Icelandic

Kekchi

Ezekiel

11

1Og andinn hóf mig upp og flutti mig að austurhliði musteris Drottins, sem horfir mót austri. Þar stóðu fyrir dyrum hliðsins tuttugu og fimm menn, og á meðal þeirra sá ég Jaasanja Assúrsson og Pelatja Benajason, foringja lýðsins.
1Ut lix musikß li Dios quinixcuaclesi ut quinixcßam saß li oquebâl re li templo li cuan saß li este. Saß li oquebâl aßan cuanqueb ôb xcaßcßâl li cuînk. Saß xyânkeb aßan cuan laj Jaazanías li ralal laj Azur ut laj Pelatías li ralal laj Benaía. Eb aßan nequeßcßamoc be saß xyânkeb li tenamit.
2Þá sagði hann við mig: ,,Mannsson, það eru þessir menn, sem hafa illt í huga og ráða mönnum óheilt í þessari borg.
2Li Kâcuaß quixye cue: —At ralal cuînk, aßaneb aßin li cuînk li yôqueb chixcßûbanquil ru li mâusilal ut yôqueb chixtacchißinquileb li tenamit aßin.
3Þeir segja: ,Hafa ekki húsin nýlega verið endurreist? Borgin er potturinn, en vér erum kjötið.`
3Nequeßxye, “Mâcßaß cßoxlac. Tzßakal tocablak. Saß li tenamit aßin takacol kib. Chanchanak jun li ucßal ut lâo chanchanako li tib li cuan chi saß li ucßal,” chanqueb.
4Spá þú þess vegna móti þeim, spá þú, mannsson!``
4Joßcan nak lâat, at ralal cuînk, ye resil reheb li raylal li tâchâlk saß xbêneb, chan.
5Þá kom andi Drottins yfir mig og sagði við mig: ,,Seg þú: Svo segir Drottinn: Svo segið þér, Ísraelsmenn, og ég þekki hugrenningar yðar.
5Ut lix musikß li Kâcuaß quichal cuiqßuin ut quixye cue nak tinye chi joßcaßin: Aßan aßin li naxye li Kâcuaß. Lâex li ralal xcßajol laj Israel, nequeye li cßaßak re ru aßin, abanan lâin ninnau cßaßru cuan saß lê chßôl.
6Marga menn yðar hafið þér drepið í þessari borg og þér hafið fyllt stræti hennar vegnum mönnum.
6Lâex xecamsi nabaleb li cristian saß li tenamit. Ut xecanabeb chi tûbtu li camenak saß eb li be.
7Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Þeir menn, sem þér hafið lagt að velli í borginni, þeir eru kjötið og borgin er potturinn. En þér munuð fluttir verða burt úr henni.
7Joßcan nak li Kâcuaß Dios naxye chi joßcaßin: Lâin texcuisi saß li tenamit. Aß chic li cristian li xecamsiheb teßcanâk saß li tenamit. Chanchanakeb li tib saß li ucßal.
8Við sverðið eruð þér hræddir, og sverðið skal ég láta yfir yður koma, segir Drottinn Guð.
8Lâex incßaß nequeraj pletic xban nak nequexxucuac. Abanan lâin tinqßue li plêt saß êbên.
9Og ég skal færa yður burt úr borginni og selja yður útlendum mönnum í hendur og framkvæma dóma meðal yðar.
9Texcuisi saß lê tenamit ut texinkßaxtesi saß rukßeb li jalaneb xtenamit. Texinqßue chixtojbal lê mâc.
10Fyrir sverði skuluð þér falla, í Ísraelslandi skal ég dæma yður, og þér skuluð viðurkenna, að ég er Drottinn.
10Texcamsîk chi chßîchß. Lâin tinrakok âtin saß êbên naticla chak saß li nubâl re li naßajej Israel re nak têqßue retal nak lâin li Kâcuaß.
11Borgin skal ekki verða yður að potti og þér skuluð ekki verða kjöt í henni, í Ísraelslandi skal ég dæma yður.
11Li tenamit aßan moco chanchanak ta li ucßal chokß êre, chi moco lâexak ta li tib li cuan chi saß. Lâin tinrakok âtin saß êbên naticla chak saß li nubâl re li tenamit Israel.
12Þá skuluð þér viðurkenna, að ég er Drottinn. En mínum boðorðum hafið þér ekki hlýtt og mína setninga hafið þér ekki haldið, heldur hafið þér breytt eftir setningum heiðnu þjóðanna, sem umhverfis yður eru.``
12Lâex têqßue retal nak lâin li Kâcuaß. Lâex incßaß xebânu li naxye saß lin chakßrab chi moco xebânu li cßaßru xinye êre. Xebânu ban joß nequeßxbânu li jalaneb xtenamit li cuanqueb chêjun sutam, chan li Kâcuaß.
13Meðan ég spáði þannig, féll Pelatja Benajason dauður niður. Þá féll ég fram á ásjónu mína, kallaði upp hárri röddu og sagði: ,,Æ, Drottinn Guð, ætlar þú að gjöreyða öllum eftirleifum Ísraels?``
13Ut nak lâin yôquin chixyebal resil li raylal li tâchâlk saß xbêneb, laj Pelatías li ralal laj Benaía quicam. Ut lâin quinhupub cuib saß chßochß ut quinjap cue ut quinye: —At nimajcual Dios, ¿ma tâsacheb ru chi junaj cua eb li ralal xcßajol laj Israel li joß qßuial chic queßcoleß?—
14Orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:
14Li Dios quiâtinac cuiqßuin ut quixye cue:
15,,Mannsson, um bræður þína, bræður þína, þá menn, er með þér voru herleiddir, og gjörvallan Ísraels lýð, segja Jerúsalembúar: ,Þeir eru langt í burtu frá Drottni, oss er landið gefið til eignar!`
15—At ralal cuînk, eb li cristian li cuanqueb Jerusalén yôqueb chi âtinac chirixeb laj Israel lâ cuech tenamitil li queßchapeß ut queßcßameß chi najt. Yôqueb chixyebal, “Najt cuanqueb riqßuin li Kâcuaß. Incßaß naru teßlokßonînk. Joßcan nak xcana chokß ke lâo li naßajej aßin,” chanqueb.
16Fyrir því skalt þú segja: Svo segir Drottinn Guð: Já, ég hefi rekið þá langt burt til heiðinna þjóða og dreift þeim út um löndin, og ég varð þeim skamma hríð að helgidómi í löndum þeim, sem þeir eru komnir til.
16Joßcan nak tâye reheb laj Israel lâ cuech tenamitil li queßcßameß chi najt li cßaßru yôquin chixyebal. Lâin quintaklan reheb chi najt ut quinjeqßuiheb saß xyânkeb li jalanil tenamit. Abanan lâin tincuânk riqßuineb nak cuânkeb aran.
17Fyrir því skalt þú segja: Svo segir Drottinn Guð: Ég vil safna yður saman frá þjóðunum og stefna yður saman frá löndunum, þangað sem yður var dreift, og gefa yður Ísraelsland.
17Ye ajcuiß reheb laj Israel nak lâin tinchßutub cuißchic ruheb li jeqßuinbileb ru saß li jalanil tenamit ut tincßameb cuißchic saß lix tenamiteb. Ut tinqßue cuißchic reheb li naßajej Israel.
18Þangað munu þeir komast og útrýma þaðan öllum viðurstyggðum þess og öllum svívirðingum þess.
18Nak ac cuânkeb chic saß lix naßajeb, teßrisi li yîbanbil dios saß xyânkeb ut incßaß chic teßxbânu li yibru naßleb re xlokßoninquil li jalanil dios.
19Og ég mun gefa þeim nýtt hjarta og leggja þeim nýjan anda í brjóst. Ég mun taka steinhjartað úr líkama þeirra og gefa þeim hjarta af holdi,
19Lâin tinacßobresi li râmeb ut tinjal lix cßaßuxeb. Tinkßunobresi li râmeb ut tincuisi li cacuil chßôlej li cuan riqßuineb.
20til þess að þeir hlýði boðorðum mínum og varðveiti setninga mína og breyti eftir þeim. Og þá skulu þeir vera mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð.
20Eb aßan teßxbânu li cßaßru ninye ut teßxpâb lin chakßrab. Ut lâinak lix Dioseb ut aßanakeb li cualal incßajol.
21En þessir _ hjarta þeirra eltir viðurstyggðir þeirra og andstyggðir. Ég skal láta athæfi þeirra koma þeim í koll, segir Drottinn Guð.``
21Abanan eb li nequeßxic xchßôl chixbânunquil li yibru naßleb re xlokßoninquil li jalanil dios, lâin tinqßueheb chixtojbal lix mâqueb. Lâin li Kâcuaß ninyehoc re aßin.—
22Nú hófu kerúbarnir vængi sína og hjólin færðust til samtímis þeim, en dýrð Ísraels Guðs var uppi yfir þeim.
22Ut li querubines queßxhel lix xiqßueb ut queßcôeb ut eb li ruedas cô rochbeneb. Ut lix lokßal lix Dioseb laj Israel cuan saß xbêneb.
23Og dýrð Drottins hóf sig upp frá borginni og staðnæmdist á fjallinu, sem er fyrir austan borgina.
23Ut lix lokßal li Dios qui-el saß li tenamit ut coxaklîk saß xbên li tzûl li cuan saß xjayal li na-el cuiß li sakße.
24Og andinn hóf mig upp og flutti mig í sýninni, fyrir Guðs anda, til hinna herleiddu í Kaldealandi. Og sýnin, sem ég hafði séð, leið upp frá mér.Því næst flutti ég hinum herleiddu öll orð Drottins, þau er hann hafði birt mér.
24Ut lix musikß li Dios quinixcuaclesi ut quinixcßam cuißchic Babilonia cuanqueb cuiß li queßcßameß chi prêxil. Aßan li quicuil saß li visión li quicßutbesîc chicuu xban li Kâcuaß. Ut incßaß chic quicuil li visión aßan.Ut lâin quinye reheb laj Israel li cuanqueb chi prêxil Babilonia chixjunil li quicßutbesîc chicuu saß li visión xban li Kâcuaß.
25Því næst flutti ég hinum herleiddu öll orð Drottins, þau er hann hafði birt mér.
25Ut lâin quinye reheb laj Israel li cuanqueb chi prêxil Babilonia chixjunil li quicßutbesîc chicuu saß li visión xban li Kâcuaß.