1(Af David.) HERRE, jeg løfter min sjæl til dig
1Davíðssálmur.
2min Gud jeg stoler på dig, lad mig ikke beskæmmes, lad ej mine Fjender fryde sig over mig.
2Til þín, Drottinn, hef ég sál mína, Guð minn, þér treysti ég. Lát mig eigi verða til skammar, lát eigi óvini mína hlakka yfir mér.
3Nej, ingen som bier på dig, skal beskæmmes; beskæmmes skal de, som er troløse uden Grund.
3Hver sá er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar, þeir verða til skammar, er ótrúir eru að raunalausu.
4Lad mig kende dine Veje, HERRE lær mig dine Stier.
4Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína.
5Led mig på din Sandheds Vej og lær mig, thi du er min Frelses Gud; jeg bier bestandig på dig.
5Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér, því að þú ert Guð hjálpræðis míns, allan daginn vona ég á þig.
6HERRE, kom din Barmhjertighed i Hu og din Nåde, den er jo fra Evighed af.
6Minnst þú miskunnar þinnar, Drottinn, og kærleiksverka, því að þau eru frá eilífð.
7Mine Ungdomssynder og Overtrædelser komme du ikke i Hu, men efter din Miskundhed kom mig i Hu, for din Godheds Skyld, o HERRE!
7Minnst eigi æskusynda minna og afbrota, minnst mín eftir elsku þinni sakir gæsku þinnar, Drottinn.
8God og oprigtig er HERREN, derfor viser han Syndere Vejen.
8Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn.
9Han vejleder ydmyge i det, som er ret, og lærer de ydmyge sin Vej.
9Hann lætur hina hrjáðu ganga eftir réttlætinu og kennir hinum þjökuðu veg sinn.
10Alle HERRENs Stier er Miskundhed og Trofasthed for dem, der holder hans Pagt og hans Vidnesbyrd.
10Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá er gæta sáttmála hans og vitnisburða.
11For dit Navns Skyld, HERRE, tilgive du min Brøde, thi den er stor.
11Sakir nafns þíns, Drottinn, fyrirgef mér sekt mína, því að hún er mikil.
12Om nogen frygter HERREN, ham viser han den Vej, han skal vælge;
12Ef einhver óttast Drottin, mun hann kenna honum veg þann er hann á að velja.
13selv skal han leve i Lykke og hans Sæd få Landet i Eje.
13Sjálfur mun hann búa við hamingju, og niðjar hans eignast landið.
14Fortroligt Samfund har HERREN med dem, der frygter ham, og han kundgør dem sin Pagt.
14Drottinn sýnir trúnað þeim er óttast hann, og sáttmála sinn gjörir hann þeim kunnan.
15Mit Øje er stadig vendt imod HERREN, thi han frier mine Fødder af Snaren.
15Augu mín mæna ætíð til Drottins, því að hann greiðir fót minn úr snörunni.
16Vend dig til mig og vær mig nådig, thi jeg er ene og arm.
16Snú þér til mín og líkna mér, því að ég er einmana og hrjáður.
17Let mit Hjertes Trængsler og før mig ud af min Nød.
17Angist sturlar hjarta mitt, leið mig úr nauðum mínum.
18Se hen til min Nød og min Kvide og tilgiv alle mine Synder.
18Lít á eymd mína og armæðu og fyrirgef allar syndir mínar.
19Se hen til mine Fjender, thi de er mange og hader mig med Had uden Grund.
19Lít á, hversu margir óvinir mínir eru, með rangsleitnishatri hata þeir mig.
20Vogt min Sjæl og frels mig, jeg lider på dig, lad mig ikke beskæmmes.
20Varðveit líf mitt og frelsa mig, lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita ég hælis.
21Lad Uskyld og Retsind vogte mig, thi jeg bier på dig, HERRE.
21Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín, því að á þig vona ég.Frelsa Ísrael, ó Guð, úr öllum nauðum hans.
22Forløs, o Gud, Israel af alle dets Trængsler!
22Frelsa Ísrael, ó Guð, úr öllum nauðum hans.