1But I have judged this with myself, not to come back to you in grief.
1En það ásetti ég mér, að koma ekki aftur til yðar með hryggð.
2For if *I* grieve you, who also [is] it that gladdens me, if not he that is grieved through me?
2Ef ég hryggi yður, hver er þá sá sem gleður mig? Sá sem ég er að hryggja?
3And I have written this very [letter] [to you], that coming I may not have grief from those from whom I ought to have joy; trusting in you all that my joy is [that] of you all.
3Ég skrifaði einmitt þetta til þess að þeir, sem áttu að gleðja mig, skyldu ekki hryggja mig, er ég kæmi. Ég hef það traust til yðar allra, að gleði mín sé gleði yðar allra.
4For out of much tribulation and distress of heart I wrote to you, with many tears; not that ye may be grieved, but that ye may know the love which I have very abundantly towards you.
4Af mikilli þrengingu og hjartans trega skrifaði ég yður með mörgum tárum, ekki til þess að þér skylduð hryggjast, heldur til þess að þér skylduð komast að raun um þann kærleika, sem ég ber til yðar í svo ríkum mæli.
5But if any one has grieved, he has grieved, not me, but in part (that I may not overcharge [you]) all of you.
5En ef nokkur hefur orðið til þess að valda hryggð, þá hefur hann ekki hryggt mig, heldur að vissu leyti _ að ég gjöri ekki enn meira úr því _ hryggt yður alla.
6Sufficient to such a one [is] this rebuke which [has been inflicted] by the many;
6Nægileg er þeim manni refsing sú, sem hann hefur hlotið af yður allflestum.
7so that on the contrary ye should rather shew grace and encourage, lest perhaps such a one should be swallowed up with excessive grief.
7Því ættuð þér nú öllu heldur að fyrirgefa honum og hugga hann til þess að hann sökkvi ekki niður í allt of mikla hryggð.
8Wherefore I exhort you to assure him of [your] love.
8Þess vegna bið ég yður að sýna honum kærleika í reynd.
9For to this end also I have written, that I might know, by putting you to the test, if as to everything ye are obedient.
9Því að í þeim tilgangi skrifaði ég yður, til þess að komast að raun um staðfestu yðar, hvort þér væruð hlýðnir í öllu.
10But to whom ye forgive anything, *I* also; for I also, what I have forgiven, if I have forgiven anything, [it is] for your sakes in [the] person of Christ;
10En hverjum sem þér fyrirgefið, honum fyrirgef ég líka. Og það sem ég hef fyrirgefið, hafi ég þurft að fyrirgefa nokkuð, þá hefur það verið vegna yðar fyrir augliti Krists,
11that we might not have Satan get an advantage against us, for we are not ignorant of *his* thoughts.
11til þess að vér yrðum ekki vélaðir af Satan, því að ekki er oss ókunnugt um vélráð hans.
12Now when I came to Troas for the [publication of the] glad tidings of the Christ, a door also being opened to me in [the] Lord,
12En er ég kom til Tróas til að boða fagnaðarerindið um Krist og mér stóðu þar opnar dyr í þjónustu Drottins,
13I had no rest in my spirit at not finding Titus my brother; but bidding them adieu, I came away to Macedonia.
13þá hafði ég enga eirð í mér, af því að ég hitti ekki Títus, bróður minn, svo að ég kvaddi þá og fór til Makedóníu.
14But thanks [be] to God, who always leads us in triumph in the Christ, and makes manifest the odour of his knowledge through us in every place.
14En Guði séu þakkir, sem fer með oss í óslitinni sigurför Krists og lætur oss útbreiða ilm þekkingarinnar á honum á hverjum stað.
15For we are a sweet odour of Christ to God, in the saved and in those that perish:
15Því að vér erum góðilmur Krists fyrir Guði meðal þeirra, er hólpnir verða, og meðal þeirra, sem glatast;
16to the one an odour from death unto death, but to the others an odour from life unto life; and who [is] sufficient for these things?
16þeim síðarnefndu ilmur af dauða til dauða, en hinum ilmur af lífi til lífs. Og hver er til þessa hæfur?Ekki erum vér eins og hinir mörgu, er pranga með Guðs orð, heldur flytjum vér það af hreinum huga frá Guði frammi fyrir augliti Guðs, með því að vér erum í Kristi.
17For we do not, as the many, make a trade of the word of God; but as of sincerity, but as of God, before God, we speak in Christ.
17Ekki erum vér eins og hinir mörgu, er pranga með Guðs orð, heldur flytjum vér það af hreinum huga frá Guði frammi fyrir augliti Guðs, með því að vér erum í Kristi.