Icelandic

Norwegian

Genesis

31

1Nú frétti Jakob svofelld ummæli Labans sona: ,,Jakob hefir dregið undir sig aleigu föður vors, og af eigum föður vors hefir hann aflað sér allra þessara auðæfa.``
1Så fikk han høre at Labans sønner hadde sagt: Jakob har tatt alt det som vår far eide, og av det som vår far eide, har han lagt sig til all denne rikdom.
2Og Jakob sá á yfirbragði Labans, að hann bar ekki sama þel til sín sem áður.
2Og Jakob så på Labans ansikt at han ikke var den samme mot ham som før.
3Þá sagði Drottinn við Jakob: ,,Hverf heim aftur í land feðra þinna og til ættfólks þíns, og ég mun vera með þér.``
3Og Herren sa til Jakob: Vend tilbake til dine fedres land og ditt eget folk, og jeg vil være med dig.
4Þá sendi Jakob og lét kalla þær Rakel og Leu út í hagann, þangað sem hjörð hans var.
4Da sendte Jakob bud efter Rakel og Lea og bad dem komme ut på marken, hvor han var med sin buskap.
5Og hann sagði við þær: ,,Ég sé á yfirbragði föður ykkar, að hann ber ekki sama þel til mín sem áður; en Guð föður míns hefir verið með mér.
5Og han sa til dem: Jeg ser på eders fars ansikt at han ikke er den samme mot mig som før; men min fars Gud har vært med mig.
6Og það vitið þið sjálfar, að ég hefi þjónað föður ykkar af öllu mínu megni.
6Og I vet selv at jeg av all min evne har tjent eders far.
7En faðir ykkar hefir svikið mig og tíu sinnum breytt kaupi mínu, en Guð hefir ekki leyft honum að gjöra mér mein.
7Men eders far har sveket mig og forandret min lønn ti ganger; men Gud lot ham ikke få gjøre mig noget ondt.
8Þegar hann sagði: ,Hið flekkótta skal vera kaup þitt,` _ fæddi öll hjörðin flekkótt, og þegar hann sagði: ,Hið rílótta skal vera kaup þitt,` _ þá fæddi öll hjörðin rílótt.
8Når han sa: Det flekkete skal være din lønn, da fikk alt småfeet flekkete unger, og når han sa: Det stripete skal være din lønn, da fikk alt småfeet stripete unger.
9Og þannig hefir Guð tekið fénaðinn frá föður ykkar og gefið mér hann.
9Således tok Gud eders fars fe fra ham og gav mig det.
10Og um fengitíma hjarðarinnar hóf ég upp augu mín og sá í draumi, að hafrarnir, sem hlupu á féð, voru rílóttir, flekkóttir og dílóttir.
10Og ved den tid småfeet parret sig, så jeg frem for mig i drømme og fikk se at bukkene som parret sig med småfeet, var stripete, flekkete og prikkete.
11Og engill Guðs sagði við mig í draumnum: ,Jakob!` Og ég svaraði: ,Hér er ég.`
11Og Guds engel sa til mig i drømmen: Jakob! Og jeg sa: Ja, her er jeg.
12Þá mælti hann: ,Lít upp augum þínum og horfðu á: Allir hafrarnir, sem hlaupa á féð, eru rílóttir, flekkóttir og dílóttir; því að ég hefi séð allt, sem Laban hefir gjört þér.
12Da sa han: Se nu frem for dig, så skal du få se at alle bukkene som parrer sig med småfeet, er stripete, flekkete og prikkete; for jeg har sett alt det Laban gjør mot dig.
13Ég er Betels Guð, þar sem þú smurðir merkisstein, þar sem þú gjörðir mér heit. Tak þig nú upp, far burt úr þessu landi og hverf aftur til ættlands þíns.```
13Jeg er den Gud som du så i Betel, der hvor du salvet en minnesten, og hvor du gjorde mig et løfte; gjør dig nu rede og dra bort fra dette land, og vend tilbake til ditt fødeland.
14Þá svöruðu þær Rakel og Lea og sögðu við hann: ,,Höfum við nokkra hlutdeild og arf framar í húsi föður okkar?
14Da svarte Rakel og Lea og sa til ham: Har vi vel ennu nogen lodd og arv i vår fars hus?
15Álítur hann okkur ekki vandalausar, þar sem hann hefir selt okkur? Og verði okkar hefir hann og algjörlega eytt.
15Har han ikke aktet oss som fremmede? Han har jo solgt oss og selv fortært det han fikk for oss.
16Aftur á móti eigum við og börn okkar allan þann auð, sem Guð hefir tekið frá föður okkar. Og gjör þú nú allt, sem Guð hefir boðið þér.``
16All den rikdom Gud har tatt fra vår far, den hører oss og våre barn til; gjør nu bare du alt det Gud har sagt til dig!
17Þá tók Jakob sig upp og setti börn sín og konur upp á úlfaldana
17Så gjorde Jakob sig ferdig og satte sine barn og hustruer på kamelene,
18og hafði á burt allan fénað sinn og allan fjárhlut sinn, sem hann hafði aflað sér, fjáreign sína, sem hann hafði aflað sér í Mesópótamíu, og hóf ferð sína til Ísaks föður síns í Kanaanlandi.
18og han tok med sig hele sin buskap og alt det gods som han hadde samlet sig, det fe han eide, og som han hadde lagt sig til i Mesopotamia, og vilde dra til Isak, sin far, i Kana'ans land.
19Þegar Laban var farinn að klippa sauði sína, þá stal Rakel húsgoðum föður síns.
19Men Laban hadde draget bort for å klippe sine får; da stjal Rakel sin fars husguder.
20Og Jakob blekkti Laban hinn arameíska, með því að hann sagði honum eigi frá því, að hann mundi flýja.
20Og Jakob stjal sig bort fra arameeren Laban; han sa ikke noget til ham om at han vilde flykte.
21Þannig flýði hann með allt, sem hann átti. Og hann tók sig upp og fór yfir fljótið og stefndi á Gíleaðsfjöll.
21Så flyktet han med alt det han hadde; han gjorde sig ferdig og satte over elven* og tok veien til Gileadfjellet. / {* Eufrat.}
22Laban var sagt það á þriðja degi, að Jakob væri flúinn.
22Den tredje dag efter fikk Laban vite at Jakob var flyktet.
23Þá tók hann frændur sína með sér og elti hann sjö dagleiðir og náði honum á Gíleaðsfjöllum.
23Da tok han med sig sine frender og satte efter ham syv dagsreiser, og nådde ham igjen på Gilead-fjellet.
24En Guð kom um nóttina til Labans hins arameíska í draumi og sagði við hann: ,,Gæt þín, að þú mælir ekkert styggðarorð til Jakobs.``
24Men Gud kom til arameeren Laban i en drøm om natten og sa til ham: Vokt dig og si ikke noget til Jakob, hverken godt eller ondt!
25Og Laban náði Jakob, sem hafði sett tjöld sín á fjöllunum, og Laban tjaldaði einnig á Gíleaðsfjöllum með frændum sínum.
25Da Laban nådde Jakob igjen, hadde Jakob slått op sitt telt på fjellet, og Laban med sine frender slo også op sitt telt på Gilead-fjellet.
26Þá mælti Laban við Jakob: ,,Hvað hefir þú gjört, að þú skyldir blekkja mig og fara burt með dætur mínar, eins og þær væru herteknar?
26Da sa Laban til Jakob: Hvad er det du har gjort? Du har stjålet dig bort fra mig og ført mine døtre avsted som om de var tatt i krig.
27Hví flýðir þú leynilega og blekktir mig og lést mig ekki af vita, svo að ég mætti fylgja þér á veg með fögnuði og söng, með bumbum og gígjum,
27Hvorfor flyktet du hemmelig og stjal dig bort fra mig og sa ikke noget om det til mig, så jeg kunde ha fulgt dig på veien med gledesrop og sanger, med trommer og harper?
28og leyfðir mér ekki að kyssa dætrasonu mína og dætur? Óviturlega hefir þér nú farist.
28Du lot mig ikke engang få kysse mine sønner og døtre; det var uforstandig gjort av dig.
29Það er á mínu valdi að gjöra yður illt, en Guð föður yðar mælti svo við mig í nótt, er var: ,Gæt þín, að þú mælir ekkert styggðarorð til Jakobs.`
29Jeg har det i min makt å gjøre ondt mot eder; men eders fars Gud sa til mig inatt: Vokt dig og si ikke noget til Jakob, hverken godt eller ondt!
30Og nú munt þú burt hafa farið, af því að þig fýsti svo mjög heim til föður þíns, en hví hefir þú stolið goðum mínum?``
30Men når du nu har draget bort, fordi du lengtes så såre efter din fars hus, hvorfor stjal du da mine guder?
31Þá svaraði Jakob og mælti til Labans: ,,Af því að ég var hræddur, því að ég hugsaði, að þú kynnir að slíta dætur þínar frá mér.
31Da svarte Jakob og sa til Laban: Jeg var redd; jeg tenkte at du kunde ta dine døtre fra mig med makt.
32En sá skal ekki lífi halda, sem þú finnur hjá goð þín. Rannsaka þú í viðurvist frænda vorra, hvað hjá mér er af þínu, og tak það til þín.`` En Jakob vissi ekki, að Rakel hafði stolið þeim.
32Men den som du finner dine guder hos, han skal ikke leve. Se nu efter i våre frenders nærvær, om du kjennes ved noget av det jeg har med mig, og ta det så! Men Jakob visste ikke at Rakel hadde stjålet dem.
33Laban gekk í tjald Jakobs og tjald Leu og í tjald beggja ambáttanna, en fann ekkert. Og hann fór út úr tjaldi Leu og gekk í tjald Rakelar.
33Da gikk Laban inn i Jakobs telt og i Leas telt og i begge trælkvinnenes telt, men fant ikke noget. Så gikk han ut av Leas telt og inn i Rakels telt.
34En Rakel hafði tekið húsgoðin og lagt þau í úlfaldasöðulinn og setst ofan á þau. Og Laban leitaði vandlega í öllu tjaldinu og fann ekkert.
34Men Rakel hadde tatt husgudene og lagt dem i kamelsalen og satt sig på dem; og Laban gjennemsøkte hele teltet, men fant ikke noget.
35Og hún sagði við föður sinn: ,,Herra minn, reiðstu ekki, þótt ég geti ekki staðið upp fyrir þér, því að mér fer að eðlisháttum kvenna.`` Og hann leitaði og fann ekki húsgoðin.
35Og hun sa til sin far: Min herre må ikke bli vred fordi jeg ikke kan reise mig for dig; for det går mig på kvinners vis. Så lette han efter husgudene, men fant dem ikke.
36Þá reiddist Jakob og átaldi Laban og sagði við Laban: ,,Hvað hefi ég misgjört, hvað hefi ég brotið, að þú eltir mig svo ákaflega?
36Da blev Jakob vred og gikk i rette med Laban. Og Jakob tok til orde og sa til Laban: Hvad er min brøde, hvad er min synd, siden du forfølger mig så?
37Þú hefir leitað vandlega í öllum farangri mínum; hvað hefir þú fundið af öllum þínum búshlutum? Legg það hér fram í viðurvist frænda minna og frænda þinna, að þeir dæmi okkar í milli.
37Du har nu gjennemsøkt alt det jeg har; hvad fant du da som hører ditt hus til? Legg det frem her for mine og dine frender, så de kan dømme mellem oss to!
38Ég hefi nú hjá þér verið í tuttugu ár. Ær þínar og geitur hafa ekki látið lömbunum, og hrúta hjarðar þinnar hefi ég ekki etið.
38Nu har jeg vært hos dig i tyve år; dine får og dine gjeter har ikke født i utide, og værene av ditt småfe har jeg ikke ett op;
39Það sem dýrrifið var, bar ég ekki heim til þín, það bætti ég sjálfur, þú krafðist þess af mér, hvort sem það hafði verið tekið á degi eða nóttu.
39det som var sønderrevet, kom jeg ikke hjem til dig med; jeg godtgjorde selv skaden; av mig krevde du det, enten det var stjålet om dagen, eller det var stjålet om natten.
40Ég átti þá ævi, að á daginn þjakaði mér hiti og á nóttinni kuldi, og eigi kom mér svefn á augu.
40Slik hadde jeg det: Om dagen fortærtes jeg av hete og av kulde om natten, og søvnen flydde fra mine øine.
41Í tuttugu ár hefi ég nú verið á heimili þínu. Hefi ég þjónað þér í fjórtán ár fyrir báðar dætur þínar og í sex ár fyrir hjörð þína, og þú hefir breytt kaupi mínu tíu sinnum.
41I tyve år har jeg nu vært i ditt hus, jeg har tjent dig fjorten år for dine to døtre og seks år for ditt småfe; men du forandret min lønn ti ganger.
42Hefði ekki Guð föður míns, Abrahams Guð og Ísaks ótti, liðsinnt mér, þá hefðir þú nú látið mig tómhentan burt fara. En Guð hefir séð þrautir mínar og strit handa minna, og hann hefir dóm upp kveðið í nótt er var.``
42Hadde ikke min fars Gud vært med mig, han som var Abrahams Gud, og som også Isak frykter, sannelig, du hadde nu latt mig fare med tomme hender. Men Gud har sett min møie og alt mitt strev, og han har dømt inatt.
43Þá svaraði Laban og sagði við Jakob: ,,Dæturnar eru mínar dætur og börnin eru mín börn og hjörðin er mín hjörð, og allt, sem þú sér, heyrir mér til. En hvað skyldi ég gjöra þessum dætrum mínum í dag, eða börnum þeirra, sem þær hafa alið?
43Da svarte Laban og sa til Jakob: Døtrene er mine døtre, og barna er mine barn, og buskapen er min buskap, og alt det du ser, er mitt; hvad skulde jeg da nu kunne gjøre mot disse mine døtre eller mot deres barn, som de har født?
44Gott og vel, við skulum gjöra sáttmála, ég og þú, og hann skal vera vitnisburður milli mín og þín.``
44Så kom nu og la oss gjøre en pakt, jeg og du, og den skal være et vidne mellem mig og dig.
45Þá tók Jakob stein og reisti hann upp til merkis.
45Da tok Jakob en sten og reiste den op som en minnesten.
46Og Jakob sagði við frændur sína: ,,Berið að steina.`` Og þeir báru að steina og gjörðu grjótvörðu, og þeir mötuðust þar á grjótvörðunni.
46Og Jakob sa til sine frender: Sank sammen stener! Og de tok stener og laget en røs; og de holdt måltid der ved stenrøsen.
47Og Laban kallaði hana Jegar Sahadúta, en Jakob kallaði hana Galeð.
47Og Laban kalte den Jegar-Sahaduta, men Jakob kalte den Gal-Ed*. / {* vidnesbyrdets stenrøs.}
48Og Laban mælti: ,,Þessi varða skal vera vitni í dag milli mín og þín.`` Fyrir því kallaði hann hana Galeð,
48Da sa Laban: Denne røs skal være et vidne mellem mig og dig idag. Derfor kalte de den Gal-Ed,
49og Mispa, með því að hann sagði: ,,Drottinn sé á verði milli mín og þín, þá er við skiljum.
49og tillike Mispa*, fordi han sa: Herren holde vakt mellem mig og dig, når vi kommer hverandre av syne; / {* d.e. et sted hvorfra en skuer vidt omkring.}
50Ef þú misþyrmir dætrum mínum og ef þú tekur þér fleiri konur auk dætra minna, þá gæt þess, að þótt enginn maður sé hjá okkur, er Guð samt vitni milli mín og þín.``
50dersom du farer ille med mine døtre eller tar dig andre hustruer foruten mine døtre, da er det vel intet menneske hos oss, men se, Gud er vidne mellem mig og dig.
51Og Laban sagði við Jakob: ,,Sjá þessa vörðu og sjá þennan merkisstein, sem ég hefi reist upp milli mín og þín!
51Så sa Laban til Jakob: Se, denne røs og denne minnesten som jeg har reist mellem mig og dig -
52Þessi varða sé vitni þess og þessi merkissteinn vottur þess, að hvorki skal ég ganga fram hjá þessari vörðu til þín né þú ganga fram hjá þessari vörðu og þessum merkissteini til mín með illt í huga.
52vidner skal de være, både røsen og minnestenen, at ikke skal jeg dra til dig forbi denne røs, og at heller ikke skal du dra til mig forbi denne røs og denne minnesten med ondt i sinne.
53Guð Abrahams og Guð Nahors, Guð föður þeirra, dæmi milli okkar.`` Og Jakob sór við ótta Ísaks föður síns.
53Abrahams Gud og Nakors Gud skal dømme mellem oss, han som var deres fars Gud. Så svor Jakob ved ham som hans far Isak fryktet.
54Og Jakob slátraði fórnardýrum á fjallinu og bauð frændum sínum til máltíðar, og þeir mötuðust og voru á fjallinu um nóttina.Laban reis árla næsta morgun og minntist við sonu sína og dætur og blessaði þau. Því næst hélt Laban af stað og hvarf aftur heim til sín.
54Og Jakob ofret et slaktoffer på fjellet og innbød sine frender til måltid. Og de holdt måltid og blev natten over på fjellet.
55Laban reis árla næsta morgun og minntist við sonu sína og dætur og blessaði þau. Því næst hélt Laban af stað og hvarf aftur heim til sín.
55Morgenen efter stod Laban tidlig op, og han kysset sine sønner og sine døtre og velsignet dem. Så drog Laban hjem igjen.