1وشاخ يشوع. تقدم في الايام. فقال له الرب انت قد شخت. تقدمت في الايام. وقد بقيت ارض كثيرة جدا للامتلاك.
1Þegar Jósúa var orðinn gamall og hniginn að aldri, sagði Drottinn við hann: ,,Þú ert orðinn gamall og hniginn að aldri, en mjög mikið af landinu er enn óunnið.
2هذه هي الارض الباقية. كل دائرة الفلسطنيين وكل الجشوريين
2Þetta er landið, sem enn er eftir: Öll héruð Filista og allt land Gesúra;
3من الشيحور الذي هو امام مصر الى تخم عقرون شمالا تحسب للكنعانيين اقطاب الفلسطينيين الخمسة الغزي والاشدودي والاشقلوني والجتّي والعقروني والعويين.
3frá Síhór, sem rennur fram með Egyptalandi að austanverðu, til landamæra Ekron í norðri _ það telst með landi Kanaaníta _, fimm höfðingjar Filistanna í Gasa, Asdód, Askalon, Gat og Ekron, svo og Avítar í suðri,
4من التيمن كل ارض الكنعانيين ومغارة التي للصيدونيين الى افيق الى تخم الاموريين.
4allt land Kanaaníta og Meara, sem heyrir Sídoningum, allt til Afek, til landamæra Amoríta,
5وارض الجبليين وكل لبنان نحو شروق الشمس من بعل جاد تحت جبل حرمون الى مدخل حماة.
5og land Giblíta og allt Líbanon í austri, frá Baal Gað undir Hermonfjalli allt þangað, er leið liggur til Hamat.
6جميع سكان الجبل من لبنان الى مسرفوت مايم جميع الصيدونيين. انا اطردهم من امام بني اسرائيل. انما اقسمها بالقرعة لاسرائيل ملكا كما أمرتك.
6Allir fjallabúarnir frá Líbanon til Misrefót Majím, allir Sídoningar, _ ég mun stökkva þeim burt undan Ísraelsmönnum. En legg þú á hluti og skipt því meðal Ísraels til eignar, eins og ég hefi boðið þér.
7والآن اقسم هذه الارض ملكا للتسعة الاسباط ونصف سبط منسّى.
7Skipt þú nú landi þessu til eignar níu ættkvíslunum og hálfri ættkvísl Manasse.``
8معهم اخذ الرأوبينيون والجاديون ملكهم الذي اعطاهم موسى في عبر الاردن نحو الشروق كما اعطاهم موسى عبد الرب
8Með hálfri ættkvísl Manasse hafa Rúbenítar og Gaðítar fengið sinn eignarhluta, er Móse gaf þeim hinumegin Jórdanar, austanmegin. Móse, þjónn Drottins, gaf þeim hann:
9من عروعير التي على حافة وادي ارنون والمدينة التي في وسط الوادي وكل سهل ميدبا الى ديبون
9landið frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og borginni, sem liggur í dalnum miðjum, og allt sléttlendið frá Medeba til Díbon,
10وجميع مدن سيحون ملك الاموريين الذي ملك في حشبون الى تخم بني عمون
10svo og allar borgir, er átti Síhon, Amorítakonungur, er sat í Hesbon, allt til landamæra Ammóníta.
11وجلعاد وتخوم الجشوريين والمعكيين وكل جبل حرمون وكل باشان الى سلخة
11Enn fremur Gíleað og land Gesúra og Maakatíta, Hermonfjöll öll og allt Basan til Salka,
12كل مملكة عوج في باشان الذي ملك في عشتاروث وفي اذرعي. هو بقي من بقية الرفائيين وضربهم موسى وطردهم.
12allt konungsríki Ógs í Basan, sem sat í Astarót og Edreí. Hann var einn eftir af Refaítum; en Móse vann sigur á þeim og stökkti þeim burt.
13ولم يطرد بنو اسرائيل الجشوريين والمعكيين فسكن الجشوري والمعكي في وسط اسرائيل الى هذا اليوم.
13Aftur á móti stökktu Ísraelsmenn Gesúrum og Maakatítum ekki burt, heldur búa Gesúrar og Maakatítar meðal Ísraels allt fram á þennan dag.
14لكن لسبط لاوي لم يعط نصيبا. وقائد الرب اله اسرائيل هي نصيبه كما كلمه
14En ættkvísl Leví gaf hann ekkert óðal. Eldfórnir Drottins, Ísraels Guðs, eru óðal hans, eins og hann hét honum.
15واعطى موسى سبط بني رأوبين حسب عشائرهم.
15Móse fékk kynkvíslum Rúbens sona land eftir ættum þeirra.
16فكان تخمهم من عروعير التي على حافة وادي ارنون والمدينة التي في وسط الوادي وكل السهل عند ميدبا
16Fengu þeir land frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og frá borginni, sem liggur í dalnum miðjum, og allt sléttlendið hjá Medeba,
17حشبون وجميع مدنها التي في السهل وديبون وباموت بعل وبيت بعل معون
17Hesbon og allar borgirnar þar umhverfis, sem liggja á sléttlendinu, Díbon, Bamót Baal, Bet-Baal-Meon,
18ويهصة وقديموت وميفعة
18Jahsa, Kedemót, Mefaat,
19وقريتايم وسبمة وصارث الشحر في جبل الوادي
19Kirjataím, Síbma, Seret Sahar á fellinu í dalnum,
20وبيت فغور وسفوح الفسجة وبيت يشيموت
20og Bet Peór, Pisgahlíðar og Bet Jesímót,
21وكل مدن السهل وكل مملكة سيحون ملك الاموريين الذي ملك في حشبون الذي ضربه موسى مع رؤساء مديان أوي وراقم وصور وحور ورابع أمراء سيحون ساكني الارض.
21enn fremur allar borgir á sléttlendinu og allt konungsríki Síhons, Amorítakonungs, sem sat í Hesbon og Móse vann sigur á ásamt höfðingjum Midíaníta: Eví, Rekem, Súr, Húr og Reba, jörlum Síhons, sem bjuggu í landinu.
22وبلعام بن بعور العراف قتله بنو اسرائيل. بالسيف مع قتلاهم.
22Ísraelsmenn drápu og spásagnamanninn Bíleam Beórsson með sverði, auk annarra, er þeir felldu.
23وكان تخم بني رأوبين الاردن وتخومه. هذا نصيب بني رأوبين حسب عشائرهم المدن وضياعها
23Og vesturtakmörkum Rúbens sona réð Jórdan alla leið. Þetta er óðal Rúbens sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, sem að liggja.
24واعطى موسى لسبط جاد بني جاد حسب عشائرهم.
24Móse fékk kynkvísl Gaðs, Gaðs sonum, land eftir ættum þeirra.
25فكان تخمهم يعزير وكل مدن جلعاد ونصف ارض بني عمون الى عروعير التي هي امام ربّة
25Fengu þeir land sem hér segir: Jaser og allar borgirnar í Gíleað og hálft land Ammóníta, allt til Aróer, sem liggur fyrir austan Rabba,
26ومن حشبون الى رامة المصفاة وبطونيم ومن محنايم الى تخم دبير.
26og frá Hesbon til Ramat Mispe og Betóním, og frá Mahanaím til Lídebír landamæra.
27وفي الوادي بيت هارام وبيت نمرة وسكوت وصافون بقية مملكة سيحون ملك حشبون الاردن وتخومه الى طرف بحر كنّروت في عبر الاردن نحو الشروق.
27Enn fremur í dalnum: Bet Haram, Bet Nimra, Súkkót og Safón, leifarnar af konungsríki Síhons, konungs í Hesbon, og Jórdan á mörkum allt að suðurenda Genesaretvatns, austanmegin Jórdanar.
28هذا نصيب بني جاد حسب عشائرهم المدن وضياعها
28Þetta er óðal Gaðs sona eftir ættum þeirra, borgirnar og þorpin, er að liggja.
29واعطى موسى لنصف سبط منسّى وكان لنصف سبط بني منسّى حسب عشائرهم.
29Móse fékk hálfri ættkvísl Manasse land. Fékk hálf kynkvísl Manasse sona land eftir ættum sínum sem hér segir.
30وكان تخمهم من محنايم كل باشان كل مملكة عوج ملك باشان وكل حوّوث يائير التي في باشان ستين مدينة.
30Land þeirra náði frá Mahanaím yfir allt Basan, allt konungsríki Ógs, konungs í Basan, og öll Jaírs-þorp, sem liggja í Basan, sextíu borgir.
31ونصف جلعاد وعشتاروث واذرعي مدن مملكة عوج في باشان لبني ماكير بن منسّى لنصف بني ماكير حسب عشائرهم.
31Enn fremur yfir hálft Gíleað og Astarót og Edreí, höfuðstaði konungsríkis Ógs í Basan. Þetta fengu Makírs synir, Manassesonar, helmingurinn af Makírs sonum eftir ættum þeirra.
32فهذه هي التي قسمها موسى في عربات موآب في عبر اردن اريحا نحو الشروق.
32Þetta voru lönd þau, er Móse úthlutaði á Móabsvöllum hinumegin Jórdanar gegnt Jeríkó, austanmegin.En ættkvísl Leví gaf Móse ekkert óðal. Drottinn, Ísraels Guð, er óðal þeirra, eins og hann hefir heitið þeim.
33واما سبط لاوي فلم يعطه موسى نصيبا. الرب اله اسرائيل هو نصيبهم كما كلمهم
33En ættkvísl Leví gaf Móse ekkert óðal. Drottinn, Ísraels Guð, er óðal þeirra, eins og hann hefir heitið þeim.