra; e naquele dia agregaram-se quase três mil almas;
41En þeir, sem veittu orði hans viðtöku, voru skírðir, og þann dag bættust við um þrjú þúsund sálir.
42e perseveravam na doutrina dos apóstolos e na comunhão, no partir do pão e nas orações.
42Þeir ræktu trúlega uppfræðslu postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar.
43Em cada alma havia temor, e muitos prodígios e sinais eram feitos pelos apóstolos.
43Ótta setti að hverjum manni, en mörg undur og tákn gjörðust fyrir hendur postulanna.
44Todos os que criam estavam unidos e tinham tudo em comum.
44Allir þeir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt.
45E vendiam suas propriedades e bens e os repartiam por todos, segundo a necessidade de cada um.
45Þeir seldu eignir sínar og fjármuni og skiptu meðal allra eftir því sem hver hafði þörf á.
46E, perseverando unânimes todos os dias no templo, e partindo o pão em casa, comiam com alegria e singeleza de coração,
46Daglega komu þeir saman með einum huga í helgidóminum, þeir brutu brauð í heimahúsum, neyttu fæðu saman í fögnuði og einlægni hjartans.Þeir lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum. En Drottinn bætti daglega við í hópinn þeim, er frelsast létu.
47louvando a Deus, e caindo na graça de todo o povo. E cada dia acrescentava-lhes o Senhor os que iam sendo salvos.
47Þeir lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum. En Drottinn bætti daglega við í hópinn þeim, er frelsast létu.