Icelandic

Psalms

46

1Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð.2Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.3Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.4Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela]5Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta.6Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.7Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði.8Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]9Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.10Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.,,Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.`` [ (Psalms 46:12) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela] ]11,,Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.`` [ (Psalms 46:12) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela] ]