1Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð?2Konungar jarðarinnar ganga fram, og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða:3,,Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, vér skulum varpa af oss viðjum þeirra.``4Hann sem situr á himni hlær. Drottinn gjörir gys að þeim.5Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni:6,,Ég hefi skipað konung minn á Síon, fjallið mitt helga.``7Ég vil kunngjöra ályktun Drottins: Hann mælti við mig: ,,Þú ert sonur minn. Í dag gat ég þig.8Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali.9Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker.``10Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu.11Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu.Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu, [ (Psalms 2:13) því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum. ]12Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu, [ (Psalms 2:13) því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum. ]