Icelandic

Psalms

75

1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð.2Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum.3,,Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega.4Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. [Sela]5Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!6Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!``7Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn,8heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.9Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði. [ (Psalms 75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa. ]10En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði. [ (Psalms 75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa. ]