Icelandic

World English Bible

Exodus

36

1Og skulu þeir Besalel og Oholíab og allir hugvitsmenn, er Drottinn hefir gefið hugvit og kunnáttu, svo að þeir bera skyn á, hvernig gjöra skal allt það verk, er að helgidómsgjörðinni lýtur, gjöra allt eins og Drottinn hefir boðið.``
1“Bezalel and Oholiab shall work with every wise-hearted man, in whom Yahweh has put wisdom and understanding to know how to work all the work for the service of the sanctuary, according to all that Yahweh has commanded.”
2Móse lét þá kalla Besalel og Oholíab og alla hugvitsmenn, er Drottinn hafði gefið hugvit, alla þá, sem af fúsum huga gengu að verkinu til að vinna það.
2Moses called Bezalel and Oholiab, and every wise-hearted man, in whose heart Yahweh had put wisdom, even everyone whose heart stirred him up to come to the work to do it:
3Tóku þeir við af Móse öllum gjöfunum, sem Ísraelsmenn höfðu fram borið til framkvæmda því verki, er að helgidómsgjörðinni laut. En þeir færðu honum á hverjum morgni eftir sem áður gjafir sjálfviljuglega.
3and they received from Moses all the offering which the children of Israel had brought for the work of the service of the sanctuary, with which to make it. They brought yet to him freewill offerings every morning.
4Þá komu allir hugvitsmennirnir, sem störfuðu að helgidómsgjörðinni í smáu og stóru, hver frá sínu verki, sem þeir voru að vinna,
4All the wise men, who performed all the work of the sanctuary, each came from his work which they did.
5og sögðu við Móse á þessa leið: ,,Fólkið leggur til miklu meira en þörf gjörist til að vinna það verk, sem Drottinn hefur boðið að gjöra.``
5They spoke to Moses, saying, “The people bring much more than enough for the service of the work which Yahweh commanded to make.”
6Þá bauð Móse að láta þetta boð út ganga um herbúðirnar: ,,Enginn, hvorki karl né kona, skal framar hafa nokkurn starfa með höndum í því skyni að gefa til helgidómsins.`` Lét fólkið þá af að færa gjafir.
6Moses gave commandment, and they caused it to be proclaimed throughout the camp, saying, “Let neither man nor woman make anything else for the offering for the sanctuary.” So the people were restrained from bringing.
7Var þá gnógt verkefni fyrir þá til alls þess, er gjöra þurfti, og jafnvel nokkuð afgangs.
7For the stuff they had was sufficient for all the work to make it, and too much.
8Gjörðu nú allir hugvitsmenn meðal þeirra, er að verkinu unnu, tjaldbúðina af tíu dúkum. Voru þeir gjörðir af tvinnaðri baðmull, bláum purpura, rauðum purpura og skarlati, og listofnir kerúbar á.
8All the wise-hearted men among those who did the work made the tabernacle with ten curtains; of fine twined linen, blue, purple, and scarlet, with cherubim, the work of the skillful workman, they made them.
9Hver dúkur var tuttugu og átta álna langur og fjögra álna breiður, og voru allir dúkarnir jafnir að máli.
9The length of each curtain was twenty-eight cubits, and the breadth of each curtain four cubits. All the curtains had one measure.
10Fimm dúkarnir voru tengdir saman hver við annan, og eins voru hinir fimm dúkarnir tengdir saman hver við annan.
10He coupled five curtains to one another, and the other five curtains he coupled one to another.
11Þá voru gjörðar lykkjur af bláum purpura á jaðri ysta dúksins í samfellunni. Eins var gjört á jaðri ysta dúksins í hinni samfellunni.
11He made loops of blue on the edge of the one curtain from the edge in the coupling. Likewise he made in the edge of the curtain that was outmost in the second coupling.
12Fimmtíu lykkjur voru gjörðar á öðrum dúknum, og eins voru gjörðar fimmtíu lykkjur á jaðri þess dúksins, sem var í hinni samfellunni, svo að lykkjurnar stóðust á hver við aðra.
12He made fifty loops in the one curtain, and he made fifty loops in the edge of the curtain that was in the second coupling. The loops were opposite one to another.
13Þá voru gjörðir fimmtíu krókar af gulli og dúkarnir tengdir saman hver við annan með krókunum, svo að tjaldbúðin varð ein heild.
13He made fifty clasps of gold, and coupled the curtains one to another with the clasps: so the tabernacle was a unit.
14Því næst voru gjörðir dúkar af geitahári til að tjalda með yfir búðina, ellefu að tölu.
14He made curtains of goats’ hair for a covering over the tabernacle. He made them eleven curtains.
15Hver dúkur var þrjátíu álna langur og fjögra álna breiður, og voru allir ellefu dúkarnir jafnir að máli.
15The length of each curtain was thirty cubits, and four cubits the breadth of each curtain. The eleven curtains had one measure.
16Þá voru tengdir saman fimm dúkar sér og sex dúkar sér,
16He coupled five curtains by themselves, and six curtains by themselves.
17og síðan búnar til fimmtíu lykkjur á jaðri ysta dúksins í annarri samfellunni og eins fimmtíu lykkjur á dúkjaðri hinnar samfellunnar.
17He made fifty loops on the edge of the curtain that was outmost in the coupling, and he made fifty loops on the edge of the curtain which was outmost in the second coupling.
18Þá voru gjörðir fimmtíu eirkrókar til að tengja saman tjaldið, svo að það varð ein heild.
18He made fifty clasps of brass to couple the tent together, that it might be a unit.
19Þá var enn gjört þak yfir tjaldið af rauðlituðum hrútskinnum og enn eitt þak þar utan yfir af höfrungaskinnum.
19He made a covering for the tent of rams’ skins dyed red, and a covering of sea cow hides above.
20Því næst voru gjörð þiljuborðin í tjaldbúðina. Voru þau af akasíuviði og stóðu upp og ofan.
20He made the boards for the tabernacle of acacia wood, standing up.
21Var hvert borð tíu álnir á lengd og hálf önnur alin á breidd.
21Ten cubits was the length of a board, and a cubit and a half the breadth of each board.
22Á hverju borði voru tveir tappar, báðir sameinaðir. Var svo gjört á öllum borðum tjaldbúðarinnar.
22Each board had two tenons, joined one to another. He made all the boards of the tabernacle this way.
23Og þannig voru borðin í tjaldbúðina gjörð: Tuttugu borð í suðurhliðina,
23He made the boards for the tabernacle: twenty boards for the south side southward.
24og fjörutíu undirstöður af silfri voru búnar til undir tuttugu borðin, tvær undirstöður undir hvert borð, sín fyrir hvorn tappa.
24He made forty sockets of silver under the twenty boards; two sockets under one board for its two tenons, and two sockets under another board for its two tenons.
25Og í hina hlið tjaldbúðarinnar, norðurhliðina, voru gjörð tuttugu borð
25For the second side of the tabernacle, on the north side, he made twenty boards,
26og fjörutíu undirstöður af silfri, tvær undirstöður undir hvert borð.
26and their forty sockets of silver; two sockets under one board, and two sockets under another board.
27Í afturgafl búðarinnar, gegnt vestri, voru gjörð sex borð.
27For the far part of the tabernacle westward he made six boards.
28Og tvö borð voru gjörð í búðarhornin á afturgaflinum.
28He made two boards for the corners of the tabernacle in the far part.
29Voru þau tvöföld að neðan og héldu sömuleiðis fullu máli upp úr allt til hins fyrsta hrings. Þannig var þeim háttað hvorum tveggja á báðum hornunum.
29They were double beneath, and in the same way they were all the way to its top to one ring. He did this to both of them in the two corners.
30Borðin voru átta og með undirstöðum af silfri, sextán undirstöðum, tveim undirstöðum undir hverju borði.
30There were eight boards, and their sockets of silver, sixteen sockets; under every board two sockets.
31Því næst voru gjörðar slár af akasíuviði, fimm á borðin í annarri hlið búðarinnar
31He made bars of acacia wood; five for the boards of the one side of the tabernacle,
32og fimm slár á borðin í hinni hlið búðarinnar og fimm slár á borðin í afturgafli búðarinnar, gegnt vestri.
32and five bars for the boards of the other side of the tabernacle, and five bars for the boards of the tabernacle for the hinder part westward.
33Þá var gjörð miðsláin og látin liggja á miðjum borðunum alla leið, frá einum enda til annars.
33He made the middle bar to pass through in the midst of the boards from the one end to the other.
34Og voru borðin gulllögð, en hringarnir á þeim, sem slárnar gengu í, gjörðir af gulli. Slárnar voru og gulllagðar.
34He overlaid the boards with gold, and made their rings of gold for places for the bars, and overlaid the bars with gold.
35Þá var fortjaldið gjört af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull. Var það til búið með listvefnaði og kerúbar á.
35He made the veil of blue, purple, scarlet, and fine twined linen: with cherubim. He made it the work of a skillful workman.
36Til þess voru gjörðir fjórir stólpar af akasíuviði. Voru þeir gulllagðir og naglarnir í þeim af gulli, en undir stólpana voru steyptar fjórar undirstöður af silfri.
36He made four pillars of acacia for it, and overlaid them with gold. Their hooks were of gold. He cast four sockets of silver for them.
37Dúkbreiða var og gjörð fyrir dyr tjaldsins, af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull, og glitofin,svo og fimm stólparnir er henni fylgdu og naglarnir í þeim. Voru stólpahöfuðin gulllögð og hringrandir þeirra, en fimm undirstöðurnar undir þeim voru af eiri.
37He made a screen for the door of the tent, of blue, purple, scarlet, and fine twined linen, the work of an embroiderer;
38svo og fimm stólparnir er henni fylgdu og naglarnir í þeim. Voru stólpahöfuðin gulllögð og hringrandir þeirra, en fimm undirstöðurnar undir þeim voru af eiri.
38and the five pillars of it with their hooks. He overlaid their capitals and their fillets with gold, and their five sockets were of brass.