1Eftir þessa atburði kom orð Drottins til Abrams í sýn: ,,Óttast þú ekki, Abram, ég er þinn skjöldur, laun þín munu mjög mikil verða.``2Og Abram mælti: ,,Drottinn Guð, hvað ætlar þú að gefa mér? Ég fer héðan barnlaus, og Elíeser frá Damaskus verður erfingi húss míns.``3Og Abram mælti: ,,Sjá, mér hefir þú ekkert afkvæmi gefið, og húskarl minn mun erfa mig.``4Og sjá, orð Drottins kom til hans: ,,Ekki skal hann erfa þig, heldur sá, sem af þér mun getinn verða, hann mun erfa þig.``5Og hann leiddi hann út og mælti: ,,Lít þú upp til himins og tel þú stjörnurnar, ef þú getur talið þær.`` Og hann sagði við hann: ,,Svo margir skulu niðjar þínir verða.``6Og Abram trúði Drottni, og hann reiknaði honum það til réttlætis.7Þá sagði hann við hann: ,,Ég er Drottinn, sem leiddi þig út frá Úr í Kaldeu til þess að gefa þér þetta land til eignar.``8Og Abram mælti: ,,Drottinn Guð, hvað skal ég hafa til marks um, að ég muni eignast það?``9Og hann mælti við hann: ,,Fær mér þrevetra kvígu, þrevetra geit, þrevetran hrút, turtildúfu og unga dúfu.``10Og hann færði honum öll þessi dýr og hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvern hlutinn gegnt öðrum. En fuglana hlutaði hann ekki sundur.11Og hræfuglar flugu að ætinu, en Abram fældi þá burt.12Er sól var að renna, leið þungur svefnhöfgi á Abram, og sjá: felmti og miklu myrkri sló yfir hann.13Þá sagði hann við Abram: ,,Vit það fyrir víst, að niðjar þínir munu lifa sem útlendingar í landi, sem þeir eiga ekki, og þeir munu þjóna þeim, og þeir þjá þá í fjögur hundruð ár.14En þá þjóð, sem þeir munu þjóna, mun ég dæma, og síðar munu þeir þaðan fara með mikinn fjárhlut.15En þú skalt fara í friði til feðra þinna, þú skalt verða jarðaður í góðri elli.16Hinn fjórði ættliður þeirra mun koma hingað aftur, því að enn hafa Amorítar eigi fyllt mæli synda sinna.``17En er sól var runnin og myrkt var orðið, kom reykur sem úr ofni og eldslogi, er leið fram á milli þessara fórnarstykkja.18Á þeim degi gjörði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: ,,Þínu afkvæmi gef ég þetta land, frá Egyptalandsánni til árinnar miklu, árinnar Efrat:19land Keníta, Kenissíta, Kadmóníta,20Hetíta, Peresíta, Refaíta,Amoríta, Kanaaníta, Gírgasíta og Jebúsíta.``21Amoríta, Kanaaníta, Gírgasíta og Jebúsíta.``