Portuguese: Almeida Atualizada

Icelandic

Luke

1

1Visto que muitos têm empreendido fazer uma narração coordenada dos fatos que entre nós se realizaram,
1Margir hafa tekið sér fyrir hendur að rekja sögu þeirra viðburða, er gjörst hafa meðal vor,
2segundo no-los transmitiram os que desde o princípio foram testemunhas oculares e ministros da palavra,
2samkvæmt því, sem oss hafa flutt þeir menn, er frá öndverðu voru sjónarvottar og þjónar orðsins.
3também a mim, depois de haver investido tudo cuidadosamente desde o começo, pareceu-me bem, ó excelentíssimo Teófilo, escrever-te uma narração em ordem.
3Nú hef ég athugað kostgæfilega allt þetta frá upphafi og réð því einnig af að rita samfellda sögu fyrir þig, göfugi Þeófílus,
4para que conheças plenamente a verdade das coisas em que foste instruído.
4svo að þú megir ganga úr skugga um sannindi þeirra frásagna, sem þú hefur fræðst um.
5Houve nos dias do Rei Herodes, rei da Judéia, um sacerdote chamado Zacarias, da turma de Abias; e sua mulher era descendente de Arão, e chamava-se Isabel.
5Á dögum Heródesar, konungs í Júdeu, var uppi prestur nokkur að nafni Sakaría, af sveit Abía. Kona hans var og af ætt Arons og hét Elísabet.
6Ambos eram justos diante de Deus, andando irrepreensíveis em todos os mandamentos e preceitos do Senhor.
6Þau voru bæði réttlát fyrir Guði og lifðu vammlaus eftir öllum boðum og ákvæðum Drottins.
7Mas não tinham filhos, porque Isabel era estéril, e ambos avançados em idade.
7En þau áttu ekki barn, því að Elísabet var óbyrja, og bæði voru þau hnigin að aldri.
8Ora, estando ele a exercer as funções sacerdotais perante Deus, na ordem da sua turma,
8En svo bar við, er röðin kom að sveit hans og hann var að gegna þjónustu fyrir Guði,
9segundo o costume do sacerdócio, coube-lhe por sorte entrar no santuário do Senhor, para oferecer o incenso;
9að það féll í hans hlut, samkvæmt venju prestdómsins, að ganga inn í musteri Drottins og fórna reykelsi.
10e toda a multidão do povo orava da parte de fora, � hora do incenso.
10En allur fólksfjöldinn var fyrir utan á bæn, meðan reykelsisfórnin var færð.
11Apareceu-lhe, então, um anjo do Senhor, em pé � direita do altar do incenso.
11Birtist honum þá engill Drottins, sem stóð hægra megin við reykelsisaltarið.
12E Zacarias, vendo-o, ficou turbado, e o temor o assaltou.
12Sakaría varð hverft við sýn þessa, og ótta sló á hann.
13Mas o anjo lhe disse: Não temais, Zacarias; porque a tua oração foi ouvida, e Isabel, tua mulher, te dará � luz um filho, e lhe porás o nome de João;
13En engillinn sagði við hann: ,,Óttast þú eigi, Sakaría, því bæn þín er heyrð. Elísabet kona þín mun fæða þér son, og þú skalt láta hann heita Jóhannes.
14e terás alegria e regozijo, e muitos se alegrarão com o seu nascimento;
14Og þér mun veitast gleði og fögnuður, og margir munu gleðjast vegna fæðingar hans.
15porque ele será grande diante do Senhor; não beberá vinho, nem bebida forte; e será cheio do Espírito Santo já desde o ventre de sua mãe;
15Því að hann mun verða mikill í augliti Drottins. Aldrei mun hann drekka vín né áfengan drykk, en fyllast heilögum anda þegar frá móðurlífi.
16converterá muitos dos filhos de Israel ao Senhor seu Deus;
16Og mörgum af Ísraels sonum mun hann snúa til Drottins, Guðs þeirra.
17irá adiante dele no espírito e poder de Elias, para converter os corações dos pais aos filhos, e os rebeldes � prudência dos justos, a fim de preparar para o Senhor um povo apercebido.
17Og hann mun ganga fyrir honum í anda og krafti Elía til að snúa hjörtum feðra til barna og óhlýðnum til hugarfars réttlátra og búa Drottni altygjaðan lýð.``
18Disse então Zacarias ao anjo: Como terei certeza disso? pois eu sou velho, e minha mulher também está avançada em idade.
18Sakaría sagði við engilinn: ,,Af hverju get ég vitað þetta? Ég er gamall og kona mín hnigin að aldri.``
19Ao que lhe respondeu o anjo: Eu sou Gabriel, que assisto diante de Deus, e fui enviado para te falar e te dar estas boas novas;
19En engillinn svaraði honum: ,,Ég er Gabríel, sem stend frammi fyrir Guði, ég var sendur til að tala við þig og flytja þér þessa gleðifregn.
20e eis que ficarás mudo, e não poderás falar até o dia em que estas coisas aconteçam; porquanto não creste nas minhas palavras, que a seu tempo hão de cumprir-se.
20Og þú munt verða mállaus og ekki geta talað til þess dags, er þetta kemur fram, vegna þess að þú trúðir ekki orðum mínum, en þau munu rætast á sínum tíma.``
21O povo estava esperando Zacarias, e se admirava da sua demora no santuário.
21Og fólkið beið eftir Sakaría og undraðist, hve honum dvaldist í musterinu.
22Quando saiu, porém, não lhes podia falar, e perceberam que tivera uma visão no santuário. E falava-lhes por acenos, mas permanecia mudo.
22En er hann kom út, gat hann ekki talað við þá, og skildu þeir, að hann hafði séð sýn í musterinu. Hann gaf þeim bendingar og var mállaus áfram.
23E, terminados os dias do seu ministério, voltou para casa.
23Og er þjónustudagar hans voru liðnir, fór hann heim til sín.
24Depois desses dias Isabel, sua mulher, concebeu, e por cinco meses se ocultou, dizendo:
24En eftir þessa daga varð Elísabet kona hans þunguð, og hún leyndi sér í fimm mánuði og sagði:
25Assim me fez o Senhor nos dias em que atentou para mim, a fim de acabar com o meu opróbrio diante dos homens.
25,,Þannig hefur Drottinn gjört við mig, er hann leit til mín að afmá hneisu mína í augum manna.``
26Ora, no sexto mês, foi o anjo Gabriel enviado por Deus a uma cidade da Galiléia, chamada Nazaré,
26En á sjötta mánuði var Gabríel engill sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret,
27a uma virgem desposada com um varão cujo nome era José, da casa de Davi; e o nome da virgem era Maria.
27til meyjar, er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt Davíðs, en mærin hét María.
28E, entrando o anjo onde ela estava disse: Salve, agraciada; o Senhor é contigo.
28Og engillinn kom inn til hennar og sagði: ,,Heil vert þú, sem nýtur náðar Guðs! Drottinn er með þér.``
29Ela, porém, ao ouvir estas palavras, turbou-se muito e pôs-se a pensar que saudação seria essa.
29En hún varð hrædd við þessi orð og hugleiddi, hvílík þessi kveðja væri.
30Disse-lhe então o anjo: Não temas, Maria; pois achaste graça diante de Deus.
30Og engillinn sagði við hana: ,,Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði.
31Eis que conceberás e darás � luz um filho, ao qual porás o nome de Jesus.
31Þú munt þunguð verða og son ala, og þú skalt láta hann heita JESÚ.
32Este será grande e será chamado filho do Altíssimo; o Senhor Deus lhe dará o trono de Davi seu pai;
32Hann mun verða mikill og kallaður sonur hins hæsta. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans,
33e reinará eternamente sobre a casa de Jacó, e o seu reino não terá fim.
33og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu, og á ríki hans mun enginn endir verða.``
34Então Maria perguntou ao anjo: Como se fará isso, uma vez que não conheço varão?
34Þá sagði María við engilinn: ,,Hvernig má þetta verða, þar eð ég hef ekki karlmanns kennt?``
35Respondeu-lhe o anjo: Virá sobre ti o Espírito Santo, e o poder do Altíssimo te cobrirá com a sua sombra; por isso o que há de nascer será chamado santo, Filho de Deus.
35Og engillinn sagði við hana: ,,Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta mun yfirskyggja þig. Fyrir því mun og barnið verða kallað heilagt, sonur Guðs.
36Eis que também Isabel, tua parenta concebeu um filho em sua velhice; e é este o sexto mês para aquela que era chamada estéril;
36Elísabet, frændkona þín, er einnig orðin þunguð að syni í elli sinni, og þetta er sjötti mánuður hennar, sem kölluð var óbyrja,
37porque para Deus nada será impossível.
37en Guði er enginn hlutur um megn.``
38Disse então Maria. Eis aqui a serva do Senhor; cumpra-se em mim segundo a tua palavra. E o anjo ausentou-se dela.
38Þá sagði María: ,,Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum.`` Og engillinn fór burt frá henni.
39Naqueles dias levantou-se Maria, foi apressadamente � região montanhosa, a uma cidade de Judá,
39En á þeim dögum tók María sig upp og fór með flýti til borgar nokkurrar í fjallbyggðum Júda.
40entrou em casa de Zacarias e saudou a Isabel.
40Hún kom inn í hús Sakaría og heilsaði Elísabetu.
41Ao ouvir Isabel a saudação de Maria, saltou a criancinha no seu ventre, e Isabel ficou cheia do Espírito Santo,
41Þá varð það, þegar Elísabet heyrði kveðju Maríu, að barnið tók viðbragð í lífi hennar, og Elísabet fylltist heilögum anda
42e exclamou em alta voz: Bendita és tu entre as mulheres, e bendito é o fruto do teu ventre!
42og hrópaði hárri röddu: ,,Blessuð ert þú meðal kvenna og blessaður ávöxtur lífs þíns.
43E donde me provém isto, que venha visitar-me a mãe do meu Senhor?
43Hvaðan kemur mér þetta, að móðir Drottins míns kemur til mín?
44Pois logo que me soou aos ouvidos a voz da tua saudação, a criancinha saltou de alegria dentro de mim.
44Þegar kveðja þín hljómaði í eyrum mér, tók barnið viðbragð af gleði í lífi mínu.
45Bem-aventurada aquela que creu que se hão de cumprir as coisas que da parte do Senhor lhe foram ditas.
45Sæl er hún, sem trúði því, að rætast mundi það, sem sagt var við hana frá Drottni.``
46Disse então Maria: A minha alma engrandece ao Senhor,
46Og María sagði: Önd mín miklar Drottin,
47e o meu espírito exulta em Deus meu Salvador;
47og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum.
48porque atentou na condição humilde de sua serva. Desde agora, pois, todas as gerações me chamarão bem-aventurada,
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar, héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49porque o Poderoso me fez grandes coisas; e santo é o seu nome.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört, og heilagt er nafn hans.
50E a sua misericórdia vai de geração em geração sobre os que o temem.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann, varir frá kyni til kyns.
51Com o seu braço manifestou poder; dissipou os que eram soberbos nos pensamentos de seus corações;
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52depôs dos tronos os poderosos, e elevou os humildes.
52Valdhöfum hefur hann steypt af stóli og upp hafið smælingja,
53Aos famintos encheu de bens, e vazios despediu os ricos.
53hungraða hefur hann fyllt gæðum, en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Auxiliou a Isabel, seu servo, lembrando-se de misericórdia
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55(como falou a nossos pais) para com Abraão e a sua descendência para sempre.
55eins og hann talaði til feðra vorra, við Abraham og niðja hans ævinlega.
56E Maria ficou com ela cerca de três meses; e depois voltou para sua casa.
56En María dvaldist hjá henni hér um bil þrjá mánuði og sneri síðan heim til sín.
57Ora, completou-se para Isabel o tempo de dar � luz, e teve um filho.
57Nú kom sá tími, að Elísabet skyldi verða léttari, og ól hún son.
58Ouviram seus vizinhos e parentes que o Senhor lhe multiplicara a sua misericórdia, e se alegravam com ela.
58Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu, hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni, og samfögnuðu henni.
59Sucedeu, pois, no oitavo dia, que vieram circuncidar o menino; e queriam dar-lhe o nome de seu pai, Zacarias.
59Á áttunda degi komu þeir að umskera sveininn, og vildu þeir láta hann heita Sakaría í höfuðið á föður sínum.
60Respondeu, porém, sua mãe: De modo nenhum, mas será chamado João.
60Þá mælti móðir hans: ,,Eigi skal hann svo heita, heldur Jóhannes.``
61Ao que lhe disseram: Ninguém há na tua parentela que se chame por este nome.
61En þeir sögðu við hana: ,,Enginn er í ætt þinni, sem heitir því nafni.``
62E perguntaram por acenos ao pai como queria que se chamasse.
62Bentu þeir þá föður hans, að hann léti þá vita, hvað sveinninn skyldi heita.
63E pedindo ele uma tabuinha, escreveu: Seu nome é João. E todos se admiraram.
63Hann bað um spjald og reit: ,,Jóhannes er nafn hans,`` og urðu þeir allir undrandi.
64Imediatamente a boca se lhe abriu, e a língua se lhe soltou; louvando a Deus.
64Jafnskjótt laukst upp munnur hans og tunga, og hann fór að tala og lofaði Guð.
65Então veio temor sobre todos os seus vizinhos; e em toda a região montanhosa da Judéia foram divulgadas todas estas coisas.
65En ótta sló á alla nágranna þeirra og þótti þessi atburður miklum tíðindum sæta í allri fjallbyggð Júdeu.
66E todos os que delas souberam as guardavam no coração, dizendo: Que virá a ser, então, este menino? Pois a mão do Senhor estava com ele.
66Og allir, sem þetta heyrðu, festu það í huga sér og sögðu: ,,Hvað mun barn þetta verða?`` Því að hönd Drottins var með honum.
67Zacarias, seu pai, ficou cheio do Espírito Santo e profetizou, dizendo:
67En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift:
68Bendito, seja o Senhor Deus de Israel, porque visitou e remiu o seu povo,
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69e para nós fez surgir uma salvação poderosa na casa de Davi, seu servo;
69Hann hefur reist oss horn hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70assim como desde os tempos antigos tem anunciado pela boca dos seus santos profetas;
70eins og hann talaði fyrir munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71para nos livrar dos nossos inimigos e da mão de todos os que nos odeiam;
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra, er hata oss.
72para usar de misericórdia com nossos pais, e lembrar-se do seu santo pacto
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73e do juramento que fez a Abrão, nosso pai,
73þess eiðs, er hann sór Abraham föður vorum
74de conceder-nos que, libertados da mão de nossos inimigos, o servíssemos sem temor,
74að hrífa oss úr höndum óvina og veita oss að þjóna sér óttalaust
75em santidade e justiça perante ele, todos os dias da nossa vida.
75í heilagleik og réttlæti fyrir augum hans alla daga vora.
76E tu, menino, serás chamado profeta do Altíssimo, porque irás ante a face do Senhor, a preparar os seus caminhos;
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta, því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77para dar ao seu povo conhecimento da salvação, na remissão dos seus pecados,
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu, sem er fyrirgefning synda þeirra.
78graças � entrenhável misericórdia do nosso Deus, pela qual nos há de visitar a aurora lá do alto,
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor
79para alumiar aos que jazem nas trevas e na sombra da morte, a fim de dirigir os nossos pés no caminho da paz.
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans, og beina fótum vorum á friðar veg.En sveinninn óx og varð þróttmikill í anda. Hann dvaldist í óbyggðum til þess dags, er hann skyldi koma fram fyrir Ísrael.
80Ora, o menino crescia, e se robustecia em espírito; e habitava nos desertos até o dia da sua manifestação a Israel.
80En sveinninn óx og varð þróttmikill í anda. Hann dvaldist í óbyggðum til þess dags, er hann skyldi koma fram fyrir Ísrael.