Portuguese: Almeida Atualizada

Icelandic

John

12

1Veio, pois, Jesus seis dias antes da páscoa, a Betânia, onde estava Lázaro, a quem ele ressuscitara dentre os mortos.
1Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu, þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum.
2Deram-lhe ali uma ceia; Marta servia, e Lázaro era um dos que estavam � mesa com ele.
2Þar var honum búinn kvöldverður, og Marta gekk um beina, en Lasarus var einn þeirra, sem að borði sátu með honum.
3Então Maria, tomando uma libra de bálsamo de nardo puro, de grande preço, ungiu os pés de Jesus, e os enxugou com os seus cabelos; e encheu-se a casa do cheiro do bálsamo.
3Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna.
4Mas Judas Iscariotes, um dos seus discípulos, aquele que o havia de trair disse:
4Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann:
5Por que não se vendeu este bálsamo por trezentos denários e não se deu aos pobres?
5,,Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara og gefin fátækum?``
6Ora, ele disse isto, não porque tivesse cuidado dos pobres, mas porque era ladrão e, tendo a bolsa, subtraía o que nela se lançava.
6Ekki sagði hann þetta af því, að hann léti sér annt um fátæka, heldur af því, að hann var þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók það, sem í hana var látið.
7Respondeu, pois Jesus: Deixa-a; para o dia da minha preparação para a sepultura o guardou;
7Þá sagði Jesús: ,,Lát hana í friði. Hún hefur geymt þetta til greftrunardags míns.
8porque os pobres sempre os tendes convosco; mas a mim nem sempre me tendes.
8Fátæka hafið þér ætíð hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt.``
9E grande número dos judeus chegou a saber que ele estava ali: e afluiram, não só por causa de Jesus mas também para verem a Lázaro, a quem ele ressuscitara dentre os mortos.
9Nú komst allur fjöldi Gyðinga að því, að Jesús væri þarna, og þeir komu þangað, ekki aðeins hans vegna, heldur og til að sjá Lasarus, sem hann hafði vakið frá dauðum.
10Mas os principais sacerdotes deliberaram matar também a Lázaro;
10Þá réðu æðstu prestarnir af að taka einnig Lasarus af lífi,
11porque muitos, por causa dele, deixavam os judeus e criam em Jesus.
11því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú.
12No dia seguinte, as grandes multidões que tinham vindo � festa, ouvindo dizer que Jesus vinha a Jerusalém,
12Sá mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, frétti degi síðar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem.
13tomaram ramos de palmeiras, e saíram-lhe ao encontro, e clamavam: Hosana! Bendito o que vem em nome do Senhor! Bendito o rei de Israel!
13Þeir tóku þá pálmagreinar, fóru út á móti honum og hrópuðu: ,,Hósanna! Blessaður sé sá, sem kemur, í nafni Drottins, konungur Ísraels!``
14E achou Jesus um jumentinho e montou nele, conforme está escrito:
14Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er:
15Não temas, ó filha de Sião; eis que vem teu Rei, montado sobre o filho de uma jumenta.
15Óttast ekki, dóttir Síon. Sjá, konungur þinn kemur, ríðandi á ösnufola.
16Os seus discípulos, porém, a princípio não entenderam isto; mas quando Jesus foi glorificado, então eles se lembraram de que estas coisas estavam escritas a respeito dele, e de que assim lhe fizeram.
16Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu, en þegar Jesús var dýrlegur orðinn, minntust þeir þess, að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gjört þetta fyrir hann.
17Dava-lhe, pois, testemunho a multidão que estava com ele quando chamara a Lázaro da sepultura e o ressuscitara dentre os mortos;
17Nú vitnaði fólkið, sem með honum var, þegar hann kallaði Lasarus út úr gröfinni og vakti hann frá dauðum.
18e foi por isso que a multidão lhe saiu ao encontro, por ter ouvido que ele fizera este sinal.
18Vegna þess fór einnig mannfjöldinn á móti honum, því menn höfðu heyrt, að hann hefði gjört þetta tákn.
19De sorte que os fariseus disseram entre si: Vedes que nada aproveitais? eis que o mundo inteiro vai após ele.
19Því sögðu farísear sín á milli: ,,Þér sjáið, að þér ráðið ekki við neitt. Allur heimurinn eltir hann.``
20Ora, entre os que tinham subido a adorar na festa havia alguns gregos.
20Grikkir nokkrir voru meðal þeirra, sem fóru upp eftir til að biðjast fyrir á hátíðinni.
21Estes, pois, dirigiram-se a Felipe, que era de Betsaida da Galiléia, e rogaram-lhe, dizendo: Senhor, queríamos ver a Jesus.
21Þeir komu til Filippusar frá Betsaídu í Galíleu, báðu hann og sögðu: ,,Herra, oss langar að sjá Jesú.``
22Felipe foi dizê-lo a André, e então André e Felipe foram dizê-lo a Jesus.
22Filippus kemur og segir það Andrési. Andrés og Filippus fara og segja Jesú.
23Respondeu-lhes Jesus: É chegada a hora de ser glorificado o Filho do homem.
23Jesús svaraði þeim: ,,Stundin er komin, að Mannssonurinn verði gjörður dýrlegur.
24Em verdade, em verdade vos digo: Se o grão de trigo caindo na terra não morrer, fica ele só; mas se morrer, dá muito fruto.
24Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr, verður það áfram eitt. En ef það deyr, ber það mikinn ávöxt.
25Quem ama a sua vida, perdê-la-á; e quem neste mundo odeia a a sua vida, guardá-la-á para a vida eterna.
25Sá sem elskar líf sitt, glatar því, en sá sem hatar líf sitt í þessum heimi, mun varðveita það til eilífs lífs.
26Se alguém me quiser servir, siga-me; e onde eu estiver, ali estará também o meu servo; se alguém me servir, o Pai o honrará.
26Sá sem þjónar mér, fylgi mér eftir, og hvar sem ég er, þar mun og þjónn minn vera. Þann sem þjónar mér, mun faðirinn heiðra.
27Agora a minha alma está perturbada; e que direi eu? Pai, salva-me desta hora? Mas para isto vim a esta hora.
27Nú er sál mín skelfd, og hvað á ég að segja? Faðir, frelsa mig frá þessari stundu? Nei, til þessa er ég kominn að þessari stundu:
28Pai, glorifica o teu nome. Veio, então, do céu esta voz: Já o tenho glorificado, e outra vez o glorificarei.
28Faðir, gjör nafn þitt dýrlegt!`` Þá kom rödd af himni: ,,Ég hef gjört það dýrlegt og mun enn gjöra það dýrlegt.``
29A multidão, pois, que ali estava, e que a ouvira, dizia ter havido um trovão; outros diziam: Um anjo lhe falou.
29Mannfjöldinn, sem hjá stóð og hlýddi á, sagði, að þruma hefði riðið yfir. En aðrir sögðu: ,,Engill var að tala við hann.``
30Respondeu Jesus: Não veio esta voz por minha causa, mas por causa de vós.
30Jesús svaraði þeim: ,,Þessi rödd kom ekki mín vegna, heldur yðar vegna.
31Agora é o juízo deste mundo; agora será expulso o príncipe deste mundo.
31Nú gengur dómur yfir þennan heim. Nú skal höfðingja þessa heims út kastað.
32E eu, quando for levantado da terra, todos atrairei a mim.
32Og þegar ég verð hafinn upp frá jörðu, mun ég draga alla til mín.``
33Isto dizia, significando de que modo havia de morrer.
33Þetta sagði hann til að gefa til kynna, með hvaða hætti hann átti að deyja.
34Respondeu-lhe a multidão: Nós temos ouvido da lei que o Cristo permanece para sempre; e como dizes tu: Importa que o Filho do homem seja levantado? Quem é esse Filho do homem?
34Mannfjöldinn svaraði honum: ,,Lögmálið segir oss, að Kristur muni verða til eilífðar. Hvernig getur þú sagt, að Mannssonurinn eigi að verða upp hafinn? Hver er þessi Mannssonur?``
35Disse-lhes então Jesus: Ainda por um pouco de tempo a luz está entre vós. Andai enquanto tendes a luz, para que as trevas não vos apanhem; pois quem anda nas trevas não sabe para onde vai.
35Þá sagði Jesús við þá: ,,Skamma stund er ljósið enn á meðal yðar. Gangið, meðan þér hafið ljósið, svo að myrkrið hremmi yður ekki. Sá sem gengur í myrkri, veit ekki, hvert hann fer.
36Enquanto tendes a luz, crede na luz, para que vos torneis filhos da luz. Havendo Jesus assim falado, retirou-se e escondeu-se deles.
36Trúið á ljósið, meðan þér hafið ljósið, svo að þér verðið börn ljóssins.`` Þetta mælti Jesús og fór burt og duldist þeim.
37E embora tivesse operado tantos sinais diante deles, não criam nele;
37Þótt hann hefði gjört svo mörg tákn fyrir augum þeirra, trúðu þeir ekki á hann,
38para que se cumprisse a palavra do profeta Isaías: Senhor, quem creu em nossa pregação? e aquem foi revelado o braço do Senhor?
38svo að rættist orð Jesaja spámanns, er hann mælti: Drottinn, hver trúði boðun vorri, og hverjum varð armur Drottins opinber?
39Por isso não podiam crer, porque, como disse ainda Isaías:
39Þess vegna gátu þeir ekki trúað, enda segir Jesaja á öðrum stað:
40Cegou-lhes os olhos e endureceu-lhes o coração, para que não vejam com os olhos e entendam com o coração, e se convertam, e eu os cure.
40Hann hefur blindað augu þeirra og forhert hjarta þeirra, að þeir sjái ekki með augunum né skilji með hjartanu og snúi sér og ég lækni þá.
41Estas coisas disse Isaías, porque viu a sua glória, e dele falou.
41Jesaja sagði þetta af því að hann sá dýrð hans og talaði um hann.
42Contudo, muitos dentre as próprias autoridades creram nele; mas por causa dos fariseus não o confessavam, para não serem expulsos da sinagoga;
42Samt trúðu margir á hann, jafnvel höfðingjar, en gengust ekki við því vegna faríseanna, svo að þeir yrðu ekki samkundurækir.
43porque amaram mais a glória dos homens do que a glória de Deus.
43Þeir kusu heldur heiður manna en heiður frá Guði.
44Clamou Jesus, dizendo: Quem crê em mim, crê, nâo em mim, mas naquele que me enviou.
44En Jesús hrópaði: ,,Sá sem trúir á mig, trúir ekki á mig, heldur þann sem sendi mig,
45E quem me vê a mim, vê aquele que me enviou.
45og sá sem sér mig, sér þann er sendi mig.
46Eu, que sou a luz, vim ao mundo, para que todo aquele que crê em mim não permaneça nas trevas.
46Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri.
47E, se alguém ouvir as minhas palavras, e não as guardar, eu não o julgo; pois eu vim, não para julgar o mundo, mas para salvar o mundo.
47Ef nokkur heyrir orð mín og gætir þeirra ekki, þá dæmi ég hann ekki. Ég er ekki kominn til að dæma heiminn, heldur til að frelsa heiminn.
48Quem me rejeita, e não recebe as minhas palavras, já tem quem o julgue; a palavra que tenho pregado, essa o julgará no último dia.
48Sá sem hafnar mér og tekur ekki við orðum mínum, hefur sinn dómara: Orðið, sem ég hef talað, verður dómari hans á efsta degi.
49Porque eu não falei por mim mesmo; mas o Pai, que me enviou, esse me deu mandamento quanto ao que dizer e como falar.
49Því ég hef ekki talað af sjálfum mér, heldur hefur faðirinn, sem sendi mig, boðið mér, hvað ég skuli segja og hvað ég skuli tala.Og ég veit, að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér.``
50E sei que o seu mandamento é vida eterna. Aquilo, pois, que eu falo, falo-o exatamente como o Pai me ordenou.
50Og ég veit, að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér.``