1Siden byggede han sig Huse i Davidsbyen og beredte Guds Ark et Sted, idet han rejste den et Telt
1Davíð byggði hús handa sér í Davíðsborg, og hann bjó stað handa örk Guðs og reisti tjald fyrir hana.
2Ved den Lejlighed sagde David: "Ingen andre end Leviterne må bære Guds Ark, thi dem har HERREN udvalgt til at bære Guds Ark og til at gøre Tjeneste for ham til evig Tid."
2Þá sagði Davíð: ,,Enginn má bera örk Guðs nema levítarnir, því að þá hefir Drottinn valið til þess að bera örk Guðs og til þess að þjóna sér að eilífu.``
3Og David samlede hele Israel i Jerusalem for at føre HERRENs Ark op til det Sted, han havde beredt den.
3Síðan stefndi Davíð öllum Ísrael saman til Jerúsalem til þess að flytja örk Drottins á sinn stað, þann er hann hafði búið handa henni.
4Og David samlede Arons Sønner og Leviterne:
4Og Davíð stefndi saman niðjum Arons og levítunum:
5Af Kehatiterne Øversten Uriel og hans Brødre, 120;
5Af Kahatsniðjum: Úríel, er var þeirra helstur, og frændum hans, hundrað og tuttugu alls.
6af Merariterne Øversten Asaja og hans Brødre, 220;
6Af Meraríniðjum: Asaja, er var þeirra helstur, og frændum hans, tvö hundruð og tuttugu alls.
7af Gersoniterne Øversten Joel og hans Brødre, 130;
7Af Gersómsniðjum: Jóel, er var þeirra helstur, og frændum hans, hundrað og þrjátíu alls.
8af Elizafans Sønner Øversten Sjemaja og hans Brødre, 200;
8Af Elísafansniðjum: Semaja, er var þeirra helstur, og frændum hans, tvö hundruð alls.
9af Hebrons Sønner Øversten Eliel og hans Brødre, 80;
9Af Hebronsniðjum: Elíel, er var þeirra helstur, og frændum hans, áttatíu alls.
10af Uzziels Sønner Øversten Amminadab og hans Brødre, 112.
10Af Ússíelsniðjum: Ammínadab, er var þeirra helstur, og frændum hans, hundrað og tólf alls.
11Så lod David Præsterne Zadok og Ebjatar og Leviterne Uriel, Asaja, Joel, Sjemaja, Eliel og Amminadab kalde
11Síðan kallaði Davíð á Sadók og Abjatar presta og Úríel, Asaja, Jóel, Semaja, Elíel og Ammínadab levíta,
12og sagde til dem: "I er Overhoveder for Leviternes Fædrenehuse; helliger eder tillige med eders Brødre og før HERRENs, Israels Guds, Ark op til det Sted, jeg har beredt den;
12og mælti við þá: ,,Þér eruð ætthöfðingjar levíta. Helgið yður og frændur yðar og flytjið örk Drottins, Ísraels Guðs, á þann stað, er ég hefi búið handa henni.
13det var jo, fordi I ikke var med første Gang, at HERREN vor Gud tilføjede os et Brud; thi vi søgte ham ikke på rette Måde."
13Af því að þér voruð eigi við hið fyrra skipti, hefir Drottinn Guð vor lostið oss, af því að vér leituðum hans eigi svo sem vera bar.``
14Så helligede Præsferne og Leviterne sig for at føre HERRENs, Israels Guds, Ark op;
14Þá helguðu prestarnir og levítarnir sig til þess að flytja örk Drottins, Ísraels Guðs, upp eftir.
15og Levis Sønner løftede med Bærestængerne Guds Ark op på Skuldrene, som Moses havde påbudt efter HERRENS Ord.
15Síðan báru niðjar levíta örk Guðs, eins og Móse hafði fyrirskipað eftir boði Drottins, á stöngum á herðum sér.
16Fremdeles bød David Leviternes Øverster at lade deres Brødre Sangerne stille sig op med Musikinstrumenter, Harper, Citre og Cymbler og lade høje Jubeltoner klinge.
16Því næst bauð Davíð höfðingjum levíta að setja frændur þeirra, söngmennina, með hljóðfærum þeirra, hörpum, gígjum og skálabumbum, til þess að þeir skyldu láta fagnaðarglaum kveða við.
17Så lod Leviterne Heman, Joels Søn, og af hans Brødre Asaf, Berekjas Søn, og af deres Brødre Merariterne Etan, Husjajas Søn, stille sig op
17Settu levítar til þess Heman Jóelsson, og af frændum hans Asaf Berekíason, og af Meraríniðjum, frændum sínum, Etan Kúsajason,
18og ved Siden af dem deres Brødre af anden Rang Zekarja, Uzziel, Sjemiramot, Jehiel, Unni, Eliab, Benaja, Ma'aseja, Mattitja, Elipelehu og Miknejahu og Dørvogterne Obed-Edom og Je'iel;
18og með þeim frændur þeirra af öðrum flokki: Sakaría Jaasíelsson, Semíramót, Jehíel, Únní, Elíat, Benaja, Maaseja, Mattitja, Elífelehú, Mikneja, Óbeð Edóm og Jeíel hliðverði.
19Sangerne Heman, Asaf og Etan skulde spille på Kobbercymbler,
19Auk þess söngvarana Heman, Asaf og Etan með skálabumbum úr eiri, til þess að syngja hátt,
20Zekarja, Uzziel, Sjemiramot, Jehiel, Unni, Eliab, Ma'aseja og Benaja på Harper al-alamot;
20og Sakaría, Asíel, Semíramót, Jehíel, Únní, Elíat, Maaseja og Benaja með hörpur, til þess að syngja háu raddirnar,
21Mattitja, Elipelehu, Miknejahu, Obed-Edom og Je'iel skulde lede Sangen med Citre al-hassjeminit;
21og Mattitja, Elífelehú, Mikneja, Óbeð Edóm, Jeíel og Asaja með gígjur, til þess að syngja lægri raddirnar.
22Konanja, Leviternes Øverste over dem, der bar, skulde lede disse, da han forstod sig derpå;
22Kenanja, er var helstur levítanna við arkarburðinn, sá um arkarburðinn, því að hann bar skyn á það.
23Berekja og Elkana skulde være Dørvogtere ved Arken;
23Berekía og Elkana voru hliðverðir arkarinnar.
24Præsterne Sjebanja, Josjafat, Netan'el, Amasaj, Zekarja, Benaja og Eliezer skulde blæse i Trompeterne foran Guds Ark; og Obed-Edom og Jehija skulde være Dørvogtere ved Arken.
24Sebanja, Jósafat, Netaneel, Amasaí, Sakaría, Benaja og Elíeser prestar þeyttu lúðra frammi fyrir örk Guðs, og Óbeð Edóm og Jehía voru hliðverðir arkarinnar.
25Derpå drog David, Israels Ældste og Tusindførerne hen for under Festglæde at lade HERRENs Pagts Ark bringe op fra Obed-Edoms Hus,
25Davíð og öldungar Ísraels og þúsundhöfðingjarnir fóru til þess að flytja sáttmálsörk Drottins með fögnuði úr húsi Óbeð Edóms.
26og da Gud hjalp Leviterne, der har HERRENs Pagts Ark, ofrede man syv Tyre og syv Vædre.
26Og er Guð hjálpaði levítunum, er báru sáttmálsörk Drottins, fórnuðu þeir sjö nautum og sjö hrútum.
27David har en fin linned Kappe, ligeledes alle Leviterne, der har Arken, og Sangerne og Konanja, som ledede dem, der bar. Og David var iført en linned Efod.
27Og Davíð var klæddur baðmullarkyrtli, svo og allir levítarnir, er örkina báru, og söngmennirnir og Kenanja, burðarstjóri, æðstur söngmannanna, en Davíð bar línhökul.
28Og hele Israel bragte HERRENs Pagts Ark op under Festjubel og til Hornets, Trompeternes og Cymblernes Klang, under Harpe- og Citerspil.
28Og allur Ísrael flutti sáttmálsörk Drottins upp eftir með fagnaðarópi og lúðurhljómi, með lúðrum og skálabumbum, og létu hljóma hörpur og gígjur.En er sáttmálsörk Drottins kom í Davíðsborg, leit Míkal, dóttir Sáls, út um gluggann. Og er hún sá Davíð konung vera að hoppa og dansa, fyrirleit hún hann í hjarta sínu.
29Men da HERRENs Pagts Ark kom til Davidsbyen, så Sauls Datter Mikal ud af Vinduet, og da hun så Kong David springe og danse, ringeagtede hun ham i sit Hjerte.
29En er sáttmálsörk Drottins kom í Davíðsborg, leit Míkal, dóttir Sáls, út um gluggann. Og er hún sá Davíð konung vera að hoppa og dansa, fyrirleit hún hann í hjarta sínu.