1Asafs-sálmur. Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna:2,,Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? [Sela]3Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum,4bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra.``5Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða.6Ég hefi sagt: ,,Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta,7en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum.``Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.8Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.