1Halleluja! Tak Herren, thi han er god, thi hans miskundhed varer evindelig.
1Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.
2Israel sige: "Thi hans miskundhed varer evindelig!"
2Það mæli Ísrael: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!``
3Arons Hus sige: "Thi hans Miskundhed varer evindelig!"
3Það mæli Arons ætt: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!``
4De, som frygter HERREN, sige: "Thi hans Miskundhed varer evindelig!"
4Það mæli þeir sem óttast Drottin: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!``
5Jeg påkaldte HERREN i Trængslen, HERREN svared og førte mig ud i åbent Land.
5Í þrengingunni ákallaði ég Drottin, hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig.
6HERREN, er med mig, jeg frygter ikke, hvad kan Mennesker gøre mig?
6Drottinn er með mér, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér?
7HERREN, han er min Hjælper, jeg skal se med Fryd på dem, der hader mig.
7Drottinn er með mér með hjálp sína, og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna.
8At ty til HERREN er godt fremfor at stole på Mennesker;
8Betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta mönnum,
9at ty til HERREN er godt fremfor at stole på Fyrster.
9betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta tignarmönnum.
10Alle Folkeslag flokkedes om mig, jeg slog dem ned i HERRENs Navn;
10Allar þjóðir umkringdu mig, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
11de flokkedes om mig fra alle Sider, jeg slog dem ned i HERRENs Navn;
11Þær umkringdu mig á alla vegu, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
12de flokkedes om mig som Bier, blussed op, som Ild i Torne, jeg slog dem ned i HERRENs Navn.
12Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim.
13Hårdt blev jeg ramt, så jeg faldt, men HERREN hjalp mig.
13Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla, en Drottinn veitti mér lið.
14Min Styrke og Lovsang er HERREN, han blev mig til Frelse.
14Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mér til hjálpræðis.
15Jubel og Sejrsråb lyder i de retfærdiges Telte: "HERRENs højre øver Vælde,
15Fagnaðar- og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra: Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki,
16HERRENs højre er løftet, HERRENs højre øver Vælde!"
16hægri hönd Drottins upphefur, hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.
17Jeg skal ikke dø, men leve og kundgøre HERRENs Gerninger.
17Ég mun eigi deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Drottins.
18HERREN tugted mig hårdt, men gav mig ej hen i Døden.
18Drottinn hefir hirt mig harðlega, en eigi ofurselt mig dauðanum.
19Oplad mig Retfærdigheds Porte, ad dem går jeg ind og lovsynger HERREN!
19Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins, að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin.
20Her er HERRENs Port, ad den går retfærdige ind.
20Þetta er hlið Drottins, réttlátir menn fara inn um það.
21Jeg vil takke dig, thi du bønhørte mig, og du blev mig til Frelse.
21Ég lofa þig, af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði.
22Den Sten; Bygmestrene forkastede, er blevet Hovedhjørnesten.
22Steinninn sem smiðirnir höfnuðu er orðinn að hyrningarsteini.
23Fra HERREN er dette kommet, det er underfuldt for vore Øjne.
23Að tilhlutun Drottins er þetta orðið, það er dásamlegt í augum vorum.
24Denne er Dagen, som HERREN har gjort, lad os juble og glæde os på den!
24Þetta er dagurinn sem Drottinn hefir gjört, fögnum, verum glaðir á honum.
25Ak, HERRE, frels dog, ak, HERRE; lad det dog lykkes!
25Drottinn, hjálpa þú, Drottinn, gef þú gengi!
26Velsignet den, der kommer, i HERRENs Navn; vi velsigner eder fra HERRENs Hus!
26Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, frá húsi Drottins blessum vér yður.
27HERREN er Gud, og han lod det lysne for os. Festtoget med Grenene slynge sig frem, til Alterets Horn er nået!
27Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum, allt inn að altarishornunum.
28Du er min Gud, jeg vil takke dig, min Gud, jeg vil ophøje dig!
28Þú ert Guð minn, og ég þakka þér, Guð minn, ég vegsama þig.Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.
29Tak HERREN, thi han er god, thi hans Miskundhed varer evindelig!
29Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.